Faxi - 01.12.1987, Side 66
HEILS URÆKT I VIÐMYND
FRAMHALD AF BLS. 305.
trúarskoðanir, trúarviðhorf og til-
beiðsla. Þegar þessir þættir eru
virkir og færa okkur viðunandi
svör, höfum við tilverutilgang sem
veitir lífi okkar akkerisfestu og
öryggi.
Þriðja tilverusviðið (og síðasta
starfsemisviðið) er siðgœðissviðið
sem fjallar um notkun starfsemi-
tækjanna í málefnum sem varða
hugmyndir um jafnrétti og réttlæti
og leit að reglum og formúlum íyrir
almennu siðgæði (Siðfræðin sem
fræðigrein tengist þessu sviði.) Hér
koma til starfsemiþættir eins og sið-
gæðisþrek, siðgæðisskynjun, sið-
gæðisdómgreind, samviska, sið-
gæðismat og siðgæðisleg hegðun.
Þegar þessir þættir eru virkir og
leiða hegðun okkar til uppbygging-
ar samfélaginu höfum við hreina
samvisku sem allir vita af eigin
reynslu að er mikilvægur hluti al-
hliða heilsu.
Þessi lýsing á starfsemisviðum
mannsins leiðir í ljós að persónu-
heilsa okkar byggist á mörgum þátt-
um. Dregnir saman í betri heildar-
mynd eru þeir þessir: líkamsheilsa,
geðheilsa, vitheilsa, vilheilsa,
starfsheilsa, lærdómsheilsa, félags-
heilsa, sjálfsvirðing, persónuleg
lífsskoðun, tilverutilgangur og
hrein samviska.
Persónurækt
Með þessa víðu mynd af alhliða
heilsu mannsins er fýrst hægt að fá
raunhæfa mynd af árangursríkri
heilsurækt. Sú mynd sem fram
kemur er töluvert marbrotnari en sú
mynd sem almenningur og að meira
eða minna leyti, þeir sem starfa við
heilbrigðisstörf hafa haft til þessa.
Ein af tilhneigingum mannsins er að
gera hlutina eins einfalda og mögu-
legt er, en sú óskhyggja breytir að
sjálfsögðu engu um eðli og gerð
raunveruleikans. Maðurinn er
margbrotið fyrirbæri og varðveisla
heilsunnar tekur til fleiri þátta en
við höfum fram að þessu gert okkur
grein fyrir. Ymsir hópar hafa á und-
anfömum áram leitast við að beina
athygli lærðra sem leikra að þeirri
hugmynd að ýmislegt fleira en lík-
amsrækt og næring ráði alhliða
heilsu mannsins. Þar má telja
fremsta í flokki þá sem hafa staðið
fyrir viðhorfi sem á enskri tungu
kallast „olistic health“ (heildar-
heilsuviðhorf).
Fyrsta boðorð heildarheilsuvið-
horfsins er að í heilsuvemd og
heilsurækt verði að taka inn í mynd-
ina alla þá þætti sem rannsóknir
sýna að snerti heilbrigði mannsins.
Byrjun þessarar greinar benti á
rannsóknir sem hafa dregið fram
suma af þessum þáttum. Þessir
þættir, og aðrir ónefndir hér, falla
inn í hin ýmsu starfsemisvið per-
sónukerfisins (sem er samantekt og
kerfisbundin niðurröðun af öllum
þ.eim starfsemiþáttum sem raunvís-
ar og fræðilegar rannsóknir hafa til-
einkað mannveranni og sem starf-
semisviðin sem lýst var að ofan
koma frá eins og nefnt var). Þegar
sérhvert starfsemisvið mannsins er
tekið með inn í myndina, kemur í
ljós að alhliða heilsurækt (persónu-
rækt) samanstendur af þessum
þáttum í líkamsrækt (líkams-
heilsa), tilfinningarækt (geðheilsa),
vitsmunarækt (vitheilsa), viljarækt
(vilheilsa), starfsrækt (starfsheilsa),
lærdómsrækt (?) (lærdómsheilsa),
félagsrækt (félagsheilsa), sjálfsrækt
(sjálfsvirðing), skoðanarækt (per-
sónuleg lífsskoðun), trúarrækt (til-
veratilgangur), og siðgæðisrækt
(hrein samviska).
