Faxi - 01.12.1987, Page 64
Ragnar Orn
Pétursson
opnar
veitingastaðinn
Laufskálann
í Leifsstöð
Starfsfólk í Laufskála ásamt Ragnari Erni. I-'rá vinstri eru Sif Ilauksdóttir og Berglind S. Guðmundsdóttir
framreiðslustúlkur, kokkarnirMaría Bergvinsdóttir ogGuðmundur ValurSœvarsson ogsíðan RagnarÖrn
Pétursson.
Þann 17. október 1987 opnaði
dyr sínar nýr veitingastaður í
Leifsstöð. Þetta var kannski ekki í
frásögur færandi, ef ekki væri það
fyrir þá sök, að þessi staður -
LAUFSKÁLINN — er staður sem
mun geta þjónað öllum þeim sem
eiga erindi í flugstöðina, ekki að-
eins þá sem eru að leggja af stað í
flugferð til annarra landa. I gömlu
flugstöðinni var sú aðstaða vægast
sagt í lakara lagi, en nú er því ekki
lengur til að dreifa.
Það er hinn kunni veitingamað-
ur í Keflavík, Ragnar Öm Péturs-
son, sem rekur þennan stað. Er
hann jafnframt með alla aðra veit-
ingasölu í flugstöðinni, aðra en
mötuneyti þeirra sem þar starfa.
Veitingastaðurinn Laufskálinn er
staðsettur á jarðhæð í flugstöðinni
í e.k. útbyggingu sem eingöngu er
gerð úr gleri. Gestir staðarins sitja
umlyktir blómahafi og er það af
því sem nafn staðarins er dregið.
Umhverfið er hlýlegt, sæti em fyr-
ir um 80 manns og húsgögn em
mjög notaleg.
Við hjá Faxa heimsóttum Ragn-
ar einn daginn í Laufskálann og
áttum við hann örstutt spjall.
Hvaða þjónustu hyggst þú veita
hér, og á hvaða tímum er staður-
inn opinn?
Við munum reka staðinn sem al-
hliða matsölustað. í hádeginu
verður léttur matseðill, kaffi og
kökur síðdegis og viðhafnarmeiri
matseðill á kvöldin. Hér er opið
frá því kl. 11.00 á morgnana og til
kl. 22.00 á kvöldin.
Hvemig hafa undirtektar verið
það sem af er?
Mjög góðar tel ég, aðsókn vex
með hverjum degi.
Hverjir em það helst sem koma
til ykkar?
Það er nokkur greinilegt, að
mikið kemur af fólki sem er að
fylgja eða að taka á móti farþeg-
um. Til þess hefur fólk bestan
tíma um helgar, enda er aðsókn
mest þá. Einnig emm við tilbúnir
með mat handa farþegum, þegar
um seinkanir á flugi er að ræða.
Þannig verðum við að verða við-
búin því, að gefa á annaðhundrað
manns mat með skömmum fyrir-
vara. Aðrir gestir em starfsmenn í
flugstöðinni og fólk neðan úr bæ,
þú ert nú ekki nema nokkrar mín-
útur að renna hingað uppeftir.
Hvað er það margt starfsfólk
sem hér starfar?
í dag er það um 20, en verður
tvöfalt fleira, þegar mest verður í
sumar.
Við þökkum Ragnari spjallið og
óskum honum og starfsfólki hans
góðs gengis með þennan nýja stað
- Laufskálann í Leifsstöð.
HH
Málverkasýning í Grindavík
Laugardaginn 31. október s.l. opnaði Ragnar Lár málverkasýningu í Grindavík.
Sýndi hann 22 vatnslitamyndir, allar frá Grindavík og nágrenni sem hann hefur
málað á þessu ári. Þetta mun vera hans fyrsta sýning á Suðumesjum. Undir-
ritaður hefur lítið séð af myndum hans áður og getur því ekki talað um þróun
myndlistar hans. Það sem vakti hinsvegar athygli, var hve nett handbragð var á
teikningu sumra mynda hans - hann lét grasið spretta fyrir framan augum
manns - kannski er það ekki kölluð list — aðeins tækni. En það vekur athygli
og gleður augað. Oftast em vatnslitamyndir með nokkuð stóra litafleti og styrk-
ur myndarinnar byggist á samhæfingu þeirra og birtutúlkun. Leikmanni er sagt
að svo erfiðir séu vatnslitir í meðferð, að þar dugi ekkert föndur eða fínpúsning
— þar verði litir að vera þar sem þeir eru komnir og komu því fíngerð pensilför
Ragnars nokkuð á óvart.
Myndbygging Ragnars er yfirleitt góð og vom Grindavíkurmyndimar margar
ágætar, enda seldi hann meira en helming myndanna, þó sýningin stæði
aðeins í tvo daga og aðsókn var einnig mjög góð.
Ragnar Lár útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1933. Þá voru
fremstir í kennaraliði þar Sigurður Sigurðsson, listamálari, Ásmundur Sveins-
son, myndhöggvari, Sverrir Haraldsson, listamálari, Tbve Ólafsson, listmálari
og Bjöm Th. Björnsson, listfræðingur. Ragnar var lengi undir handleiðslu
Gunnars Gunnarssonar, listmálara og teiknara. Undirstaða að færni Ragnars
hefur því komið eftir mörgum leiðum.
Ragnar hefur tekið þátt í mörgum samsýningum og haldið nokkrar einka-
sýningar í Reykjavík og víða um landið ásamt einni sýningu í Árósum 1975.
Fyrstu sýninguna hélt hann í Ásmundarsal 1956. Myndir Ragnars Lárs
prýða því veggi í húsum listunnenda víða um land. J.T.
332 FAXI