Faxi - 01.01.1989, Síða 35
Skúli missti sína góðu og mikil-
hæfu konu hinn 14. nóvember 1961.
Hún varð bráðkvödd á heimili sínu
aðeins 59 ára gömul. Var þá sár
harmur að fjölskyldunni kveðinn og
það stóra skarð sem Sigríður lét eftir
sig varð aldrei fyllt að nýju. Skúli
tók sér eiginkonumissinn mjög
nærri svo að segja má, að hann yrði
aldrei samur maður eftir það. TYúin
var honum dýrmætur og blessaður
styrkur á þessum þungbæru stund-
um þegar sorgin og söknuðurinn
nístu allra sárast og börnin hans
lögðu sig fram við að létta honum
þyngstu byrðarnar. Sjálfúr fann
hann líka svölun og hvíld í slarli
sínu og stundaði það af enn meiri
kostgæfni en fyrr, ef um slíkt var
hægt að tala.
Um nokkurt skeið hélt yngsta
dóttirin, Ragnheiður, heimili með
föður sínum og fjölskyldu sinni.
Eftir að hún flutti í sitt eigið hús-
næði bjó Skúli einn á Vallargötunni,
með dyggilegri aðstoð og ómetan-
legum stuðningi dætra sinna.
En nú var kvöldið farið að nálgast
í lífi Skúla Oddleifssonar. Hann
varð fyrir því áfalli að detta og
brotna illa fyrir áratug eða þar um
bil. Upp úr því fór líkamlegri heilsu
aö hnigna, en andlegri reisn hélt
hann alla tíð.
Fyrir þremur árum gerðist Skúli
vistmaður á dvalarheimilinu Garð-
vangi í Garði og naut þar mikillar og
góðrar umhyggju. Nokkru fyrir síð-
ustu jól var hann fluttur á sjúkra-
húsið í Keflavík og þar andaðist
hann hinn 3. þessa mánaðar.
Með Skúla Oddleifssyni er geng-
inn mætur og mikilhæfur dreng-
skaparmaður, traustur og verðugur
lulltrúi aldamótakynslóðarinnar,
sem nú er sem óðast að hverfa af
sjónarsviðinu. Hann var harðdug-
legur, skarpgreindur, fjölfróður og
bráðskemmtilegur. Hann var dag-
farsprúður, ljúfur og viðmótshlýr,
en talsvert var hann þó skapmikill,
þegar því var að skipta, gat orðið
eins og stormsveipur, ef honum
mislíkaöi alvarlega. En hann var
líka flestum sáttfúsari og fljótari að
setja sig í annarra spor. Hann var
örlátur, gjafmildur, oft stórgjöfull og
hjálpfús, þar sem hann vissi þess
þörf. Yfirleitt vildi hann alls staðar
reynast vel og öllum gott gera.
Eins og áður hefir komið fram var
hann mikill og einlægur trúmaður.
Hann var mikill ljóðavinur og fram
á síðustu ár las hann og lærði
ógrynni af sálmum og andlegum
ljóðum og fann sér í því hugsvölun
og hugarstyrk, sem aldrei brást.
Skúli og fjölskylda hans voru
meðal hinna trúföstu kirkjugesta í
Keflavíkurkirkju á meðan ég þjón-
aði þar. Við Skúli ræddum líka all-
oft saman um andleg mál og því var
mér vel kunnugt um þann sess, sem
kristin trú og kristin kirkja skipuðu
í vitund hans.
Ég minntist í upphafi á sólskins-
daginn þegar ég sá Skúla Oddleifs-
son í fyrsta sinn. t>að var líka á sól-
skinsdegi, sem ég sá hann síðast.
l>að var 24. júlí 1983, þegar síra
Olafur sonur hans var vígður bisk-
upsvígslu í Skálholtsdómkirkju. Sr.
Ólafur kvaddi mig til þess hlut-
verks, að lýsa vígslu, eins og það er
nefnt. Þegar ég kom upp í predik-
unarstólinn og leit yfir hinn stóra
söfnuð, sem í kirkjunni var á þess-
um hátíöisdegi, þá sé ég Skúla sitja
þar ásamt börnum sínum í einum
fremstu bekkjanna. Mér varö star-
sýnt á blessaöan gamla manninn.
Það var sami svipurinn á honum
þarna í kirkjunni eins og þegar
hann stóð í skóladyrunum í Kefla-
vík forðum. Sólin ljómaði í augum
hans, brosið bjarta og heiða var
máski ennþá hreinna og tærara á
þessari stundu. l>að fór ekki á milli
mála: Þama skinu mér geislar frá
biðjandi föðurhjarta.
Börnum, tengdabörnum, barna-
börnum og öðmm ástvinum Skúla
Oddleifssonar sendum við hjónin
okkar innilegustu samúðarkveöjur
og biðjum þeim öllum blessunar
Guðs, giftu og farsældar á framtíö-
arvegi.
Björn Jónsson.
Sundlaug
Grindavíkur
Sími 68561
Opið sem hér segir:
Mánudaga - Föstudaga:
Börn kl. 16.00 -19.00
Fullorðnir kl. 19.00 - 21.00
Sauna klefinn
er alltaf opinn á kvöldin
Konur:
Mánud. - Miðvikud. - Föstud
kl. 19.00 - 21.00
FAXI 35