Faxi - 01.01.1989, Side 31
síðan hreinsaður. Óþéttur botn-
krani var talinn orsök lekans.
(Tíminn 22. júní 1971: „Bátur nær
sokkinn í Grindavíkurhöfn“).
Maður drukknar
Að kvöldi hins 28. júní 1971,
fannst lík Guðmndar Tjörva Krist-
jánssonar, í Keflavikurhöfn. Hans
hafði verið saknað um skeið. Tjörvi
var fimmtíu og fjögurra ára gamall.
Hann stundaði sjómennsku lengst
af. Hann var skipstjóri á v.b. Jakob,
sem var hætt kominn vegna leka,
skömmu fyrir 1950. (Sjá hér framar
í annálnum.) Tjörvi var sonur Guð-
rúnar og Stjána bláa, frá Holti i
Keflavík. Stjáni drukknaði 1921.
(Sjá hér framar.) Tjörvi lét eftir sig
eiginkonu og þrjá uppkomna syni.
(Mbl. 29. júní 1971: ,,Keflvíkingur
fannst drukknaður í höfninni“.
Tíminn 29. júní 1971: ,,Fannstlátinn
í Keflavíkurhöfn“.
Faxi, 3. tbl. 1981: ,,í minningu syst-
kinanna frá Holti“).
V/b Keilir nærri sokkinn
í Keflavíkurhöfn
Rétt fyrir miðnætti, laugardags-
kvöldið 22. janúar 1972, var v.b.
Keilir GK 400, nærri sokkinn í
Keflavikurhöfn. Lá báturinn í krókn-
um innst við hafnargarðinn. Er að
var komið var báturinn nærri
fullur af sjó, lest, lúkar og vélarhús.
Þurfti þvi lítið af sjó í hann til viðbót-
ar svo að hann sykki. Fenginn var
krani til að lyfta bátnum upp og sið-
an var sjónum dælt úr honum. Kom
þá í Ijós að rekald hafði komist á milli
báta, sem í króknum lágu, og brotið
gat á Keili. Um kvöldið var þó stillt
veður, en bleytuhríð. Keilir var flutt-
ur á bíl til viðgerðar í Dráttarbraut
Njarðvíkur.
Keilir var níu lesta trébátur, smíð-
aður í Garðabæ 1961. Aðaleigandi
hans var Sveinn Björnsson, er þá
bjó í Garðinum.
(Mbl. 25. jan. 1972: „Sökk í Kefla-
víkurhöfn“.
Suðurnesjatíðindi 28. jan. 1972:
,,Bátur sökk í Keflavíkurhöfn“).
V/b Lómur siglir á
hafnargarðinn
Helgina 18. til 19. mars 1972, er
v.b. Lómur KE 101, var að koma úr
róðri, sigldi hann á hafnargarðinn í
Vatnsnesvik. Dældaðiststefni báts-
ins nokkuð en skemmdir urðu ekki
alvarlegar. Engan mann sakaði. Bát-
urinn kom úr róðri að kvöldi til eða
um nótt, en fremri hluti garðsins var
rafmagnslaus. Orsakaði Ijósleysið
áreksturinn.
Lómur KE 101 var tæplega tvö
hundruð lesta stálbátur.
(Suðurnesjatíðindi 24. mars 1972:
„Óhapp í Keflavíkurhöfn“).
M/B LÓMUR KE 101. Mymdin cr tckin a/ bcítnum vid Moldc í Norcgi, cn þcir var hann byggdur cirid 1963.
Eldur í Pólstjörnunni
Er Pólstjarnan KE var á leið í róð-
ur að morgni 10. apríl 1972, kom
upp mikill eldur (vélarrúmi bátsins.
Keflvikingur KE 100 var nærstadd-
ur og tók Pólstjörnuna í tog. Á með-
an var reynt að slökkva eldinn. Til
Keflavíkur komu bátarnir um kl. hálf
níu árdegis. Þar tókst slökkviliði að
ráða niðurlögum eldsins með þvi að
rjúfa gat á vélarhúsið.
Pólstjarnan var sextiu til sjötiu
lesta trébátur, eign Sjöstjörnunnar í
Keflavík.
(Vísir 10. apríl 1972: „Pólstjarnan
dregin logandi til hafnar í morgun“).
V/b Hrönn strandar
undan Gerðum
Umkl. hálf sex, 19. júní 1972, tók
Hrönn KE 48 niðri fyrir utan Gerðar
í Garði. Báturinn var á handfærum í
Garðsjó og veður var hið besta.
