Faxi - 01.01.1989, Síða 9
Til fróðleiks og gamans fyrir les-
^ndur Faxa ætla ég í stuttu máli að
fjalla um Evrópukeppni atvinnu-
manna í golfi. Keppni þessi saman-
stendur af 35 mótum í karlaflokki
°g nokkuð færri í kvennaflokki.
Golf hefur átt sívaxandi vinsæld-
um að fagna á undanförnum árum
un óvíða hafa vinsældir aukist jafn
mikið og í Evrópu. Þess sjást reynd-
ar ágætlega merki hér á landi, því
fjöldi þeirra sem stunda þessa
skemmtilegu íþrótt fer jafnt og þétt
vaxandi.
Golfíþróttin hefur verið stunduð
nteira og minna í fimm aldir og eru
upptök hennar að ilestra dómi í
Skotlandi. Á síðari hluta nítjándu
aldarinnar festi golftð rætur í
Ameríku og síðustu 40-50 ár hafa
flandaríkjamenn verið leiðandi í
Iþróttinni. Meöal þekktustu golf-
leikara þarlendra má nefna Ben
Hogan, Amold Palmer, Jack
Niklaus og 'Ióm Watson. Á síðasta
áratug hafa golfleikarar frá Evrópu
m meir skarað iramur. I>egar spánver]-
Inn Severiano Ballesteros vaió bresk-
ur meistari áriö 1979 ruddi hann
brautina fyrir aðra evrópska golf-
leikara, s.s. Bemhard Langer frá V-
fýskalandi, Sandy Lyle frá Skot-
landi, Nick Faldo frá Englandi og
Iæe Woosnam frá Wales. Sem dæmi
um gott gengi evrópsku golfleikar-
unna, þá hefur liö Evrópu í tvö síð-
ustu skiptin unnið Ryder Cup sem
er keppni milli Bandariskra og
l-vrópskra atvinnumanna. bessi
keppni fer nú fram í sumar og á
flelfry golfvellinum í Englandi og
stefnir allt í þaö, að þetta verði einn
mesti íþróttaviðburöur ársins 1989.
bess má síðan aö lokum geta, að
ýmsir frábærir golfleikarar hata
komið frá Ástralíu (Greg Norman,
Gavid Graham, Peter Thomson),
fra Suður-Afríku (Gary Player,
Mark McNulty og Nick Price) og
flapan (Tommy Nakajima og Isao
Aoki).
Severiano Ballesteros
Ekki er hægt að skrifa um golf í
Evrópu án þess að minnast sérstak-
lega á hinn litríka, spánska golf-
snilling - Seve Ballesteros. Þessi 31
árs golfleikari aldist upp við golf-
völl, þar sem faðir hans var vallar-
vörður og milli þess sem hann vann
fyrir sér sem kylfusveinn, þá var
hann öllum stundum að æfa sig.
Hann gerðist snemma atvinnumað-
ur og vakti fljótlega athygli fyrir
djarflegan leik og ótrúlega hæfni við
að bjarga sér úr vandræðum. í þá
daga var golf ekki almenningsíþrótt
á Spáni, heldur var það mest leikið
meöal ferðamanna, en smátt og
smátt fóru Seve og aðrir ungir golf-
leikarar að láta að sér kveða og þar
með vaknaði áhugi landa hans.
Sigur hans í breska opna mótinu
1979 verður lengi í minnum haföur
einkum fyrir óvenjulega högglengd
hans og snilli í kring um flatimar.
Síðan þá hefur Ballesteros leikið og
sigrað um allan heim og er hann nú
tvímælalaust besti golfleikari í
heiminum.
Peningaverðlaun í mótum
Heildarverðlaun í mótunum í
Evrópu á árinu 1988 vom nálægt tíu
milljónum punda, eða hátt í níu-
hundruðmilljónir íslenskra króna.
