Faxi - 01.12.1987, Side 69
eigin reynsla, vel hugsaðar og út-
færðar rannsóknir og vel staðfestar
meginreglur eru einu miðin sem völ
er á.
TVúarrækt felst í að vita um,
byggja upp og staðfesta með sér eig-
in stöðu varðandi hugmyndir um
uppruna, tilgang og endanlegt hlut-
skipti mannlegrar tilveru og um til-
veru guðlegra vera og afla. Margir
leiða einnig þennan þátt hjá sér,
einnig persónuheilsu sinni til tjóns.
Þessir tveir síðustu persónuræktar-
þættir eru skyldir. Þar sem sérhvert
okkar lifir og hrærist í tilveru sem.er
m.a. þeim takmörkum háð, að eng-
in staðfest vitneskja liggur fyrir um
upphaf hennar, tilgang og takmark,
alheimslega séð, býður það aðeins
upp á eina útgönguleið og það er að
aðhyllast og tileinka sér einhverja
kenningu um þessa hluti sem nú
eru orðnar býsna margar. Eins og í
skoðanarækt, hneigjumst við til að
aðhyllast það sem aðrir telja réttast
í þessum málum, en hæsta og raun-
hæfasta stig trúarræktar er að móta
með sér eigin mælikvarða. Eini
raunhæfi mælikvarðinn sem til er í
þeim efnum er að bera kenningarn-
ar sem fyrir liggja saman við líf-
fræðilegar, náttúrufræðilegar og
sögulegar staðreyndir.
Siðgæðisrækt felst í að staðfesta
með sér viðhorf, meginreglur og
ásetning um að virða persónufrelsi,
tilfinningar, einkalíf og eignir ann-
arra. Kröfur tilverunnar og eðli
mannlegra samskipta hrista upp í
okkur til slíkrar staðfestingar af og
til. Þegar allt kemur til alls, verður
siðgæðisrækt að teljast æðsti þáttur
persónuræktar þar sem velfamaður
í mannlegu samfélagi er óvéfengjan-
lega æðsta markmið mannlegrar til-
veru. Kærleikur og góðvild skipar
æðsta sess í flestum siðareglum
hinna ýmsu trúarbragða, og þá sér-
staklega kristninnar, en kærleikur
er ekki annað en að veita náungan-
um sömu forréttindi og við viljum
sjálf hafa. Að fylgja kærleikshug-
myndinni í formi gullnu reglunnar-
er því trúlega besta siðgæðisrækt
sem völ er á.
Persónuj afn vægi
Ein af þeim hugmyndum sem
mikið er haldið á lofti í dag varðandi
heilsurækt er að vera í jafnvægi.
Þegar þetta hugtak er notað í tengsl-
um við persónuheilsu hittir það
beint í mark, því að miðkjarni per-
sónuheilsu, eins og hún er skil-
greind og útfærð í þessari grein, er
einmittpersónujafnvægi. Þettahug-
tak (að vera í jafnvægi) nær innsta
kjarna skilgreiningarinnar á hug-
takinu persónuheilsa, því að þegar
við höfum líkamsheilsu, geðheilsu,
vitheilsu, vilheilsu, starfsheilsu,
FASTEIGNASALAN
HAFNARGÖTU 27, KEFLAVÍK,
SÍMI 11420.
Höfum á söluskrá
glæsilegar 2ja og 3ja
herb. íbúðir vío
Heiðarholt, sem seljast
fullfrágengnar eða
tilbúnar unair tréverk.
Seljandi Húsagerðin h.f.,
Keflavfk.
Allar nánari uppl. eru
gefnar á skrifstofunni.
TILKYNNING
KEFLAVÍK - GRINDAVÍK
NJARÐVÍK - GULLBRINGUSÝSLA
Samkvœmt lögum nr. 46/1977 og reglugerð
nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt að
selja skotelda eða annað þeim skylt,
nema haía til þess leyíi lögreglustjóra.
Peir sem hyggja á sölu íramangreinds
varnings, sendi umsóknir sínar til yíirlög-
regluþjóns í Keílavík, eigi síðar en 18.
desember 1987. Að öðmm kosti verða um-
sóknir ekki teknar til greina.
Umsóknareyðublöð íást hjá yíirlögreglu-
þjóni á lögreglustöðinni í Keílavík og hjá
aðalvarðstjóra á lögreglustöðinni í Grinda-
vík.
Lögreglustjórinn í Keflavik, Grindavik, NjarÖvík
og GuIIbringusýslu.
fFjölbrautaskóli
Suðurnesja
Meistaraskóli
Meistaraskóli byggingamanna (1.
önn) verður starfræktur á vorönn
1988 ef næg þátttaka fæst.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu
skólans fyrir 10. desember n.k. ásamt
staðfestu Ijósriti af sveinsprófi.
Skólameistari
FAXI 337