Faxi - 01.09.1989, Side 20
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
skömmu, þegar vetrarstarflð var
rétt að heQast og ræddi við kennara
og nemendur. Skólinn var skoðaður
undir leiðsögn Guðjóns skólastjóra
og Ásgeirs yfirkennara. Það sem hér
fer á eftir eru nokkrar glefsur úr
þeirri för.
Skólahúsnæðið
Eins og fyrr hefur venð frá skýrt,
þá hófst kennsla í núverandi hús-
næði skólans á árinu 1938. Síðan þá
hefur margoft verið byggt við skól-
ann, nú siðast mjög góð kennslu-
álma, sundlaug og mjög gott
íþróttahús. Allt húsnæðið er mjög
aðlaðandi og ber glöggt vitni um
góða umgengni. í viðtölum við
nokkra nemendur skólans kom í
ljós, að þótt þeir teldu sig eiga jafirt-
vel eitthvert hrós skilið fyrir góða
umgengni, þá vildu þeir fyrst og
fremst þakka hana honum Einari
Valgeirssyni húsverði. Einnig er at-
hyglivert, hversu góð samræming er
milli allra bygginganna sem þó eru
byggðar á svo mismunandi tímum.
Þá kom fram í frásögn Guðjóns að
árlega er sérstökum tíma hjá nem-
endum varið í að snyrta og hreinsa
til í umhverfi skólans. Þar að auki
sér 6. bekkur um að græða upp
ákveðin svæði í hreppnum.
Við skoðuðum m.a. kennslustofu
fyrir heimilisfræði sem Guðjón
sagði að væri mjög vinsælt fag. Þar
kennir Helga Karlsdóttir og var far-
ið að hennar leiðbeiningum, þegar
stofan var innréttuð. Þar fá nemend-
ur góða leiðsögn í flestum heimilis-
störfum, s.s. matseld, þvottum og
hreingemingum. Og ekki skemmir
það að setjast til borðs og snæða
þann mat sem maður hefur sjálfur
eldað. Þá eru einnig þjálfaðir al-
mennir borðsiðir.
Smíðastofa skólans er í bráða-
birgðahúsnæði í íþróttahúsinu, þar
sem síðar munu koma búnings- og
baðklefar. Smíðakennari er Mekkín
ísleifsdóttir, en á meðan hún er í
leyfi, þá kennir smíðina Haraldur
Valbergsson.
Það er nú þannig um skólahús-
næði, kannski umfram annað hús-
næði, að um leið og nýtt hús hefur
verið byggt, þá er það fljótlega orðið
of lítið. I samræmi við þessa kenn-
ingu, þá em þeir Sandgerðingar
famir að velta fyrir sér næstu við-
byggingu. Hvenær úr henni verður
veit enginn, en sem betur fer er
skólinn það vel settur, að nægilegt
landrými er fyrir hendi. Verður
gaman að fylgjast með því hvað ger-
ist í þeim málum á næstu ámm.
Kennsluhættir
Sá sem þetta ritar starfaði við
kennslu um nokkurt skeið fyrir
tveimur áratugum og telur sig því
vera í góðri aðstöðu til að átta sig á
þeim breytingum sem orðið hafa á
kennsluháttum. Ekki er nokkur
vafi á því í mínum huga, að mikil og
góð þróun hefur átt sér stað í þeim
efnum og er greinilegt að þar er
Sandgerðisskóli engin undantekn-
ing. Mikil áhersla er í dag lögð á að
kenna nemendum sjálfstæð vinnu-
brögð og nám hvers nemenda sé við
hæfi. Sérkennsla er fyrir hendi
bæði fyrir yngri og eldri nemendur
og einnig aðstoð við heimanám sé
þess óskað. Gamli góði fjölritarinn
er horfinn en í staðinn em ljósritun-
arvélin og tölvan komin til skjal-
anna. Kennarar hafa náð mikilli
leikni í notkun ljósritunarvéla og
smátt og smátt em þeir að uppgötva
hina geysimiklu möguleito tölv-
anna. Þá em nemendum víða gef-
inn kostur á námi í notkun tölva.
Við höfum áður í þessum þáttum
minnst að vinnuáætlanir sem kenn-
arar hafa vikulega lagt fyrir nem-