Faxi - 01.09.1989, Síða 16
SKÓLAR
A SUÐURNESJUM
GRUNNSKÓLINN SANDGERÐI 1938 TIL 1988
50 ára afmæli
Síðastliðið haust var Grunnskól-
inn í Sandgerði settur í fimmtugasta
skipti á núverandi stað. Árið 1938
var skólinn allur kominn undir eitt
þak, en áður hafði starfsemin farið
fram á fleiri en einum stað.
Skólahúsið sem tekið var í notkun
1938, var u.þ.b. 300 m2. Það er enn
í fullri notkun. Árið 1960-61 bætt-
ist við 468 m2 álma, þannig að þá var
húsnæðið í heildina um 800 m2. Nú
í haust, á fimmtíu ára afmæli skól-
ans, bættist 409 fermetra áfangi við,
þannig að nú er heildarkennsluhús-
næði um 1200 m2 auk rúmlega 1000
m2 íþróttahúss og sundlaugar. Enn
er þó langt í land með að húsnæðið
fullnægi þörfúm skólans, en áætlað
er að það þurfi að vera u.þ.b. 3000
m2.
Á þessu fimmtíu ára tímabili hafa
fjórir skólastjórar verið við stjóm
skólans, þeir Valdimar Össurarson,
sem var skólastjóri 1930 til 1946,
Aðalsteinn Tfeitsson 1946 til 1957,
Sigurður Ólafsson 1957 til 1985 og
Guðjón Þ. Krisljánsson fiá 1985.
Árið 1986 var Ásgeir Beinteinsson
ráðinn fyrsti yfirkennari við skól-
ann.
Á undanfömum árum hafa skól-
anum borist margar veglegar gjafir.
Fermingarsystkini fædd 1948 færðu
skólanum að gjöf áritaða mynd af
Sigurði heitnum Ólafesyni í tilefni
af 25 ára fermingarafmæli sínu.
Fermingarsystkini tædd 1953
færðu skólanum veglega bókagjöf
til byijunar skólasafns.
Fermingarsystkini frá 1958 færðu
skólanum 50 þúsimd krónur til
kaupa á tölvubúnaði.
Á hátíðarsetningu í tilefhi af
fimmtíu ára aftnæli skólans gaf
Lionsklúbbur Sandgerðis honum
þijár tölvur sem em ánægjuleg við-
bót við skólastarfið. Þær auðvelda
öll störf við stjómun skólans.
Verkefnagerð verður auðveldari og
aðgengilegri, verkefhin skemmti-
legri og tölvur verða spennandi inn-
legg í kennsluhætti skólans.
Þá barst skólanum vegleg bóka-
gjöf, um 700 bindi, auk 50.000
króna frá íbúum Miðneshrepps.
Gjöf, sem sýnir ómetanlegan hlý-
hug og velvild.
Foreldrafélag skólans hefur stutt
við bakið á ýmsri starfcemi skólans
og fært honum veglegar gjafir.
Skólastarf í 50 ár
í skólahaldsskýrslu frá árinu 1938
til 1939 kemur fram að í skólanum
vom þá alls 66 nemendur í þremur
deildum. kennarar vom 3.
í dag em skráðir nemendur 250 í
fimmtán deildum. Að kennslu
starfa nú 20 manns auk 6 annarra
starfemanna.
Þegar skólastarf hófet hér á núver-
andi stað vom fræðslulögin ffá 1907
í gildi, en skólaskylda ffá 7-14 ára
aldurs hafði verið lögleidd árið
1936. Luku nemendur þá svo-
nefndu fullnaðarprófi.
Skólinn sem hóf starfsemi slna 1938 (gamli skóli).
204 FAXI