Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1987, Page 69

Faxi - 01.12.1987, Page 69
eigin reynsla, vel hugsaðar og út- færðar rannsóknir og vel staðfestar meginreglur eru einu miðin sem völ er á. TVúarrækt felst í að vita um, byggja upp og staðfesta með sér eig- in stöðu varðandi hugmyndir um uppruna, tilgang og endanlegt hlut- skipti mannlegrar tilveru og um til- veru guðlegra vera og afla. Margir leiða einnig þennan þátt hjá sér, einnig persónuheilsu sinni til tjóns. Þessir tveir síðustu persónuræktar- þættir eru skyldir. Þar sem sérhvert okkar lifir og hrærist í tilveru sem.er m.a. þeim takmörkum háð, að eng- in staðfest vitneskja liggur fyrir um upphaf hennar, tilgang og takmark, alheimslega séð, býður það aðeins upp á eina útgönguleið og það er að aðhyllast og tileinka sér einhverja kenningu um þessa hluti sem nú eru orðnar býsna margar. Eins og í skoðanarækt, hneigjumst við til að aðhyllast það sem aðrir telja réttast í þessum málum, en hæsta og raun- hæfasta stig trúarræktar er að móta með sér eigin mælikvarða. Eini raunhæfi mælikvarðinn sem til er í þeim efnum er að bera kenningarn- ar sem fyrir liggja saman við líf- fræðilegar, náttúrufræðilegar og sögulegar staðreyndir. Siðgæðisrækt felst í að staðfesta með sér viðhorf, meginreglur og ásetning um að virða persónufrelsi, tilfinningar, einkalíf og eignir ann- arra. Kröfur tilverunnar og eðli mannlegra samskipta hrista upp í okkur til slíkrar staðfestingar af og til. Þegar allt kemur til alls, verður siðgæðisrækt að teljast æðsti þáttur persónuræktar þar sem velfamaður í mannlegu samfélagi er óvéfengjan- lega æðsta markmið mannlegrar til- veru. Kærleikur og góðvild skipar æðsta sess í flestum siðareglum hinna ýmsu trúarbragða, og þá sér- staklega kristninnar, en kærleikur er ekki annað en að veita náungan- um sömu forréttindi og við viljum sjálf hafa. Að fylgja kærleikshug- myndinni í formi gullnu reglunnar- er því trúlega besta siðgæðisrækt sem völ er á. Persónuj afn vægi Ein af þeim hugmyndum sem mikið er haldið á lofti í dag varðandi heilsurækt er að vera í jafnvægi. Þegar þetta hugtak er notað í tengsl- um við persónuheilsu hittir það beint í mark, því að miðkjarni per- sónuheilsu, eins og hún er skil- greind og útfærð í þessari grein, er einmittpersónujafnvægi. Þettahug- tak (að vera í jafnvægi) nær innsta kjarna skilgreiningarinnar á hug- takinu persónuheilsa, því að þegar við höfum líkamsheilsu, geðheilsu, vitheilsu, vilheilsu, starfsheilsu, FASTEIGNASALAN HAFNARGÖTU 27, KEFLAVÍK, SÍMI 11420. Höfum á söluskrá glæsilegar 2ja og 3ja herb. íbúðir vío Heiðarholt, sem seljast fullfrágengnar eða tilbúnar unair tréverk. Seljandi Húsagerðin h.f., Keflavfk. Allar nánari uppl. eru gefnar á skrifstofunni. TILKYNNING KEFLAVÍK - GRINDAVÍK NJARÐVÍK - GULLBRINGUSÝSLA Samkvœmt lögum nr. 46/1977 og reglugerð nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt að selja skotelda eða annað þeim skylt, nema haía til þess leyíi lögreglustjóra. Peir sem hyggja á sölu íramangreinds varnings, sendi umsóknir sínar til yíirlög- regluþjóns í Keílavík, eigi síðar en 18. desember 1987. Að öðmm kosti verða um- sóknir ekki teknar til greina. Umsóknareyðublöð íást hjá yíirlögreglu- þjóni á lögreglustöðinni í Keílavík og hjá aðalvarðstjóra á lögreglustöðinni í Grinda- vík. Lögreglustjórinn í Keflavik, Grindavik, NjarÖvík og GuIIbringusýslu. fFjölbrautaskóli Suðurnesja Meistaraskóli Meistaraskóli byggingamanna (1. önn) verður starfræktur á vorönn 1988 ef næg þátttaka fæst. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans fyrir 10. desember n.k. ásamt staðfestu Ijósriti af sveinsprófi. Skólameistari FAXI 337

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.