Faxi - 01.09.1989, Page 12
pungaprófið. Ég taldi einnig að það
gæti reynzt mér vel að hafa líka vél-
stjóraréttindi svo að ég fór næst á
mótomámsskeið og fékk mótorista-
réttindi, eins og þá var kallað.
Árið 1914 varð ég svo vélstjóri á
fyrsta íslenzka landhelgisgæzlu-
bátnum, Agústi. Það var annað ár-
ið, sem Agúst var við gæzluna. Þetta
var 15 tonna pungur og náttúrlega
ekki hægt að vinna nein hervirki á
honum önnur en reyna að ná núm-
erum togaranna og kæra svo, en al-
veg tvímælalaust gerði þessi gæzla
þó gagn. Löngu seinna var ég svo í
landvöm á eigin báti, Jóni Finns-
syni I.
Þeir vom ágengir brezku togar-
amir . . .
Það má nú segja. Þeir mega
skammast sín Bretamir fyrir rán-
yrkjuna hér fyrr og síðar . . . Þeir
vom oft á tíðum alveg uppí land-
steinum . . . ég man eftir einum
sem strandaði hér í Gerðahólman-
um með vörpuna úti. . . það gerði
nú reyndar einn íslendingur líka,
en það er sama, það var ekkert svip-
að, hvað Bretamir sóttu meira inn í
landhelgina, að minsta kosti á þess-
um slóðum héma.
Ég man ekki eftir því þessi ár sem
ég var viðriðinn gæzlu hér í sunnan-
verðum Flóanum, að við þyrftum að
kæra íslending. Sjálfsagt hafa þeir
skotizt eitthvað innfyrir á nætumar,
Jón Finnsson III.
en það vom ekkert svipuð brögð að
því og með brezku togarana, sem
vom hér leynt og ljóst uppí land-
steinunum ámm saman . . . nei,
þeir gerðu ekki svo mikinn usla í
netunum, þeir komu svo seint á vor-
in að menn vom almennt búnir að
taka upp net . . . en það var línan á
vorin og haustin, því að þeir vom
hér framá haust.
TFöllaróðrar . . .
. . . nei, ég var sjálfur aldrei með
í þessum tröllróðrum svonefndum.
Það var áður en ég byijaði róðra, en
ég man vel eftir þeim. Héðan úr
Garðinum var þetta nú aðallega
stundað af bátum tveggja útgerðar-
manna . . . Þeir fengu mikinn fisk
úr togurunum. Mér er f fersku
minni eitt dæmi um það. Það hafði
verið landsynningsrok og togaramir
legið allir inn undir Stapa, og svo
þegar lygndi, eins og hann gerir oft
hér í smástraumsflóð, þá héldu þeir
allir strax á miðin til veiða. TVeir for-
menn héðan fóm út til þeirra. Um
fjögurleytið um daginn vom þeir
búnir að sækja annar tvo báta full-
fermd, hinn þijá, af spriklandi fiski
úr togumnum.
Tbgarakarlamir áttu mjög erfitt
með það á þessum ámm að inn-
byrða vörpuna með miklum fiski í,
og þá höfðu þeir það svoleiðis, að
FRAMHALD Á BLS. 214
MUNIÐ
ORKU-
REKNINGANA
Eindagi orkureikninga er
15. hvers mánadar.
Látið orkureikninginn
hafa forgang
Hitaveita
Suðurnesja
Útivistartími
barna
Samkvæmt lögum um útivistartíma
barna á tímabilinu 1. september til 1.
maí, er börnum 12 ára og yngri ekki
leyfilegt að vera á almannafæri eftir
kl. 20 nema í fylgd med fullorðnum.
Sömuleiðis er börnum yngri en 15
ára óheimil útivist eftir kl. 22 nema í
fylgd með foreldrum eða á heimleið
frá viðurkenndri æskulýðsstarfsemi.
Barnaverndarnefnd
Keflavíkur
200 FAXI