Faxi - 01.12.1987, Page 77
færri. Fyrstur var Hákon Tómasson
í Nýlendu og gegndi hann því starfi
þar til hann fluttist brott árið 1919.
Hafði hann þá verið meðhjálpari við
báðar kirkjur Ketils í samtals 40 ár.
Við starfinu tók Guðmundur Guð-
mundsson í Nesjum og gegndi því
til ársins 1940. Þá tók faðir minn,
Gísli G. Guðmundsson á Hvalsnesi,
við starfinu og gegndi því þar til
hann lést 1979 eða í 39 ár. Á eftir
honum kom Guðmundur Guð-
mundsson í Bala til ársins 1986 og
núverandi meðhjálpari er Sigurður
Bjamason í Sandgerði.
Organistar við Hvalsneskirkju em
orðnir 12 og em í þessari röð: Jón
Laxdal tónskáld, þá verslunar-
maður í Keflavík. Jón Einarsson í
Endagerði, sem mun hafa lært á
hljóðfæri til að taka að sér þetta
starf. Erlendur Hákonarson á Staf-
nesi. Þorgeir Pálsson verzlunar-
maður í Keflavík, síðar fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík. Sigur-
björg Einarsdóttir í Endagerði, syst-
ir áðumefnds Jóns Einarssonar.
Þorlákur Benediktsson í Akurhús-
um í Garði. Allir þessir störfuðu
fram til ársins 1918 er móðurbróðir
minn Magnús Pálsson á Hvalsnesi
tók við starfinu og gegndi því til
ársins 1962 eða í 44 ár. Á eftir hon-
um kom Vilhelm Ellefsen, Keflavík,
Bjarni Gíslason, Keflavík, Þor-
valdur Bjömsson, Garðabæ, Þor-
steinn Gunnarsson, Reykjavík og
tólfti í röðinni er núverandi organ-
isti, Frank Herlufsen.
Þó organistamir hafi alltaf haft
með sér ágætt söngfólk var kirkju-
kór Hvalsneskirkju ekki formlega
stofnaður fyrr en 1946.
Hringjarar við kirkjuna eru fæstir.
Hákon Tómasson í Nýlendu var
fyrsti hringjarinn og gegndi því jafn-
lengi og meðhjálparastarfinu eða til
1919. Var til þess tekið hvað hring-
ing Hákonar var taktfögur. Næsti
hringjari var Jón Norðfjörð Tómas-
son bróðir Hákonar þar til hann
flutti burtu í árslok 1929. Þá tók við
starfinu Júlíus Helgason í Burts-
húsum og gegndi því svo til óslitið til
æviloka 1948. Síðan hefur ekki ver-
ið fastur maður í starfi hringjara en
eftirtaldir hafa unnið verkið: Gísli
Guðmundsson, Hvalsnesi. Sveinn
Sveinsson, verkið: Gísli Guð-
mundsson, Hvalsnesi. Sveinn
Sveinsson, Hvalsnesi. Hákon
Magnússon, Nýlendu og fleiri hafa
gripið inn í.
Og þama stendur Guðsmusterið
enn með sömu reisn og fyrr eftir 100
ár, eina öld. Það skal þakkað fólk-
inu, sem ræktar það af alúð og ein-
lægni í orði og verki.
Eg hef nú minnst nokkurra þátta í
sögu kirkjunnar á þeim tíma, en
margt mætti fleira segja. Ég á marg-
ar góðar minningar um þetta bless-
aða hús frá uppvaxtarárum mínum
á Hvalsnesi og ber þar hæst sam-
starf þeirra þriggja, pabba, Gísla G.
Guðmundssonar, frænda, Magnús-
ar Pálssonar og sr. Guðmundar
Guðmundssonar. Þeir eiga það líka
sameiginlegt að hafa þjónað kirkj-
unni lengur öðrum, hver í sínu
starfi.
Ég er þakklát fýrir að kirkjan var
svo stór þáttur í lífi mínu og ég er
þakklát foreldrum mínum fyrir að
kenna mér að bera virðingu fyrir
henni og hennar starfi. Ég óska
söfnuðinum til hamingju með
afmælisbamið og bið þess að meðan
klukkur Hvalsneskirkju kalla okk-
ur til tíða fáum við þar enn að njóta
þess friðar sem ávallt hefur ein-
kennt þetta Guðshús. Ég leyfi mér
að gera eitt vers sr. Hallgríms að
lokaorðum mínum, en hann segir:
Þd þú gengiir í Guðshús inn
gœt þess vel, sál mín fróma,
hceð þú þar ekki Herrann þinn
með hegðun líkamans tóma.
Beygðu holdsins og hjartans kné,
heit bœn þín ástarkveðja sé,
hrœsnin mun sízt þér sóma.
Iðunn Gróa Gísladóttir
frá Hvalsnesi
Grein þessi er erindi flutt á afmæl-
ishátíð kirkjunnar 1. nóvember síð-
astliðinn. En þar sem það kemur
fyrir augu þín, lesandi góður, í jóla-
blaði Faxa sendi ég þér innilegar
jólakveðjur með eftirfarandi hug-
leiðingum. Nokkru eftir að það var
flutt heyrði ég bam segja: „Jóla-
sveinninn er kominn í gluggann á
Rammagerðinni." Þetta er fyrsti
jólaboðberi borgarbamanna, datt
mér í hug. Mér varð hugsað til
æskuáranna heima á Hvalsnesi.
Með aðventunni byrjaði frændi að
æfa jólasálmana heima í stofu. Það
var okkar jólaboðberi. Jólin færð-
ust nær. Konumar í kvenfélaginu
komu til sinnar árlegu hreingem-
ingaríkirkjunni. Mérer minnistætt
hve ákafar þær vom. Heitar og rjóð-
ar sátu þær við kertaljós og olíu-
lampa í herberginu inn af eldhúsinu
heima við að fægja ljósahálmana og
stjakana úr kirkjunni. Allt átti að
vera hreint og fágað um jólin. Svo
var það við aftansöng á aðfanga-
dagskvöld 1958. Kirkjan var ný-
uppgerð, raflýst og máluð svo fagur-
lega að það var eins og kristmynd
altaristöflunnar á gaflinum væri
ljóslifandi. Kristalsljósiníkórkirkj-
unnar glitmðu svo minnti á stjömur
himingeimsins. Þar hugsa ég að
mörg okkar viðstaddra höfum kom-
ist næst Betlehem þegar við hlýdd-
um á jólaguðspjallið og sungum
saman ,,í Betlehem er bam oss
fætt“ og „Heims um ból, helg em
jól“. Guð gefi ykkur öllum gleðilega
jólahátíð.
I.G.G.
Suðumesjamenn
(Síebiíeg \6l
Verzlunarmannafélag
Suðumesja
GLEÐILEG JÓL!
Gott og farsælt ár!
Þökkum viðskiptin áliðna árinu.
Samvinnubankinn -útibú
Samvinnutryggingar - útibú
Keflavík
FAXI 345