Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 63
sskapur, fundirnir alltaf skemmti-
legir og allir félagamir urdu að gera
eitthvað. Ritnefnd var skipuð og
gefið út blaðið NJÁLL sem var
handskrifað og einn úr nefndinni
þurfti að lesa upp úr blaðinu á fund-
um en allt efni var frumsamið og gat
enginn skorast undan því að skrifa
í Njál.
Enginn var skóli á þessum árum,
en farandkennarar komu til skiptis
á heimilin í sveitinni hálfan mánuð
í senn. Kenndu þeir okkur íslands-
sögu, reikning og Biblíusögu.
Skólaganga mín var lengst 8 vikur
áður en ég var fermd, en ég var
fermd í Hrunakirkju 1909 hjá síra
Kjartani Helgasyni prófasti í
Hruna. Fermingin er mér mjög
minnisstæð, við vorum 15 börn,
8 piltar og 7 stúlkur. Frá páskum
gengum við til spuminga einu sinni
í viku og voru þá spumingar tvisvar
á dag. Síra Kjartan ræddi mikið við
okkur um Biblíuna og lét okkur öll
segja eitthvað frá eigin brjósti. Það
var stór stund í lííl mínu, fermingin.
Þó var engin fermingarveisla, engar
fermingargjafir.
Haustið 1914-15 fer ég svo til
Reykjavíkur til að læra fatasaum
bæði á kvenfólk og karlmenn, ég
hélt til hjá frænku minni, Jónas föð-
urbróðir minn var þá háskólavörður
og Ólafía systir var á heimili Jónas-
ar á veturna svo það var gaman að
vera saman í Reykjavík þennan
vetur.
Ég var svo heima í Hörgsholti og
saumaði fyrir heimilið þar til ég gift-
ist Einari æskuvini mínum Ólafs-
syni frá Eyrarbakka, bjuggum við
þar eitt ár en fluttum þá til Keflavík-
ur 1929. Við byrjuðum búskap hjá
systur minni, Guðrúnu og hennar
manni Skúla Skúlasyni, í einu her-
bergi. Seinna fluttum við á Vallar-
götu 13 en þar bjuggum við í sam-
býli við Ólafi'u og Guðmann bróður.
Við höfðum sitt hvort svefnherberg-
ið en sameiginlega stofu og eldhús.
Katrín, elsta dóttir mín er fædd
1929 í Hörgsholti, næst er Elín Óla,
fædd 1932 á Vallargötunni og Ólafía
Sigríður fædd 1934 á sama stað.
1935 kaupum við húsið Suðurgötu
3 og þar fæddist sonurinn Guð-
mundur 1941, síðan höfum við búið
á Suðurgötu 3 en Einar lést 3. júní
1985.
Kristín hefur nú dvalið mest við
gamla tímann sem hún þekkir svo
vel en við höfum kannski gaman að
kynnast og gera okkur grein fyrir
hvað við lifum góðu og auðveldu lífi.
Ég tel það eitthvert mesta lán lífs
míns að hafa komist í kynni við fjöl-
skylduna á Suðurgötu 3, en við
Kata, dóttir Kristínar, höfum verið
vinkonur síðan þau fluttu á Suður-
götuna og ég hálfgerður heimaln-
ingur á því góða heimili. Kristín og
Einar eins og foreldrar mínir númer
tvö. Það er hreint ótrúlegt hvað
Kristín er em. Hún varð 92 ára 7.
október sl., fylgist vel með og les
dagblöðin gleraugnalaust. Hún er
sátt við lífið og tilveruna, þakklát
fyrir að vera gömul, þakklát fyrir
hve mikið er gert fyrir gamla fólkið
hér í bæ. Fyrir tveimur árum auðn-
aðist henni að fara til Kötu dóttur
sinnar sem býr í Bandarikjunum og
hafði mikið gaman af, þótti bara
verst að geta ekki talað ensku, þó
varla kæmi það að sök þar sem Kata
túlkaði allt fyrir hana.
Eftir að Einar dó hefur Kristín ver-
ið í skjóli dætra sinna Elínar og
Ólafíu sem sóttu hana á hverju
kvöldi í mat til skiptis en núna síðan
í janúar hefur hún verið hjá Elínu til
heimilis, þó hún fari á Suðurgötuna
á daginn. Hún hefur beðið mig að
skila hjartans þakklæti til allra
þeirra mörgu vina sem hún hefur
eignast bæði fyrr og nú og ekki síst
til þeirra em öldrunarmálum
stjórna, sérstaklega í Leimum, en
þær hafa hjálpað henni svo vel. Hún
biður guð að blessa ykkur öll.
Jóhauna Krisdnsdóttir
Guðmundur P. Ágústsson
HAUSTLJÓÐ
Haustið er komið með hrímkaldar dimmar nœtur,
hafaldan stynur þungan við lágan tangann.
Blómið mitt fagra í garðinum úti grœtur,
gott var í sumar að finna þess Ijúfa angan.
Og fuglarnir mzriír flugu til fjarlœgra stranda,
frostið nístir blómin sem öll eru dáin.
Og bjarkirnar ungu berar í garðinum standa;
blöðin horfin og fokin langt út í bláinn.
Óskum öllum
Garðbúum
og öðrum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári
HREPPSNEFND
GERÐAHREPPS
STAPAFELL
VARAHLUTADEILD
Tilvaldar jólagjafir
Barnabílstólar — Hleðslutæki
Sætaáklæði Bílaryksugur
Rafhlöðuryksugur
Hjólatjakkar í bílskúrinn
Veiðistangir og hjól
STAPAFELL
VARAHLUTADEILD
SÍMAR 11730 OG 12300
FAXI 331