Faxi - 01.02.1989, Page 31
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
antinopel, höggormar og froskar og
býflugnabú, þar sem sýnd er mynd-
breyting skorkvikinda."
Eflaust þætti þetta fátækur kostur
í dag, en þetta voru þeir hlutir sem
kennslan var miðuð við. Ekki hefur
skólinn aukið mikið við áhöld sín
næstu ár, en til samanburðar þá
tökum við árið 1900—1901.
Skólahúsinu sem skólinn starfaði
í frá og með haustinu 1890 til 1911 er
lýst af Bjama Þórarinssyni (presti),
sem hafði þá yfirumsjón skólans
sem formaður skólanefndarinnar.
Þessa lýsingu skrifar hann árið
1896, 31. ágúst;
„Kennslan hefur farið fram í 2
stofum 48.6 m3, 51.2 m3 á stærð, svo
í efri deild hefir 1.93 m3 komið á
hvert bam, 2.11 m3 í hinni neðri, svo
mikið vantar á að rúmið sé fullnægj-
andi; við enda skólans er forstofa
með snögum sem bömin hengja í föt
sín og hafast við í, í 5 mínútunum
þegar illt er veður, framundan skól-
anum er rúmgóður flötur (tún) sem
bömin geta leikið sér á.“
Það er framför að bömin hafi eitt-
hvað svæði til að leika sér á, og jafn-
vel vantar enn í dag leiksvæði við
skóla svo fullnægjandi sé. Af ann-
arri aðstöðu í húsinu er það að segja
að þau virðast öll hafa borðpláss og
skúffú til að geyma dót frá sér í.
Lausir munir skólans vom þá:
,,2 svartar veggtöflur 1.20 m2 hvor
á stærð, 14 tveggjamannaborð með
áföstum bekkjum og skúffum, 1
langborð með 4 skúffum fyrir 8
böm með 2 bekkjum með bakslám.
1 langborð lélegt fyrir 6 böm með
engum slám. 1 langborð lélegt fyrir
6 böm með engri skúffu, loks 1 borð
með einni skúffú fyrir 4 böm, 2
kennarapúlt, annað á palli, þeim
fylgja þrífættir tréstólar.“
Það má geta þess að byrjun þessa
skólaárs þ.e. 1896-97, þá vom 39
nemendur sem byijuðu við skól-
ann, þannig að þessi aðbúnaður má
ekki minni vera. Arið áður vom
nemendur 49, sem er það fjölmenn-
asta sem við skólann hefur verið og
var á því tímabili sem við tókum fyr-
ir. Miðað við 49 nemendur þá hefur
hvert pláss verið skipað, því sam-
kvæmt lausum munum skólans
komast 49 í sæti, en hafa þá minna
skúffúpláss.
Ekki virðist skólinn hafa aukið
kennsluáhöld sín mikið á þessum
ámm, þ.e. 10 ámm seinna. Þá er
skólinn búinn að bæta við sig eftir-
farandi hlutum:
Ný kristileg smárit, 20 eintök og
sín 10 af hvom. Dæmisögur Esóps
og stafrófi náttúmvísindanna.
Veggmynd af Evrópu og aðra af
Gyðingalandi. 1 eintak af För píla-
grímsins frá þessum heimi til hins
ókomna, sem kennarinn geymdi.
Einnig hefur skólinn eignast tvo
hrákadalla.
Það má segja að starfssemi skól-
ans sé í föstum skorðum alveg til
ársins 1911, en þá flytur hann í nýtt
húsnæði sem hreppurinn lét byggja
með eigin fé og lánsfé. Það em því
þáttaskil í sögu skólans, því eins og
áður er sagt er það fyrsti vísir að nú-
verandi húsnæði skólans. Látum
við því hér vera kaflaskil í ritgerð
okkar.
E. Nemendur.
Á þeim tíma sem skólinn tók til
starfa (1872), þá var ekki almennur
vilji bænda að stofna hann, heldur
er hann stofnaður vegna dugnaðar
Sigurðar B. Sívertsens og þeirra
sem gáfu fé og vinnu til skólabygg-
ingarinnar.
