Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1987, Page 79

Faxi - 01.12.1987, Page 79
lega grein, sem Sveinn Már Gunnarsson læknir skrifar, um böm með MBD (væg truflun á heilastarfsemi) og ijallað er um efhið KYNLÍF OG ÞROSKAHEFTIR. Það gera þær Björk Jónsdóttir og Sigríð- ur Bragadóttir, kennarar, sem sóttu mál- þing um þetta efni til Svíþjóðar á síðast liðnu ári. Heftið hefur að geyma efni AÐ NORÐAN þar sem fólk er tekið tali og ljósi varpað á ólíkar kringumstæður þess. Einnig birtast áhugaverðar frá- sagnir nokkurra þeira er sóttu NFPU ÞINGIÐ í Uppsölum í sumar og sagt frá ÓLYMPÍULEIKUM ÞROSKAHEFTA. Þá birtist í ritinu bréf frá Margaretu Mikkelsen, yfirlækni á Kennedy stofn- uninni í Bandaríkjunum, þar sem hún svarar spumingunni: GETA MONGÓL- ÍTAR EIGNAST BÖRN? Fastir pistlar em á sínum stað, svo sem bókakynning og fréttir af starfi samtak- anna. í þeim síðamefnda er tæpt á því helsta sem Landssamtökin Þroskahjálp vinna að hverju sinni. Tímaritið Þroskahjálp kemur út fimm sinnum á þessu ári. Það er sent áskrif- endum og er til sölu á skrifstofu Þroska- hjálpar að Nóatúni 17, 105 Reykjavfk. Ritið er einnig hægt að fá keypt í bóka- búðum og á blaðsölustöðum. Áskriftarsíminn er 91-29901. Ragnar Marinósson a/hend/r Ragnarí Fríðríkssyni gullmerki ÍBK fyrir 25 ára starf innan bandalagsins. TÍMARITIÐ ÞROSKAHJÁLP Tímaritið Þroskahjálp, 4. tölublað 1987, er komið út. Utgefandi er Lands- samtökin Þroskahjálp. Að venju em í ritinu ýmsar greinar, viðtöl, upplýsingar og fróðleikur um málefni fatlaðra. Sem dæmi um efni má nefna mjög ítar- 32. ÁRSÞING ÍBK Nýlga var haldið 32. ársþing ÍBK. í skýrslum þeim sem lagðar vora fram á þinginu kemur fram, að mjög mikið starf hefur átt sér stað á árinu. Mjög góður árangur náðist í ýmsum greinum og m.a. átti ÍBK íslandsmeistara í yngri ílokkum í körfuknattleik og knattspyrnu. Á þing- inu var útnefndur íþmttamaöur Keíla- víkur og varð fyrir valinu frjálsíþrótta- maðurinn Már Hermannsson. Á þinginu var samþykkt, að IBK leggði fram 'A af kostnaði við byggingu nýs íþróttasalar við íþróttahús Keflavíkur, alls kr. 6,6 milljónir. Þá vom eftirtaldir menn heiðraðir fyrir störi' í þágu íþrótta- hreyfingarinnar í Keflavík. Gullmerki hlaut Ragnar Friðriksson, en brons- merki hlutu Skúli Skúlason, Hólmgeir Hólmgeirsson, Marel Sigurðsson og Hermann Friðriksson. Ragnar Marinós- son var endurkjörinn formaður IBK. ÍÞRÓTTABANDALAG KEFLAVÍKUR Iþróttamaður Keflavíkur 1987 — Már Hermannsson. TÓMBÓLA í MYLLUBAKKASKÓLA Dyrnar að MyUubakkaskóla áttu að opnast kl. tvö. Þá hafði mikil biðröd myndast sem eins og myndin sýnir ndði langt út á götu. Fyrsti ,.vtðskiptavmurmn" afgreiddur. Margt eigulegra muna var á tombólunni. Vonandi fékk þessi unga stúlka eitthvað gagnlegt fyrir sinn snúð. D-álmusamtökin gáfú nemendum viðurkenningu fyrir veittan stuðning. Þann 14. nóvember sl. var haldin hin árlega tombóla nemendci Myllubakkaskóla. Ad þessu sinni var dkveðið að ágóðinn af tombólunni skyldi renna til styrktar bygg- ingu hinnar svonefndrar D-álmu Sjúkrahúss Keflavlkur. Nemendur skóluns höfðu gengið í hús dagana á undan ogsafnaðýmis konar munum. Vel var tekið á móti börn- unum, m.a. voru margir sem gáfu peninga í stað muna. Þannig safnaðist um tuttugu þúsund krónur. Áhuginn fyrir tombólunni var sannast sagna gífurlegur. Ixmgar biðraðir mynduðust ogallt seldist upp. Það voru því stolt börn sem gátu afhent kr. 87.117 aðstandendum D-álm- unnar. Það var mjög ánœgjulegt að fylgjast með, hversu mikinn áhuga nemendumir sýndu í þessu góðgerðarstarfi. Þökk sé þeim.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.