Það er sænska stórfyrirtækið Volvo
sem er aðalbakhjarl Evrópumót-
anna, en síðan eru aðrir bakhjarlar
fyrir hvert mót. Fyrsta mót ársins
fór fram að þessu sinni á Santa
Ponsa golfvellinum á Mollorka í
mars, og var þaö Ballesteros sjálfur
sem var aðalhvatamaður þess. Það
var í fyrsta skipti sem slíkt stórmót
fór fram á Mallorka og tókst það í
alla staði mjög vel. Ballesteros lét
ekki sitt eftir liggja og vann mótið og
var sex höggum á undan hinum
efnilega landa sínum, Jose-Maria
Olazabal. Síðan tók við hvert mot-
ið á fætur öðru, uns síðasta mótið,
Volvo Masters, fór fram á Valder-
ama vellinum á Spáni í október. Það
1. Severiano Ballesteros .... Spánn 39.466.308
2. Nick Faldo England 30.412.706
3. Jose-Maria Olazabal Spánn 24.993.282
4. lan Woosnam Wales 20.538.182
5. Sandy Lyle Skotland 16.257.971
6. Mark McNulty Zimbabwe 15.818.661
7. Des Smyth írland 15.028.519
8. Mark James England 13.363.492
9. Ronan Raferty N-lrland 11.571.293
10. Jose Rivero Spánn 11.300.539
11. Gordon Brand jr 10.940.914
12. Peter Baker England 10.870.256
13. Howard Clark England 10.418.939
14. Barry Lane England 10.418.939
15. Eamonn Darcy írland 9.818.124
16. Peter Senior Ástralía 9.011.068
17. Roger Chapman England 8.718.862
18. Mark Mouland Wales 8.353.775
19. Chris Moody England 8.352.579
20. Denis Durnian England 8.295.075
21. Roger Davis Ástralía 8.145.985
22. Anders Forsbrand Svíþjóð 7.855.591
23. Christy O. Connor jr Svíþjóð 7.381.500
24. Craig Parry Ástralía 7.147.794
25. Miguel Martin Spánn 6.658.498
fór vel á því, að sigurvegarinn varð
Nick Faldo frá Englandi, en hann
var á síðasta ári jafnbesti golfleikari
heimsins, því hann varð sigurvegari
í tveimur mótum, en varð alls átta
sinnum í öðru sæti. í öðru til fjóióa
sæti urðu síðan Ballesteros, Sandy
Lyle og lan Woosnam og skipuðu
þannig fjóru bestu golfleikarar
Evrópu sér í efstu sætin.
Þátttaka Volvo
Eins og áður hefur verið minnst á,
þá hefur Volvo veitt Eviópumót-
unum mikinn stuðning. Áhuga
Volvo má að nokkru rekja til þess
góða árangur, er sænskir golfleikar-
ar hafa náð að undanfömu. Þeir
þekktustu eru Anders Forsbrand
(22), Mats Lanner (44), Ove Sell-
berg (57) og Magnus Persson (66).
Einn danskur golfleikari hefur náð
sæmilegum árangri, þ.e. Steen
Tinning (120). Að mínu áliti er það
aðeins tímaspursmál hvenær ís-
lenskir golfleikarar ná því takmarki
að taka þátt í þessum mótum því við
eigum nú þegar tvo til þrjá sem em
orðnir nógu góðir. (Ulfar Jónsson,
Sigurður Sigurðsson). (Tölur í sviga
sýna röð á verðlaunalista).
Lokastaðan í
Evrópumótunum
Hér til hliðar birtist listi yfir þá 25
golfleikara, sem bestum árangri
náðu 1988, hvað peningaverðlaun
snertir. Þessi listi gefur nokkuð til
kynna hvemig menn stóðu sig al-
mennt, en segir þó ekki alla söguna.
Kannski verður hægt að segja meira
frá því síðar. Nú þegar hefur verið
tilkynnt, að á árinu 1989 verði
heildarverðlaun í Evrópumótunum
11,6 milljón pund. Ekki sem verst
FAXI 9