Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 29

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 29
segir m.a. eftirfarandi: „Suöurnes bjóöa upp á ótrúlega mikla möguleika í ferðaþjónustu. Aöeins lítiö brot þeirra er nýtt sem skyldi." í náminu, sem er kvöldnám, er farið yfir nokkra undirstöðuþætti ferðaþjónustu, s.s. störf á ferðaskrifstofu, markaðsfræði, sölutækni og kynningu á áhugaverðum stöðum svo eitthvað sé nefnt. Það vekur ánægju í hvert skipti sem eitthvað nýtt er gert sem stuðlar að betri nýtingu á þeim möguleikum sem landið okkar býður upp á. Útlán myndbanda aukast hjá bókasafninu Nýlega kom fram hjá Bæjar- og héraðsbókasafninu í Keflavík, að útlán myndbanda hefðu aukist mjög mikið. Er því gert ráð fyrir að auka mjög kaup á myndböndum á næstunni. Á myndböndum þessum er helst að finna barnaefni, ýmiss konar fræðsluefni og reyndar nokkrar kvikmyndir. Endurmenntun hjá VSFK í nóvember og desember sl. var starfsfólk hins svonefnda flugeldhúss hjá Flugleiðum á endurmenntunarnámskeiði hjá VSFK. Alls voru það 26 konur sem sátu námskeiðið sem var alls 44 klukkustundir. Efni nám- skeiðsins var sérstaklega sniðið fyrir þau stðrf sem unnin eru í flugeldhúsinu. Eftirtaldir leiðbeinendur kenndu á námskeiðinu og voru viðfangsefni þeirra sem hér seg- ir: Jón Sigurðsson: Flugleiðir, fólk og þjónusta. Mikilvægustu atriði og samstarf á vinnustað. Emil Thoroddsen: Mannleg samskipti og samstarf á vinnustað. Guðrún Ólafsdóttir: Vinnuréttur og tryggingar. Brynhildur Briem: Meðferð matvæla og vöruþekking. Magnús Ólafsson: Starfsstellingar og vinnuvernd. Þátttakendur voru mjög virkir á námskeiðinu og almenn ánægja ríkti með þá fræðslu sem þar fékkst. Er sérstaklega ánægjulegt, hvað vel gengur að halda úti þessari starf- semi hjá verkalýðsfélaginu. Rétt er að geta þess, að námskeið þessi eru haldin í samvinnu við Menningar- og fræðslusamband alþýðu. Við höfðum samband við Sig- urbjörgu Þorsteinsdóttur sem var ein þeirra kvenna sem tóku þátt í námskeiðinu. Við spurðum fyrst, hvernig henni hefði líkað. „Mér líkaði mjög vel, þetta var ágætt námskeið og þar kom fram margt fróðlegt, já og líka gagnlegt gæti ég trúað." Hvað fannst þér áhugaverð- ast? „Þetta var nú allt áhugavert, en fræðslan um meðferð matvæla situr kannski lengst eftir í huganum. Eg finn það, að eftir námskeiðið, þá gef ég þessum hlutum meiri gaum. Ég les t.d. mun betur allar merkingar, því nú veit ég betur hvað þær þýða. Ég átta mig líka betur á þeim efnum sem eru í matvælum." Nú var þetta námskeið haldið utan ykkar vinnutíma. Var það erfitt fyrir ykkur að sækja það? „Nei, ekki vil ég segja það, enda er það nú þannig yfir veturinn þeg- ar minna er að gera, að vinnutíminn er frá klukkan átta á morgnana til klukkan hálf fimm á daginn. Þetta er því góður tími til að halda svona námskeið." Fáið þið greitt fyrir að sitja svona námskeið? „Nei, ekki er það svo, en við fáum aftur á móti nokkra kauphækkun að afloknu námskeiðinu." H.H. Hcr scst Kurl Stcinur Oudnuson, /brmudur VSI-'K u/hcndu Sigurborgu Ikirsteins- dóltur lokuskirteini fyrir númskeidib. A þessuri invnd cr hinn úgceti hópur stur/s/ólks flug- cldhússins og vur myndin tckin vid u/hcndingu skír- tcinu uð númskciðinu loknu. ■ \ nnTid/nni cru tuldur frú vinstri. A/iustu röð: Kristfn l’jnnhogudótlir, Ouðriín Olufsdóttir, Murgrcl Ounn- luugsdöttir, IClin l’úlsdöttir, Annu Skuftudóttir, Auður Ouðmundsdóttir og Sigur- hjörg l’orstcinsdóttir. Miðröð: hrnu Sigurðurdóttir, Sigur- hjög Ouðmundsdöttir, Svulu Orímsdóttir, Sigríður Murcls- dóttir, Lilju Ounnursdóttir, Uiilu Vulgcirsdöttir, Hjördís Ouðmundsdóltir, \’igdís Sig- urjönsdöttir og Ouðrún Ótufsdóttir, stjörnundi núm- skeiðsins. I'remstu röð: Bcrg- þóru Huldu Ólufsdótlir, Ingi- þjörg Oísludóttir, Junc M. Olufsdöttir, Hclgu Alherts- dóttir og ()löf Lilju Sigurður- dóttir. ICftirtuldir þúlttuk- cndur voru ckki viðstuddir myndulökunu: Ingunn Ouðnudóttir, Björg Ounnurs- dóttir, l‘'rcyju Kjurtunsdóttir og L'innu l’úlmudóttir. FAXI 29

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.