Faxi

Årgang

Faxi - 01.09.1989, Side 15

Faxi - 01.09.1989, Side 15
Til samanburðar má geta þess, að septemberveðrið mikla 1936, var aðeins hálfdrættingur á við Þetta ofsaveöur. í verstu hryðjunum 1936, mældust í Reykjavík, 65 hnútar. Sextíu og fjórir hnútar eru tólf vindstig. í septemberveðrinu fórst franska rannsóknarskipið Pourqui Pas? Veðrið 1973 olli tug- ef ekki hundruð milljóna króna tjóni, eink- umásuður-, vestur-og norðurlandi. Óveðursdagana var stórstreymt og því meiri hætta á ferðum. Sjómenn voru þvi víðast við báta sína. í Kefla- víkurhöfn rak upp v.b. Snorra KE 131. Hann var gamall átján lesta eik- arbátur. Hann náðist fljótlega út og skemmdist lítið. í Sandgerði lágu þá átján bátar sem brotnuðu meira og minna. Að- eins sex þeirra sluppu frá veruleg- um skemmdum. Steinunn gamla KE 69, á þar í höfninni, og sökk. Er hún náðist upp, var hún talin ónýt. Er veðrið skall á, var vindátt í Sandgerði suðaustlæg en lítið skjól. Töldu þásjómenn þar, að þet- ur væri kominn garðurinn í suður- höfninni, sem til umræðu hafði ver- ið i tíu til fimmtán ár. En gerö garðs- ins, hófst rúmu ári eftir að óveður þetta geysaði. Steinunn gamla KE 69, var 87 lestir, smíðuð úr eik i Svíþjóð 1946. Eigendur hennar þá voru Ólafur E. Einarsson o.fl. í Keflavík. Báturinn gekk um árabil frá Keflavík, en sið- ustu árin frá Sandgerði. Var hann þá í eigu Miðness h.f. Steinunn gamla var skrásett i Keflavík og er þess vegna getið hér í annálnum. (Mbl. 25. sept. 1973: „Vindhraðinn ( 108 hnúta“. Mbl. 25. sept. 1973: ,/Ibgmilljón króna tjón en engir mannskaðar“. Mbl. 25. sept. 1973: Bát sleit upp ( Keflavík*4. Tíminn 25. sept. 1973: „Veðrið óg- urlegt“). Óttast um v/b Stakk Um tvö leytið, aðfaranótt 17. nóvember 1973, fór v.b. Stakkur KE í róður frá Keflavík, án þess að til- kynna það. Er leið á morguninn gerði noröaustan strekking, sem jókst er leið á daginn. Héldu þá flestir Keflavíkurbátar til heima- hafnar, en Stakkur, sem var ellefu lesta bátur, var ókominn. Reynt var að kalla bátinn uppi í talstöð, en það bar ekki árangur. Um sjö leytið um kvöldið náðist loks samband við Stakk. Sagði skipstjóri, að bilun hefði orðið í stýrisbúnaði, og kvaðst Stcinunn gamla var hyggd íSviþjöd 1947 og var 87 tonn. lvssi mynd erlíklega tekin um 1960 og sýnir hdtinn med síldarnotina um bort) á leid á Sudurlandsmit) frá Keykjavtk. Steinunn gamla KE 69. Myndin sýnir glögglega hinar miklu breytingar sem un)u á hátnum þegar sett var á hann nýtt stýrishús og hvalbakur í Dráttarhraut Keflavíkur árið 1963. Stakkur Kli 86. 11 tonna súdbyrðingur. hann ætla að liggja yfir línunni til morguns. Gaf skipstjóri því næst uppstaðarákvörðun. Þarsem veður var ekki gott, en sjór talsverður, var óttast um bátinn um nóttina, er í hönd fór. Er ekkert heyrðist frá bátnum um nóttina var hann kallað- ur upp með veðurfregnum kl. 4.30 um loftskeytastöðina í Reykjavik. En ekkert heyrðist frá Stakk. Klukkan átta að morgni 18. nóvember, var hafin skipulögð leit að bátnum. Leitarflokkar gengu fjörur og tíu bátar leituðu á sjó. Auk þess leitaði flugvél úr lofti. Auglýst var eftir bátnum i hádegisútvarpinu sama dag og ét hann þá heyra frá sér. Fannst báturinn síðan og dró Hamravík KE 75, línu hans, en Stakkur hélt inn til Keflavikur. (Sudum.tfÓindi 23. nóv. 1973: ,,Báts saknað“). FRAMHALD Í NÆSTA BLAÐI BÓKASAFN NJARDVÍKUR Grunnskólanum - Sími 11015 Skóla- og almenningssafn Almenn útlán: 1. sept. — 31. maí mánudaga kl. 16- -20 þriðjudaga kl. 15- -19 miðvikudaga kl. 15- -19 fimmtudaga kl. 19- -22 laugardaga kl. 13- -15 1. júní — 31. ágúst mánudaga kl. 16- -20 þriðjudaga kl. 15- -19 fimmtudaga kl. 19- -22 FAXI 203

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.