Faxi - 01.01.1989, Qupperneq 4
10 0 Ál * A
A F M Æ L 1
STÚKAN FRAMFÖR NR. 6
Þann 15. janúar s.l. var haldinn fagnaður í samkomu-
húsinu f Garði til að minnast þess, að eitthundrað ár
voru liðin frá stofnun stúkunnar Framför nr. 6. Til sam-
komunnar var boðið mörgum góðum gestum, þar á með-
al fulltrúum starfandi félaga í Garðinum, en þau eru nú
alls ellefu talsins. Kjartan Asgeirsson umboðsmaður
bauð gesti velkomna en sfðan var ýmislegt gert til
skemmtunar og gestum bomar veitingar. Stúkunni bár-
ust margar gjafir og skal þeirra hér að nokkm getið:
Gerðahreppur færði stúkunni kr. 30.000, Stórstúka ís-
lands gaf kr. 25.000, og hjónin Jónas Guðmundsson og
Björg Ámadóttir gáfu kr. 20.000.
Félögin í Garðinum færðu gestgjöfunum ýmsar góðar
gjafir. Frá stúkunni Isafold nr. 1 á Akureyri kom mjög
skemmtileg gjöf. Var það mynd af svonefhdu Friðbjarn-
arhúsi á Akureyri. í því húsi bjó Friðbjöm Jónsson,
bóksali, en f þessu húsi var stúkan ísafold nr. 1 stofnuð
þann 10. janúar 1884 og var það jafnframt fyrsta stúkan
sem stofnuð var á íslandi.
Sigrún Oddsdóttir flutti í afmælisveislunni stutta
samantekt um stofnun og störf stúkunnar og fer erindi
Sigrúnar hér á eftir.
Stúkan Framför nr. 6 var stofnuð að stofnun hennar var séra Jens
16. janúar 1889. Aðal hvatamaður Pálsson, sem þjónaði Útskála-
Finnhorgi fíjörnsson, oddviti Ocrdahrvpps, a/hcndir ufmœlisgjöf frú Ocröuhrcppi.
NÝR EAXAFÉLAGI
HJÁLMAR STEFÁNSSON
Hjálmar Stefánsson er fœddur 21. nóv. 1934 á Siglufirdi,
nœst elstur fjögurra systkina. Lœrdi bifvélavirkjun á Akur-
eyri og bjóþar í tœp 5ár. Var um tfu ára skeið skrifstofustjóri
hjá Kaupfélagi Siglfirðinga ogjafnframt umboðsmaður Sam-
vinnutrygginga á staðnum og vará þessum árum mjög virk-
ur í félags- og íþróttamálum.
Auk þessa bjó fjölskyldan rúm tvö ár í Danmörku og var
Hjálmar þá starfsmaður ,,Dansk Esso“ í Kalundborg.
Hjálmar kom til Keflavíkur 1971, og hófþá störfhjá Birgi
tíuðnasyni, hann varð forstöðumaður Samvinnutrygginga
1972 og útibússtjóri Samvinnubankans í Keflavík 1979.
Hjálmar er kvœntur Höllu Haraldsdóttur listakonu, sem
einnig er Siglfirdingur og eiga þau þrjá syni: Harald, hljóð-
fœrastiUara búsettan í Danmörku, Þórarinn, flugmann hjá
Flugleiðum hf, og Stefán, nema í lœknisfrceði við Háskóla
íslands.
4 FAXI