Faxi - 01.02.1989, Síða 32
Óhapp við Dráttarbraut
Keflavíkur
Flestum okkar veröur þad sjálfsagt
næst í minni, þegar vetur þessi ber á
góma, að hann hafi verið leiðinlegur,
ávallt risjótt veðrátta, gæftaleysi og
mikill snjór. Við munum ekki muna
vel eftir góðviðrisdögunum, heldur
muna því betur eftir þeim slæmu.
Þannig erum við víst flest gerð, hvem-
ig sem á því stendur. Samt verður þess
minnst, að nokkra daga í febrúar kom
það sér vel, að veðrið var skaplegt. Þá
gerðist nefnilega óhapp við Dráttar-
brautina í Kefalvík, þegar verið var að
sjósetja hinn ljómandi fallega trébát,
Eyrúnu ÁR 66 eftir nokkurra mánaða
viðgerð í slippnum. Við þaö að skutur
bátsins tók lítilsháttar niðri stuttu eft-
ir að hann hafði verið sjósettur, þá
laskaðist stýri og skrúfa bátsins og
hann rak óðar upp í fjöru beint neðan
við Dráttarbrautina. Ef veðrið hefði
nú sýnt á sér hinar verri hliðar þessa
daga, þá hefði ekki þurft að spyrja að
leikslokum. Starfsmenn dráttar-
brautarinnar unnu ötullega að björg-
un bátsins og fengu m.a. jarðýtu til
aðstoðar eins og sést á meðfylgjandi
mynd. Tókst björgunin giftusamlega
og urðu skemmdir óverulegar.
Vatnsveita Suðurnesja.
Kaupstaðimir Kefiavík og Njarðvík
menn standi straum af öllum kostnaöi
við gerð hinna nýju vatnsbóla.
Sigur í Parfs
Landslið íslands í handknattleik
gerði góða for til Parísar í febrúarmán-
uði s.l. Þangað fór liðið til að keppa í
svonefndri B-keppni, en þar voru
menn að keppa um rétt til að leika í
úrslitakeppni um heimsmeistaratitil-
inn. Mun sú keppni fara fram í Tékkó-
slóvakíu á næsta ári. Eftir frekar slak-
an árangur á Ólympíuleikjunum í
Seoul s.l. haust vom menn almennt
ekki mjög bjartsýnir á að liðinu tækist
að ná góðum árangri. Til þess að
tryggja farseðilinn til Tékkóslóvakíu
þurfti liðið að ná einu af sex efstu sæt-
unum. Er skemmst fráþví að segja, að
liðið var allan tímann í banastuði og
sigraði í keppninni á mjög sannfær-
andi hátt. Mjög margir fylgdust með
leikjum liðsins, þvf jjeim var öllum
lýst í útvarpi og nokkrum þeirra var
sjónvarpað beint. Þannig var t.d. hátt-
að með úrslitaleikinn sem var gegn
Pólverjum. Leikurinn var fima
skemmtilegur og sigur okkar manna
aldrei í hættu. Reyndar var stór hópur
íslendinga staddur í París til að horfa
á leikinn. Var þetta hápunkturinn á
ferli landsliðsins undir stjóm hins
pólska þjálfara, Bogdan, en hann tek-
ur nú líklega til við að þjálfa önnur lið.
Og þá er bara að bíða og sjá, hvað
gerist í Tékkó.l!
hafa gert meö sér samning um að
stofna nýja, sameiginlega vatnsveitu
er mun verða rekin sem sjálfstætt
sameignarfélag. Fyrsta verkefni hins
nýja félags verður að taka í notkun ný
vatnsból, því núverandi vatnsból eru í
yfirvofandi mengunarhættu frá flug-
vellinum, eins og áður hefur verið sagt
frá hér í Faxa. Þegar utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, James A.
Baker var hér í heimsókn, þá vom
þessi mál rædd og í framhaldi af því
var skipuð viðræðunefnd sem í sitja
Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri
vamamáladeildar utanríkisráðu-
neytisins, Guðmundur Eiríksson,
þjóðréttarfræðingur og Hannes
Einarsson, formaðurbæjarráðsKefla-
víkur. Er sú krafa gerð, að bandaríkja-
Karlar og konur í Keflavfk og ná-
grenni sameinast í eitt verkalýðs-
félag
Verkalýs- og sjómannafélag Keflavíkur
og nágrennis og Verkakvennafélagið
vora nýlega sameinuð í eitt félag undir
nafni verkalýðsfélagsins. Á aðalfundi fé-
lagsins fyrir nokkru var kosin ný stjóm
og skipa hana eftirtaldir:
Karl St. Guðnason, formaður
Guðrún Ólafsdóttir, varaformaður
Ema Gunnarsdóttir, ritari
Guðmundur Einarsson, gjaldkeri
Bjöm Jóhannsson, meðstj.
Guðmann Héðinsson, meðstj.
Hjördís TVaustadóttir, meðstj.
68 FAXI