Faxi - 01.02.1989, Qupperneq 37
RA.UÐSKINNA. HIN NÝRRI — SR. JÓN THORARENSEN
SUDURNESJAANNÁLL
*
eftir Sigurð B. Sívertsen prest á Utskálum
I Scindgerdi:
Þar bjó Sigurður eldri Runólfsson,
faðir Guðna. Mun hann hafa komið
hingað eftir lögréttumann Jón
Narfason, sem deyði árið 1691. Eftir
hann bjó hér lögréttumaður Runólf-
ur Sigurðsson, sonur hans, sem
giftur var Þórunni Kortsdóttur frá
Kirkjubóli.
Á Kirkjubóli:
Þar var lögréttumaður Vilhjálmur
Jónsson. Hann var seinni maður
Snjólaugar, dóttur Sigurðar Núps-
sonar frá Esjubergi, en áður hafði
hún átt Jón TUmason á Kirkjubóli.
Vilhjálmur var talinn merkismaður.
Hann varð úti á Skaganum, þá er
hann kom frá Útskálum seint um
kvöld frá greftri systur sinnar, og
hafði hann verið drukkinn.
Það var 1706, en lengi gengu þau
munnmæli, að Gunna nokkur Ón-
undardóttir, hjáleigukona hans,
I Viú hana cr kenndur Gunnuhver á Kcykjancsi (sjá
hjúVsögur Jóns Arnxsonar).
sem heitast hafði og gengið aftur,
hefði unnið á honum. Sama vetur-
inn dó kona hans, Snjólaug og synir
hans.
Helgi, sem einnig bjó á Kirkju-
bóli, og var giftur Góu Gísladóttur,
systur Ólafs biskups, en dóttur
Gísla lögréttumanns í Njarðvík og
Jón bróðir hans, líka giftur og bam-
laus. Gróa átti seinna Kort Jónsson,
lögréttumann á Kirkjubóli. Þeirra
dóttir var Auðbjörg, kona Guðna
sýslumanns. (Hún dó árið 1767).
Á Úískd/um:
Þar var prestur síra Gísli Jónsson,
sonur lögréttumanns Jóns Hall-
dórssonar í Innri-Njarðvík, og
Kristínar Jakobsdóttur. Hann deyði
1710 eða 1711. Bróðir hans var Þor-
kell lögréttumaður í Njarðvík, faðir
Jóns rektors Þorkelssonar.
Á Stóra-Hólmi:
Þar bjó Ámi Jakobsson, bróðir
Kristínar í Njarðvík.
1701 fiskaðist á Suðumesjum
töluvert af geimef eða geimyt. Á
einum degi 14 í hlut, en hann var
sagður ferstrendur, flatur á kvið og
baki, að áti eins og silungur. Gengu
þá harðindi svo, að fólk lagði sér
helst til átu söl, rætur, fjallagrös og
jafnvel fiskabein, er sumir fluttu til
heimila sinna og seyddu sér til
matar.
Eyddust útkjálkar þá nærri þvi og
harðinda sveitir, urðu margir bráð-
kvaddir. Á Suðumesjum lögðust
hjón ein til hvílu. Kvartaði maður-
inn um sáran fótakulda. Konan
vildi fara til fóta og verma hann.
Önduðust þau bæði þar á eftir.
1702. Þá urðu 30 menn bráð-
kvaddir á Suðurnesjum. Dmkkn-
uðu 3 menn af skipi bóndans Run-
ólfs Sveinssonar á Stafnesi.
1703 rak hval suður í Höfhum, og
reið Páll Beyer frá Bessastöðum til
að sjá fyrir honum.
Skipstapi við Keflavíkurkaupstað.
Dmkknuðu þar 4 menn. Annar
varð á Bátsendum. Dmkknuðu 3
danskir þar, sem fóm til fiskróðurs.
Þá dmkknuðu 4 menn í Innri-
Njarðvík, ætluðu þar í land á báti af
áttæringi, er komið hafði úr ál með
fiskfarm í Keflavík. Vom þeir
dmkknir. Er þeir komu inn á vík-
ina, hvessti snögglega. Týndust þeir
þar, en tveir komust af. Það vom
tveir vinnumenn Þorkels Jónsson-
ar, er þar bjó, og húsmaður hinn
þriðji. En fjórði frá Narfakoti,
vinnumaður.
1705 vom 40 marsvín rekin á land
í Innri-Njarðvík. Sama ár, 20. febr-
úar, dmkknaði Guðmundur Jóns-
son á Kalmannstjöm og fjórir menn
með honum. Nokkm fýrr dmkkn-
aði einn maður af báti frá Gufuskál-
um.
Öndvert á góu kom norðanveður
mikið með frosti og lagnaðarís, fyrir
Suðumesjum, og rak burt fisk all-
an, er þar var fyrir. Sex skippund
var þá hæstur hlutur á Stafnesi.
1706 urðu fimm skipstapar á Suð-
umesjum. Flestum mönnum var
bjargað. Dmkknuðu 11 menn á
NORÐURLANDAMÖT í KÖRFUKNATTLEIK - POLAR CUP
Stórriðburðar á Suðnrnesjum
Dagana 26—29. apríl 1989 verður haldið í Grindavík — Njarðvík —
Keflavík Norðurlandamót í körfuknattleik.
*
Komið og sjáið landslið Islands keppa við landslið Finna, Dana,
Svíþjóðar og Noregs. Sjáið skærustu leikmenn á Norðurlöndunum
sýna listir sínar.
Nánar auglýst síðar.
^im^H Framkvœmdanefnd NM89
FAXI 73