Sjór ládauður. Á Hrönn voru tveir
menn og sofnaði annar mannanna
við stýrið með fyrrgreindum afleið-
ingum. Fljótlega kom handfæratrilla
og gerði tilraunir til að ná Hrönn á
flot. En ekki bar það árangur.
Ákváðu skipverjar að bfða síðdegis-
flóðs. Um kl. hálf átta um kvöldið
losnaði báturinn sjálfkrafa. Virtist
hann ekkert skemmdur.
Hrönn KE 48 var tíu lesta bátur,
smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði.
Báturinn var nýlegur.
(Tíminn 20. júní 1972: ,,Tók niðri,
þegar rórmaðurinn sofnaði“).
Þórshamar sekkur í
Keflavíkurhöfn
Að morgni mánudagsins, 14.
ágúst 1972, sökk v.b. Þórshamar
RE 28 í Keflavíkurhöfn. Á sjönda
tímanum um morguninn tóku skip-
verjar á vélbátnum Óla Tóftum eftir
því, að Þórshamar var farinn að
síga. En báturinn lá utan á Óla Tóft-
um. Stóð á éndum að Þórshamar
sökk eftir að honum var rennt upp-
að bryggju, fram undan Hafnarbúð-
inni. Þannig stóð báturinn í botni að
aftan, en hluti stefnis var upp úr
sjónum. Þórshamar var mannlaus
er þetta gerðist. Áhöfnin saman-
stóð af utanbæjarmönnum og var
enginn þeirra nálægur. Er fjaraði út
var dælt úr bátnum og síðan var
hann dreginn í slipp í Ytri-Njarðvík.
Miklar skemmdir urðu á bátnum en
orsök lekans var talinn bilaður botn-
krani.
Þórshamar RE 26 var gamall,
sextíu lesta trébátur. Hann hét áður
ísleifur III frá Vestmannaeyjum.
(Vísir 14. ágúst 1972: ,,Sökk í Qör-
unni í Keflavík“).
Tíminn 15. ágúst 1972: ,,60 lesta bát-
ur sökk í höfninni“.
Mbl. 15. ágúst 1972: ,,Sökk í höfn-
inni“.
Suðurnesjatíðindi 18. ágúst 1972:
,,Sökk í Keflavíkurhöfn“).
Eldur í m.s.
Hólmsbergi
í hádeginu, um kl. 12.15, mánu-
daginn 16. okt. 1972, kviknaði i
m.a. Hólmsbergi KE 16, þar sem
báturinn lá í Njarðvíkurhöfn, tilbúinn
í róður. Báturinn var mannlaus er
eldurinn kom upp og því var hann
orðinn talsvert magnaður, er
slökkvilið kom. Vareldurinn mestur
í káetu og stýrishúsi. Einnig í skil-
rúmi við vélarhús. Eldsupptök voru
ókunn. Urðu miklar skemmdir á
bátnum og þannig eyðilögðust öll
tæki í stýrishúsi. Var tjónið metið á
hundruð þúsunda króna.
Hólmsberg KE 16, var hundrað
og ein lest að stærð, tréskip, í eigu
Útvarar hf. í Keflavík. Aðaleigendur
voru: Jón og Guðlaugur Tómassyn-
ir og Örn Ingólfsson. Báturinn hét
áður Helga Björg og var þá gerður
út frá Skagaströnd.
(Mbl. 17. okt. 1972: „Hundruð þús.
kr. tjón“.
Þjóðv. 17. okt. 1972: „Eldur í báti í
Njarðvík").
Eldur í tveimur bátum
Rétt fyrir miðjan desember
kviknaði í tveimur bátum ( Keflavík.
Lá annar þeirra, Sjöstjarnan KE 8, i
höfninni. Var eldurinn.í astikkassa
fram við lúkar. Urðu þar töluverðar
skemmdir af eldi og reyk. En
slökkviliði tókst að hindra út-
breiðslu eldsins. Sjöstjarnan fórst
1973. (Sjá siðar.)
Skömmu síöar, að kvöldlagi,
kviknaði f v.b. Sigurbjörgu KE 98,
þar sem hún stóð uppi út f slipp.
Enginn var þar við vinnu og varð
eldsins vart af tilviljun. Tókst
slökkviliði að koma í veg fyrir veru-
legt tjón, sem annars hefði orðið, ef
eldsins hefði ekki orðiö vart tíman-
lega.
(Tíminn 16. des. 1972: „Eldur í
tveim Keflavíkurbátum* ‘).
Framhald í næsta blaði
FAXI 31