Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1987, Síða 80

Faxi - 01.12.1987, Síða 80
Sólarsýn í skammdeginu Þegar þessar línur eru skrifaðar hefur Vetur konungur boðað komu sína á drifhvítum fjallatindum. Þó er hitastig hér á suðvesturlandi oft- ast ótrúlega hátt miðað við árstíma. Það fer varla hjá því, að menn renni huganum til liðins sumars sem var bæði gjöfult og nær einstakt að tíðarfari, að gamlir og fróðir menn telja. Flestir dagar voru bjart- ir og sólríkir og dugðu vel til far- sælla starfa hjá annríkisfólki. Og sumamætumar vom oftast hlýjar og bjartar sem dagur væri. Þær em meðal þess sem við íbúar norðurs- ins dáumst að, en suðrænar þjóðir undrast og öfúnda okkur af. Þrátt fyrir langan sólargang þurf- um við sjaldan að leita afdreps í svalandi skugga. Við þolum vel blessaða sólargeislana, sem færa okkur orku og hreysti - þrek til að mæta löngum skuggum skamm- degisins. Við þessa hugrenningu má ekki gleyma golfstraumnum sem umlykur landið og virkar sem hitajafnari (rekulator) — vermir að vetri en veitir svalar að sumri. Þessi umfangsmiklu skil milli sumars og vetrar em áhugaverð og stórbrotin. Áður en tækni kom til sögu og enn var lifað fmmstæðu lífi við sjávarsíðuna og í sveitum lands- ins, var kunnátta búenda á að hag- nýta sér þessi sérkenni nauðsynleg og skipti oft sköpum um búskap og afkomu. Það var til dæmis sagt um Hrafna-Flóka, þann er gaf landinu nafn, er hann kom fyrst til landsins um 870 og sat veturlangt í Vatns- firði, að hann „Uggði ekki að sér;“ fiskur var svo mikill í vötnum, ám og fjörðum og veiðináttúra svo rík í fari Flóka og manna hans, að þeim sást yfir að afla búfénaði, er Húsakynni að Krumshólum. ©3ka öííum uibékiptauinum gíebiíegra ióía og farðœíbar á komanbi ári F m _ • * mmmm \ TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 — Keflavík - Sími 3320 | þeir fluttu með sér frá Noregi, hey- forða til vetrarins. Féll því allur bú- peningur er fram á vetur kom og varð vistin í Vatnsfirði þungbær og einhæf að matföngum. Er voraði gekk Hrafna-Flóki upp á hátt fjall og sá til norðurs hafís mikinn inn í fjörðum. Þar af kom nafngiftin ísa- Qörður og svo Island. Nú sakna menn fiskjar í fjörðum og ám. Allmikil fiskirækt hefur þó bætt nokkuð úr ofveiðivandanum. Skráð laxveiði hefur farið vaxandi á seinustu árum. Laxveiðiár okkar eru mjög eftirsóttar af erlendum veiðimönniun og eru £, $ og Mörk harðir keppinautar litlu krónunnar okkar um veiðileyfin. Koma sport- veiðimenn jafnvel fljúgandi í einka- þotum um langa vegu í gósenveiðiár okkar og borga leyfin dýrum dóm- um. Við þá keppa íslenski sport- veiðimenn, sumir svo fengsælir á , ,þann stóra,“ að þjóðsögustíl nálg- ast. Hinsvegar eru svo netaveiði- bændur sem eru svo hugfangnir af laxveiðiskapnum, að þeirra hey- hlöður eru jafn tómar að hausti svo sem þær voru að vori, og færi þeim eins og Flóka forðum, ef ekki væru nú aðrir bændur sem öfluðu heyja og framleiddu kjöt og mjólkurvörur. Á Reykjanesskaga fellur hvergi lækjarspræna til sjávar. Hinsvegar eru margir drjúgir laxveiðimenn á Suðumesjum. Það kann að hafa verið kveikjan að því, að 30 Rótarý- félagar mynduðu hlutafélag um kaup á landnámsjörðinni Kmms- hólar, sem er í landnámi Skalla- gríms Kvöld-Úlfssonar. Skallagrím- ur kom til landsins á tveimur skip- um. Öðru stýrði hann sjálfur, en faðir hans Kvöld-Úlfur hinu, þar til hann lést, sennilega er þeir voru komnir inn í Faxaflóa, þá tók Grím- ur Þórisson þar við stjóm. Er þeir komu fyrir Reykjanes urðu skipin viðskila. Skallagrímur tók land við Knarrames á Mýmm en Grímur hélt inn Borgarfjörð, upp Hvítá sem féll fram með vaxandi straumþunga er ofar dró. Til vesturs blasti við víð- lendi, grösugt og fagurt. Lítil lygn og djúp á liðaðist vestur mýrlendið frá stórfljótinu. Fjær sá í dulúðugar klettaborgir sem gáfu fyrirheit um vissa vemd. Þangað hélt Grímur skipi sínu. Hann lét draga það á land að fyrsta klettavegg er stendur fáa metra frá ánni og heitir síðan Skiphóll. Á þessi heitir Gufuá og er nafngift- in líklega tilkomin vegna vetrarsetu Ketils Gufu við ána, en hann fór víða um suðvesturland og festist Gufunafnið við nokkra dvalarstaði hans, m.a. Gufuskálar í Leim. Skallagrímur fól leysingja sínum, er nefndur var Kmmur, vörslu skipsins við Skiphól og gaf honum þar land undir bú. Þar vom slægjur góðar að fomum hætti og búpening- ur átti sældardaga í skjóli ijölbreyti- legra klettaborga (álfhóla) sem enn hafa mikið aðdráttarafl. Hinsvegar hentar jörðin ekki vel til nútíma bú- skapar. Umhverfisfegurð, nokkur veiði- von í Gufuá og góð staðsetning réði úrslitum, er Rótarý Keflvíkingar völdu Kmmshóla sem sveitasetur sitt. Því verður varla mótmælt, að 348 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.