Faxi - 01.12.1987, Side 79
lega grein, sem Sveinn Már Gunnarsson
læknir skrifar, um böm með MBD (væg
truflun á heilastarfsemi) og ijallað er um
efhið KYNLÍF OG ÞROSKAHEFTIR.
Það gera þær Björk Jónsdóttir og Sigríð-
ur Bragadóttir, kennarar, sem sóttu mál-
þing um þetta efni til Svíþjóðar á síðast
liðnu ári. Heftið hefur að geyma efni AÐ
NORÐAN þar sem fólk er tekið tali og
ljósi varpað á ólíkar kringumstæður
þess. Einnig birtast áhugaverðar frá-
sagnir nokkurra þeira er sóttu NFPU
ÞINGIÐ í Uppsölum í sumar og sagt frá
ÓLYMPÍULEIKUM ÞROSKAHEFTA.
Þá birtist í ritinu bréf frá Margaretu
Mikkelsen, yfirlækni á Kennedy stofn-
uninni í Bandaríkjunum, þar sem hún
svarar spumingunni: GETA MONGÓL-
ÍTAR EIGNAST BÖRN?
Fastir pistlar em á sínum stað, svo sem
bókakynning og fréttir af starfi samtak-
anna. í þeim síðamefnda er tæpt á því
helsta sem Landssamtökin Þroskahjálp
vinna að hverju sinni.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út fimm
sinnum á þessu ári. Það er sent áskrif-
endum og er til sölu á skrifstofu Þroska-
hjálpar að Nóatúni 17, 105 Reykjavfk.
Ritið er einnig hægt að fá keypt í bóka-
búðum og á blaðsölustöðum.
Áskriftarsíminn er 91-29901.
Ragnar Marinósson a/hend/r Ragnarí Fríðríkssyni gullmerki ÍBK fyrir 25 ára starf
innan bandalagsins.
TÍMARITIÐ
ÞROSKAHJÁLP
Tímaritið Þroskahjálp, 4. tölublað
1987, er komið út. Utgefandi er Lands-
samtökin Þroskahjálp.
Að venju em í ritinu ýmsar greinar,
viðtöl, upplýsingar og fróðleikur um
málefni fatlaðra.
Sem dæmi um efni má nefna mjög ítar-
32.
ÁRSÞING
ÍBK
Nýlga var haldið 32. ársþing ÍBK. í
skýrslum þeim sem lagðar vora fram á
þinginu kemur fram, að mjög mikið starf
hefur átt sér stað á árinu. Mjög góður
árangur náðist í ýmsum greinum og m.a.
átti ÍBK íslandsmeistara í yngri ílokkum
í körfuknattleik og knattspyrnu. Á þing-
inu var útnefndur íþmttamaöur Keíla-
víkur og varð fyrir valinu frjálsíþrótta-
maðurinn Már Hermannsson.
Á þinginu var samþykkt, að IBK leggði
fram 'A af kostnaði við byggingu nýs
íþróttasalar við íþróttahús Keflavíkur,
alls kr. 6,6 milljónir. Þá vom eftirtaldir
menn heiðraðir fyrir störi' í þágu íþrótta-
hreyfingarinnar í Keflavík. Gullmerki
hlaut Ragnar Friðriksson, en brons-
merki hlutu Skúli Skúlason, Hólmgeir
Hólmgeirsson, Marel Sigurðsson og
Hermann Friðriksson. Ragnar Marinós-
son var endurkjörinn formaður IBK.
ÍÞRÓTTABANDALAG
KEFLAVÍKUR
Iþróttamaður Keflavíkur 1987 — Már Hermannsson.
TÓMBÓLA í MYLLUBAKKASKÓLA
Dyrnar að MyUubakkaskóla
áttu að opnast kl. tvö. Þá
hafði mikil biðröd myndast
sem eins og myndin sýnir
ndði langt út á götu.
Fyrsti ,.vtðskiptavmurmn"
afgreiddur. Margt eigulegra
muna var á tombólunni.
Vonandi fékk þessi unga
stúlka eitthvað gagnlegt fyrir
sinn snúð.
D-álmusamtökin gáfú nemendum
viðurkenningu fyrir veittan stuðning.
Þann 14. nóvember sl. var haldin hin árlega tombóla
nemendci Myllubakkaskóla. Ad þessu sinni var dkveðið
að ágóðinn af tombólunni skyldi renna til styrktar bygg-
ingu hinnar svonefndrar D-álmu Sjúkrahúss Keflavlkur.
Nemendur skóluns höfðu gengið í hús dagana á undan
ogsafnaðýmis konar munum. Vel var tekið á móti börn-
unum, m.a. voru margir sem gáfu peninga í stað muna.
Þannig safnaðist um tuttugu þúsund krónur. Áhuginn
fyrir tombólunni var sannast sagna gífurlegur. Ixmgar
biðraðir mynduðust ogallt seldist upp. Það voru því stolt
börn sem gátu afhent kr. 87.117 aðstandendum D-álm-
unnar. Það var mjög ánœgjulegt að fylgjast með, hversu
mikinn áhuga nemendumir sýndu í þessu góðgerðarstarfi.
Þökk sé þeim.