Þessi skilgreining á persónurækt,
sem tekur inn í myndina öll starf-
semisvið persónunnar, er ekki ein-
ungis víðtæk heldur einnig raunhæf
því hún nær yfir fyrirbæri sem bæði
lækna- og sálfræðivísindin hafa átt í
erfiðleikum með að fella inn í hefð-
bundnar skilgreiningar á hugtakinu
heilsa. TVö dæmi um slík fyrirbæri
era þegar neikvæð sjálfsmynd níu
ára bams leiðir til lélegrar frammi-
stöðu í námi þó greindarmælingar
sýni að ekkert sé að vitsmunum,
eða þegar sektarkennd fullorðinnar
persónu leiðir til lystarleysis, ein-
vera og geðvefrænna sjúkdóma.
Heilsurækt hefur alltaf verið og
mun áfram verða eðlis síns vegna á
ábyrgð einstaklingsins. Enginn aðili
í þjóðfélaginu hefur eins mikið að
segja um heilsu einstaklingsins eins
og einstaklingurinn sjálfur. Þessi
staðreynd er trúlega mörgum ekki
nægilega ljós. Með tilkomu full-
kominnar tækni og tækja í allri heil-
brigðisþjónustu hneigjumst við til
að setja traust okkar, og jafnvel
ábyrgð, á mátt og megin heilbrigðis-
stéttarinnar í stað þess að leggja
áherslu á að temja okkur hollar og
fyrirbyggjandi lífsvenjur.
Framkvæðið að lífsvenjum sem
leiða til betri persónuheilsu verður
að koma frá okkur sjálfum. Þetta
hefur í reynd verið annað boðorð
heildarheilsuviðhorfsins sem vitn-
að var til að ofan og sem nýtur nú
vaxandi vinsælda meðal heilbrigð-
isstéttarinnar. En hvað er það þá
sem einstaklingurinn getur gert til
að stuðla að sinni eigin persónu-
heilsu? í hverju er persónurækt
fólgin?
Auk þess að leggja stöðuga
áherslu á að líkaminn fái þá nær-
ingu og þjálfun sem nauðsynleg er
til að viðhalda starfsemi hinna
ýmsu líffærakerfa, eru eftirtalin
atriði mikilvæg til að viðhalda per-
sónuheilsu í þeirri víðu merkingu
sem hér hefur verið til umræðu.
Aður en rætt er um tilfinninga-
rækt, vitsmunarækt og viljarækt, er
rétt aö geta þess, að skortur á viss-
um næringarefnum getur valdið líf-
efnafræðilegum truflunum í hinum
þremur ferlaháttum hugans (geði,
skilviti og vilja). Til dæmis er vitað
að skortur á B1 vítamíni getur leitt
til skilningstraflunar og hugleysis,
skortur á B6 vítamíni getu; leitt til
önunglyndis, skortur á B12 vítamíni
getur leitt til geðlægðar og truflunar
á starfsemi taugakerfisins yfirleitt,
skortur á biotin (annað B vítamín,
áður nefnt H vítamín) getur valdið
geðlægö og skortur á kalín getur
valdið önuglyndi.7
Tilfinningarækt felst m.a. í að
beina geðundinni inn á jákvæðari
brautir. Það er gert í gegnum geð-
hugsun sem er hæfileiki mannsins
til að stjórna, að vissu marki, inni-
haldi og stefnu geðundarinnar.
Margir láta eftir hinni seiðandi
freistingu að sökkva sér niður í
sorgir sfnar og gefa sig á vald sjálfs-
meðaumkunarinnar. Sumir hafa
kallað þetta krabbamein hugans.
Með því að forðast þessa tilhneig-
ingu sem allra mest, mun hugurinn
virka betur og markvissar að við-
fangsefnum stundarinnar og geð-
heilsan aukast.
Vitsmunarækt felst m.a. í að
þjálfa hraða og nákvæmni skynjun-
ar á því sem fyrir ber, þjálfa rökfestu
ognákvæmni íhugsun, raunhæfni í
viðhorfum og skýrleika í máli. Fljót-
fæmi og kæraleysi í vithugsun eru
e.t.v. skæðustu óvinir skilvitsins og
reynast okkur oft dýrkeypt.
Viljarækt felst í að þjálfa hugann í
að beina orku sinni að knýjandi
verkefnum og að taka ákvarðanir.
Ákvörðunartaka er að líkindum eitt
af erfiðustu hugarverkefnum
"Vellíóan hvernig
sem viórar!
Sendum Suðurnesjamönnum öllum
bestu óskir um gleðilega jólahátíð
gott og farsælt nýtt ár.
Þökkum gott samstarf á liðnum
árum
GRÁGÁS HF.
334 FAXI