Því er ljóst að það er ekki almenn-
ur vilji foreldra að senda böm sín í
skólann. Einnig mun fjárskortur
hafa haldið aftur af mörgum sem
vildu senda böm sín í skólann, en
gátu ekki vegna lélegs efnahags á
heimilunum.
Fjöldi bama í sókninni var um 92
á aldrinum 8 til 14 ára.
Þau böm sem nefnd em og flokk-
uð í dagbókinni em 15, auk nokk-
urra eldri bama sem læra aðrar
,,vísindagreinar“, ogeru þess vegna
ekki flokkuð með. Við álítum
að þau hafi verið 3 að tölu, en sök-
um þess hve bókin hefur farið illa,
þá er ekki hægt að lesa nema 2 nöfn
greinilega. Seinna kemur fram að 3
hafi verið utanskóla og lært annað
en kennt var í skólanum „lfklega
dönsku og landafræði."
Af þessu má sjá að 18 böm af 92
hafi hafið nám í byijun fýrsta starfs-
árs skólans.
Miðað við það húsnæði sem skól-
inn hafði til umráða, þá hefur hann
ekki getað sinnt mikið fleiri með
góðu móti.
Námsgreinamar vom fyrst 5, þ.e.
kristindómur, biblíusögur, lestur,
skrift og reikningur.
í lok skólaársins em 18 skráðir
nemendur í skólanum, en 3 af þeim
hafa lært eitthvað réttritun og
dönsku, 3 hafa því bæst við.
Næstu ár fram til 1887, þá er
nokkuð svipaður nemendafjöldi.
„Skólinn var sóttur eftir vonum,
vom 20 böm að meðaltali hvem
vetur.“
, ,Bömin em tekin á skólann og úr
skólanum á ýmsum tímum einkum
fyrst framan af, stöðugra seinna."
Ástæður fyrir því af hverju bömin
em tekin úr skólanum em ekki allt-
af að finna, en fjöldi þeirra hefur
verið4-5, t.d. árin 1872 og 1875, en
síðan hefur komið meiri regla á tölu
nemenda. Bömin hafa eflaust þótt
nauðsynlegur vinnukraftur heima
við, og því hafa foreldramir tekið
þau úr skólanum, eða vegna fjár-
skorts.
Nemendum var gefinn vitnisburð-
ur eftir hveija viku um framför
þeirra, gáfur og siðferði. Einnig hélt
kennarinn skýrslu um kennslu sína
og , .yfirheyrslu bamanna eftir viku
hverja.“
í siðferði fá öll bömin „ágætlega"
öll árin fram til ársins 1881, en þá
kemur fyrsta athugasemd um hegð-
un í nóvember.
„í siðferði fá öll bömin einkunn-
ina ágætlega, nema Þórarinn Magn-
ússon fær einkunnina dável — vel
(42/3), hann hefur verið forsprakki
hinna annarra yngri pilta í ófagurri
hegðun í stað þess að vera þeim til
fyrirmyndar í siðprýði og góðri hátt-
semi, einnig hefur hann lítt látið að
umvöndunum kennara. Einnig skal
þess getið, að Tómas, Einar Berg-
þórsson og Sigmundur, hafa verið
hans ötulir fylgifiskar, en áminnast
að bæta sig framvegis."
Einnig er þess getið í desember að
Tómas Nikulásson hafi komið inn
til bæna og viðhaldið ófögmm hlátri
og vakið, .stórkostlegt hneyksli," en
hann fékk 3= laklega.
Ástæðan fyrir þessari hegðun er
eflaust sú, að sbr. lýsingu á Jóni
Jónssyni sem var þá kennari, hafi
Framhald á bls. 70
1 áUNIÐ DRKII-
REO [NINGANA
Eindagi orkureikninga er
15. hvers mánaðar.
Látið orkureikninginn
hafa forgang
fj Hitaveita
Suðurnesja
FAXI 67