Faxi - 01.02.1989, Page 13
iMÍóbeincndurognemendurág(k)rislund. Frá vinstri. lntpbörg Þórhallsdóttir, Guð-
rún Ása Giistavsdóttir, Hrönn Kristinsdóttir og Katrín Osk borgeirsdóttir. (Ljósm.
Heimir Stfgsson).
Stjórnarmenn VSFK voru vidstaddir námskeidsslit. Frá vinstri: Bjöm Jóhannsson,
Hjördís Thiustadóttir, Karl St. Guðnason og Gudrún Ölafsdóttir, stjómandi nám-
skeidsins.
Endurmenntun
Nýlega fór fram útskrift á nám-
skeiði sem haldið var á vegum
VSFK fyrir félagsmenn sem vinna á
heilbrigðisstofnunum hér á svæð-
inu. Þar er um að ræða sjúkrahúsið
í Keflavík, dvalarheimili aldraða,
heimahjúkrun, gæslukonur í Holta-
skóla og heimilishjálpin fyrir
aldraða.
Námskeiðið var haldið með aðstoð
MFA (Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu). Af hálfu VSFK hefur
varaformaður félagsins, Guðrún
Olafsdóttir, haft veg og vanda af
undirbúningi og stjóm námskeiðs-
ins, en jafnframt notið dyggrar að-
stoðar TVyggva Þórs Aðalsteinsson-
ar frá MFA og Ingibjargar Þórhalls-
dóttur sem starfar á sjúkrahúsi
Keflavíkur. Námskeiðið hafa sótt
um 53 konur og stóð það yftr frá því
íbyrjun nóvembers.l. haustogfram
til 14. febrúar. Námskeiðið stóð alls
í um 90 tíma. Fór öll kennsla fram
utan vinnu, þannig að oft hefur ver-
ið um langan vinnudag að ræða hjá
þátttakendunum. Er þetta lengsta
námskeið sem farið hefur fram á
vegum VSFK.
Við útskriftina ávarpaði Guðrún
Ólafsdóttir þátttakendur og þakk-
aði þeim fýrir góðan árangur og
ástundun. Lýsti hún síðan aðdrag-
anda þeim sem að námskeiðinu
hefði verið, en það var haldið sam-
kvæmt ákvæðum í kjarasamning-
um. Námskeiðsgögn hefðu verið
þau sömu og Sókn í Reykjavík hefði
notað að öðru leiti en því, að bætt
var við sérstöku efni er varðaði
mannleg samskipti. Hefði sér virst
einmitt þetta efni falla þátttakend-
um vel í geð, því mannleg samskipti
eru ávallt mjög þýðingarmikil í
á vegum VSFK
starfi þeirra. í lok ræðu sinnar færði
Guðrún öllum þeim sem stutt hafa
við þetta námskeiðahald. Nefndi
hún m.a. sjúkrahús Keflavíkur,
Keflavíkurbæ o.fl.
Fleiri tóku til máls, m.a. bæjar-
stjóri Keflavíkur, Guðfinnur Sigur-
vinsson. Táldi hann námskeið sem
þetta mjög gagnlegt. Fullvissaði
hann þátttakendur um, að þeir
Karl St. Gudnason afhendir þátttakendum skfrteini. Frá vinstri. Anna Frfmanns
dótir, Ellen Stefánsdóttir og Ingunn Gudbjartsdóttir.
FAXI 49