Faxi

Volume

Faxi - 01.02.1989, Page 21

Faxi - 01.02.1989, Page 21
SKÓLAR SUÐUR- NESJUM SKÓLAR Á SUDURNiSJUM / síðasía blaði var fjallað um Grindavíkurskóla og upp- haf barnafrœðslu þar. Að þessu sinni heimsœkjum við Gerðaskóla íGarði ogstöldrum viðþar nokkra stund. Að visu hefur verið skrifað all mikið í Faxa um Gerðaskóla, ► því skólinn er sá elsti á Suðurnesjum og reyndar einn sá elsti á öllu landinu. Gerðaskóli var stofnaður árið 1872 og þegar haldið var upp á 100 ára afmœli hans 1972, þá birti Faxi frásögn og greinar um skólann, m.a. tvœr greinar eftir Sveinbjörn Arnason, fyrrverandi skóla- stjóra. Ungur kennari sem nú kennir við Gerðaskóla, Jón Ögmundsson, tók það sem prófverkefni við Kennarahá- skólann ásamt félaga sínum, Sveini Karlssyni, að skrifa sögu Gerðaskóla á tímabilinu 1872—1911. Þar sem frá- sögn hans er byggð á góðum einstökum heimildum sem skólinn hefur haldið til haga frá fyrstu tíð, þá œtlum við hér að birta nokkurn úrdrátt úr ritgerð Jóns. Þar sem hér er um nokkuð mikið efni að rœða, þá munum við að þessu sinni aðeins stikla á stóru úr sögu skólansfrá 1911 oggefst vonandi tœkifœri síðar til að bœta nokkuð úr því. Hefst nú frásögn Jóns. I. Aðdragandi og stofhun Gerðaskóla Aðdragandi að stofnun skólans var nokkuð langur, en það var fyrst upp úr 1860, að séra Sigurður Brynjólfsson Sívertsen prestur að Útskálum fór að ræða við héraðs- ' búa um stofnun hans. Séra Sigurö- ur fór fram á fjárframlög frá bænd- um í þessum tilgangi, en varð þó misjafnlega ágengt. Séra Sigurður var um sextugt þeg- ar þetta var, fæddur 1808. Hann hafði verið prestur að Útskálum síð- 1 an 1837, en áður hafði hann verið aðstoðarprestur föður síns, séra Brynjólfs Sigurðssonar Sívertsen í sex ár og þjónaði kirkjunum á Hvalsnesi og í Kirkjuvogi. Sigurður þótti merkisprestur og var hvort tveggja í senn, kennimaður góður og búmaður mikill, auk þess fræði- maður í íslenskri sögu og ættvísi. Hann var hjálpsamur fátæklingum, og lét sér annt um uppfræðingu bama. Sigurði varð það fljótlega ljóst, að skólinn kæmist ekki á stofn nema með allverulegum samskotum sóknarbama sinna. Viðbrögð al- mennings við þessari hugmynd Sig- urðar vom eins og áður segir afar misjöfn, margir vom jafnvel mjög andvígir henni, og mæltu sér til málsbóta, ,,að ekki hefðu gömlu mennimir haft skóla, en komist af samt.“ Þetta sýnir vel að jarðvegurinn var fremur illa plægður fyrir hugmynd- ir séra Sigurðar, það var því ljóst að það mundi ekki verða létt verk að hrinda þeim í framkvæmd. Þrátt fyrir þetta lét séra Sigurður ekki bugast, enda dugmaður hinn mesti og auk þess mikill áhugamaður um öll menningarmál. Nú líður og bíður, án þess að neitt gerist í málinu. Þá gerist það að prestur fær bréf frá Þórami Böðv- arssyni prófasti í Görðum, þess efn- is að séra Sigurður gangist fyrir samskotum í sókn sinni til handa J FAXI 57

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.