Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1989, Page 3

Faxi - 01.09.1989, Page 3
AFLAFRÉTTIR Vá fyrír dyrum — Viðkomuhrm Klak þorskstofnsins við íslands- strendur hefur brugðist fjórða árið í röð. Sú er megin niðurstaða þeirra fiskifræðinga, sem þátt tóku í árleg- um seiðarannsóknarleiðangri Haf- rannsóknarstofnunar, sem lauk í byrjun september. Fyrr í sumar hafði Hafrannsókn- arstofnun tilkynnt tillögur sínar um 90 þúsund tonna samdrátt í þorsk- veiðum á næsta ári, meðal annars vegna lélegrar viðkomu stofnsins undanfarin þrjú ár. Spár gera nú ráð fyrir að þessa árs þorskafli verði 320-340 þúsund tonn. Rætist sú spá mun láta nærri að veiðin verði um 20% meiri en Hafrannsóknarstofnun mælti með sem hámarksveiði. Mikill þorskafli ár eftir ár umfram æskilegt hámark staðfestir einn af mörgum þver- brestum í núverandi fiskveiðistjóm- un. Sínu alvarlegast hyggja þó flest- n hugsandi menn hið gengdarlausa smáflskadráp, sem viðgengst í vax- andi mæli ár frá ári. Þessu til stað- festingar hafa hörmuleg dæmi um klæki við botnvörpuveiðar nýverið verið sýnd í sjónvarpi, sem að vísu verður að vona að séu hreinar und- antekningar fárra óprúttinna skip- stjómarmanna. Sumarveiðarnar hafa gengið fremur illa Nú um miðjan september aflaði Faxi sér frétta um aflabrögð sum- arsins á hafnarvogunum hér á Suð- urnesjum. Heita má að sameiginleg niður- staða þeirrar athugunar leiði í ljós að sumarveiðar hafi almennt gengið treylega. Kenna menn þar einkum um gæftaleysi og minnkandi fisk- §engd á heimamiðum. Grindavíkurhöfn Stærri Grindavíkurbátamir hafa fiestir verið á rækjutrolli úti fyrir ^estfjörðum og Norðurlandi. Þor- bjarnarbátarnir hafa landað á Skagaströnd og afli þeirra verið keyrður til Grindavíkur og unninn þar. brír bátar fengu leyfi til síldveiða í vor en sú tilraun gaf ekki þann ár- angur sem vænst var. Humarveiðamar gengu glompótt bæði vegna aflatregðu og lélegra 13 Mr Pétursson ÞH50 (heimahö/h sinni, Sandgeröi. Skipiðersmfðað (Skipasmíðastðð Marsellíusar Bemharðssonará ísafirði. Það er 143 tonn að stcerð og er í eigu Njarðar h/f. Skipstjóri er Páll Kristjánsson. gæfta. Eftir að netaveiðibanni sum- arsins lauk, um miðjan ágúst, hafa þrír bátar lagt net og fengið bærileg- an ufsaafla. Línuafli hjá Skarfi og Eldeyjar- Hjalta hefur verið nokkuð góður. Nýlega lönduðu þeir um 70 tonnum hvor af góðum þorski eftir viku út- hald. Hafði annar þeirra verið að veiðum fyrir austan en hinn fyrir vestan. Háberg hefur reynt fyrir sér með spærlingströll með litlum árangri til þessa. Heildarafli í Grindavfk frá 1. júní til ágústloka var þessi: Bolfiskur slitinn humar sfld spærlingur og rækja 2360 tonn 60,9 tonn 870 tonn 50 tonn 36 tonn Þessu til viðbótar var gáma- og saltfiskur á land kominn í júní og júlí 864 tonn. Sandgerðishöfn Frá Sandgerði hafa í sumar verið seldir margir bátar. Þeirra á meðal em Mummi GK, stór og ágætur ver- tíðarbátur. Harpa RE, sem er loðnuskip, og að minnsta kosti eftir- taldir minni bátar: Fram, Hrefna, Sóley og Ragnar. Að undanfömu hefur sölum minni báta fjölgað mik- ið. Er þar á ferðinni ,,hið versta mál“, því þannig er að þessir bátar fara oftar en hitt í úreldingu, en kvóti þeirra er yfirfærður, einkum yfir á frystiskip sem fullyrt er að stundi a.m.k. sum hver smáfiska- rányrkju af verstu gráðu. Til nýlundu hefur hins vegar borið að nýtt stálskip, Þór Pétursson ÞH 50, bættist í flota Sandgerðinga í byijun spetember. Þór Pétursson er 143 tonna frystiskip, sem stunda mun rækju og flatfiskveiðar. Skipið er smíðað í Skipasmíðastöð Mar- sellíusar Bemharðssonar á ísafirði, en Njörður hf. í Sandgerði er eig- andi skipsins og gerir það út. Á tímabilinu 15. maí til ágústloka var bátaafli á land kominn í Sand- gerði 2600 tonn í 1248 löndunum. Tbgaraafli var 2328 tonn í 17 lönd- unum. Frosin rækja 138 tonn, grá- lúða 28 tonn og slitinn humar 41 tonn. Landshöfn Kefiavík- Njarðvík Úr yfirliti um landanir í Keflavík- Njarðvík, 15. maí til 13. sept., má meðal annars draga eftirfarandi fram: Bátaafli 2099 tonn trilluafli 202 tonn togaraafli 494 tonn Mestan afla netabáta á umræddu tímabili hefur Happasæll KE 94, 70 tonn, en rétt er að hafa í huga að netaveiðibann hefur verið megin- hluta tímabilsins. Eldeyjar-Hjalti hefur landað um 90 tonnum af línufiski. Dragnótabátar á skrá em 10 tals- ins með samtals 1140 tonna heildar- afla. Stafnes KE 130erlangaflahæst dragnótabátanna með um 377 tonna afla. En sem kunnugt er frystir Staf- nesið að stærstum hluta afla sinn um borð. Alls hafa 36 litlir færabátar lagt afla á land í sumar. Áberandi bestan afla þessara minni báta hefur Jaspis KE 227. Hann hefur aflað um 16 tonn á færi og 34 tonn á línu. Almennt þykir sjómönnum af- rakstur sumarsins rýr. Kenna þeir helst um risjóttu tíðarfari og minnk- andi fiskgengd á heimamiðum. Einnig er svo víða þannig komið að kvóti skipa er á þrotum eða þrotinn. Fiskmarkaður Suðurnesja tveggja ára Fiskmarkaður Suðumesja varð tveggja ára 14. september. Er álit flestra að hann sem og aðrir slíkir, hafi sannað ágæti sitt á ýmsan hátt. Aðrir álíta hins vegar að stundum hafi markaðsverð otðið hærra en raunhæft geti talist og eigi það þá einkum við á liðnu sumri, þegar hvert markaðsmetið af öðm hefur verið slegið. FAXI 191

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.