Faxi - 01.01.1989, Síða 12
VELDU
BETRI
KOSTINN
NONNI OG BUBBI
HRINGBRAUT 92
SÍMAR 11580-14188
sem lifað hefur mestu góðæri æfi
sinnar með rífandi tekjur og hag-
sæld í hvívetna er hann stendur upp
og ber sér yfir að hafa öll árin eitt
meiru en hann aflaði og því standi
hann nú frammi fyrir svo alvarlegri
stöðu í fjármálum sínum að gjald-
þrot blasi við. Þetta hefur þó
forsætisráðherra okkar látið sér um
munn fara íyrir hönd sameiginlegs
sjóðs okkar allra. Nú er víst að hann
hefur tekið nokkuð stórt upp í sig
eins og hans er stundum vandi, en
hinu verður ekki á móti mælt, að
sem þjóð höfum við lifað um efni
fram þrátt fyrir óumdeilda gífurlega
hagsæld á flestum sviðum, og nú er
svo komið að beinlínis er óhyggilegt
að ganga lengra á þeim vegi, hann er
að vísu breiður og beinn og greiðfar-
inn, en okkur ætti að vera farið að
gruna hvert hann liggur.
Við Suðumesjamenn höfum ekki
farið varhluta af þeim straumum
sem leikið hafa um þjóðlífið, en við
emm þó betur settir en flestir aðrir
íslendingar og þetta síðasta ár hefur
fært okkur hagsæld á flestum svið-
um. Sérstaða okkar er að mínu mati
fólgin í því meðal annars að vegna
staðsetningar okkar svo skammt frá
Reykjavíkursvæðinu njótum við
góðs af því nábýli en emm samt
nægilega langt í burtu til að ókost-
imir bitni ekki á okkur. Hér á ég
einkum við að sú þjónusta sem
hvergi getur þrifist nema á Reykja-
víkursvæðinu er okkur innan seil-
ingar, en sú streita og sú mengun,
hugarfarsins jafnt sem ytri mengun,
sem farin er að einkenna stórborg-
arlífið í Reykjavík er hæfilega langt
í burtu frá okkur. Reyndar er það nú
þegar svo að Reykvíkingar em í
auknum mæli famir að gera sér
grein fyrir þessu og þeim fjölgar
sem flytja hingað til Suðumesja og
kjósa að búa hér vegna þeirra aug-
ljósu kosta sem því fylgja þótt þeir
starfi ef til vill í Reykjavík í stað hins
sem svo áberandi hefur verið að
Reykvíkingar starfi hér á Suður-
nesjum. Við höfum byggt upp alla
þá þjónustu sem nauðsynleg er til
að hér sé gott að búa, hér höfum við
félagslega þjónustu eins og hún best
gerist, við höfum heilsugæslu og
sjúkrahús búin færustu læknum og
hjúkmnarliði. Menntakerfi okkar
gefur ekkert eftir bestu skólum
landsins og getur skilað bömum
okkar með sóma alla leið upp í há-
skóla og þannig gæti ég haldið
áfram að telja.
Við búum við eina bestu hitaveitu
landsins sem veitir heitu vatni eins
og hver vill inn á öll heimili, við
verði sem er eitt hið lægsta, og við
emm að verða sjálfum okkur nóg
um framleiðslu rafmagns. Við bú-
um við eitt ríkasta ferskvatnssvæði
landsins með gnægð af diykkjar-
vatni, reyndar svo að einn vatns-
12 FAXI