Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1989, Síða 28

Faxi - 01.09.1989, Síða 28
Ég var að koma heim eftir eins árs dvðl í Frakklandi og mig langaði að segja ykkur aðeins frá henni. Ég var í Frakklandi á vegum skiptinemasamtakanna AFS eða American Field Service en þau hafa starfað sjálfstætt í ein 32 ár hér á landi. Ég kunni lítið í frönsku er ég lagði af stað héðan í ágúst ’88. Haldið var undirbúningsnámskeið fyrir okkur þtjá fyrstu dagana, þ.e.a.s. fyrir þessa 117 krakka frá 24 löndum, sem komnir voru í sama tilgangi og ég; að kynnast einhveiju öðru. Á þessu undirbúningsnámskeiði lærðum við um siði og venjur Frakka sem okkur þótti hálf bros- legar fyrst en urðu svo sjálfsagður hlutur er leið á dvölina, eins og t.d. að láta brauðið ekki á diskinn held- ur við hliðina á honum og margt fleira. Eftir þetta námskeið komu fjöl- skyldur hvers og eins að ná í sinn skiptinema. Ég var svo heppin að fá fjölskyldu í Seine-St. Denis-sýslu, í Villepinte, sem er 30.000 manna smábær 15 km norður af París og telst hann til hins svokallaða stór- Parísarsvæðis. Fósturfjsölskylda mín var mjög ólík minni eigin. í henni voru for- eldramir og svo 2 stelpur, 18 og 21 árs. Þau voru öll mjög þröngsýn og allt gekk út á að spara, þó þau væru alls ekki illa stæð. Ég mátti t.d. ekki opna tvær mjólkurfemur á sama tíma eða tvo kexpakka, það átti bara að opna fyrst eitt, klára það og opna svo annað. Ég lærði helling á þessu og núna finnst mér íslendingar bmðla svo mikið með allt. Allt er opnað í einu og svo hent hálfétnu. Þama úti var aldrei neinu hent. Pabbinn leit á sig sem ruslatunnu, ef við vildum það ekki, þá át hann það. Þetta var kaþólsk fjölskylda. og mamman var mjög trúuð, þess vegna fór ég ekki mikið út á kvöld- in. Þetta vissi ég ekkert um fyrstu dagana og fór eitt kvöldið út að borða með nokkrum krökkum úr FRAKKLAND OG JÓRDANÍA * A EINUÁRl Friðrikka Kr. Stefánsdóttir segir frá skólanum og kom heim kl. hálfeitt um nóttina og allt varð vitlaust. Seinna komst ég að því að það væri ekki ráðlegt að vera ein á ferð eftir kl. 20.00 á kvöldin því þá var Villepinte-lestastöðin orðin mjög hættulegur staður vegna allra arab- anna sem héngu þar og hreinlega biðu eftir fómarlambi. Ég fór nú samt oft til Parísar og var þá bara yfir nótt ef ég fór eitthvað út með hinum AFS krökkunum á kvöldin. Við vomm 12 á Parísar- svæðinu og héldum alltaf fundi u.þ.b. einu sinni í mánuði, bæði til að skemmta okkur og svo til að ræða vandamál ef einhver vom, og um reynsluna í heild. Ég var í skóla í Villepinte. Hann var alveg ferlega subbulegur að inn- an, krot á öllum veggjum. Sumstað- ar alveg heilu tilkynningamar um tónleika. Kennaramir mættu svona þegar þeir vom búnir að reykja frammi á gangi með krökkunum og svo voru krakkamir sjálfir að tínast inn eitt og eitt alveg þar til 20 mín. vom búnar af tímanum en hver kennslu- stund var 1 klst. Þetta var samt misjafnt eftir kenn- umm. Sögukennarinn lét okkur ekki komast upp með neitt slíkt, öskraði bara og æpti og barði í borð og greindi frá fasismanum á Ítalíu 1923-1943. Ég náði nú mest litlu af því sem hann sagði. Hann tjúllaðist alveg í fyrsta tím- anum því ég þúaði hann, en í Frakk- landi ber manni að þéra alla sína kennara til að sýna þeim virðingu og eins til að halda vissri „nemandi- kennari" fjarlægð. Þóra vinkona kom til mín um jólin svo ég fékk enga heimþrá. Hún hafði verið ,,au-pair“ í I.ondon en kom yfir til Parísar í 2 vikur svo að það reddaði alveg þessari heimþrá, sem ég hafði verið svo viss um að fá. Það var ofsalega gaman að fá hana og að tala íslensku fannst mér alveg meiriháttar. í febrúarlok fór ég svo með Einna, Gunna og Sibbu í íþróttahöllina Bercy á heimsmeistarakeppni B- 216 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.