Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 4

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 4
Daginn cftir óvcðru) i Grindavfk. Fárviðri 9. janúar Aftakaveður gekk yfir landið 8. og 9. janúar og náði það hámarki hér suðvestanlands á flóðinu aðfara- nótt 9. janúar. Þá varð tug milljóna kr. tjón af völdum sjógangs, sem rauf sjóvarn- argarða í Grindavík, Stokkseyri og á Eyrarbakka. í Grindavík varð einnig tilfinnan- legt tjón á bryggjum; Kvíabryggja eyðilagðist og Eyjabakki stór- skemmdist. Sjór gekk langt upp á land og flaut inn í fiskverkunarhús. Veginn frá Grindavík út á Reykja- nes tók af á um 150 metra kafla, þó er vegastæðið á þeim stað í um 400 metra fjarlægð frá sjó. Stórbruni í Sandgerði í Sandgerði brunnu til kaldra kola í óveðrinu tvær sambyggðar fisk- vinnslustöðvar. Voru það fiskverkunarhús Erlings Jónssonar og Svavars Ingiberssonar að Strandgötu 24. Slökkviliðin í Sandgerði af Kefla- víkurflugvelli og frá Brunavörnum Suðurnesja í Keflavík börðust við eldinn, en húsin voru þe' r alelda þegar að var komið og m. Á að tak- ast skyldi að forða nærliggjandi hús- um frá eldskemmdum, en yfir þau stóð neistaflug og plötufok. Af öryggisástæðum urðu íbúar nokkurra húsa við Vallargötu að yfirgefa íbúðir sínar um tíma. Naut fólk góðrar aðstoðar björg- unarsveitarmanna við þá flutninga og eins við að negla fyrir glugga þá sem þótt hættulega nærri eldhafinu og neistafluginu. I Sandgerðishöfn gekk sjór á land á flóðinu. Þar stóð uppi bátur Svavars Ingiberssonar m/b Sóley KE 15. í sjóganginum losnuðu búkkar undan bátnum og féll hann þá á vörubíl Svavars og skemmdist bæði báturinn og bíllinn talsvert. Tölvuskóli Fjöibrautaskóla Suðurnesja Námskeið í boði á vorönn 1990 Um leið og við bjóðum gleðilegt ár viljum við vekja athygli á þeim námskeið- um sem verða í boði á vorönn 1990: Grunnnámskeið, WP-ritvinnsla, byrjenda og fyrir lengra komna, gagnagrunnur (dBASE), töflureiknir (Multiplan) og OPUS bókhaldsbúnað. Tölvuskóli FS hefur yfir að ráða mjög góðri aðstöðu til kennslu og þar hefur hver nemandi tölvu fyrir sig og fjölda nemenda á hverju námskeiði stillt í hóf, þannig að það er hægt að sinna hverjum og einum eins og þörf er á. Athygli skal vakin á því að stéttarfélög borga hluta af námskeiðsgjaldi fyrir félagsmenn sína og að þetta eru ódýr námskeið sem nýtast mönnum vel í leik og starfi. Einnig skal vakin athygli á því að það er hægt að fá aðstöðuna leigða með eða án kennara. Magnús B. Hallbjörnsson Umsjónamaður TFS. 4 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.