Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 15

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 15
dikt Benediktsson við starfi hans og gegndi því í eitt ár. Rúnar Þorvalds- son tók við af honum og var hann einnig skólastjóri í eitt ár. í fundar- gerðum skólanefndarinnar, frá þessum tíma, kemur fátt annað fram en að gera þurfi miklar endur- baetur á skólanum, þar sem hann vaeri orðinn mjög lélegur, héldi hvorki orðið vatni né vindi, dúkar lélegir, salerni vaegast sagt mjög lé- *eg og það sem mestum vandraeð- um ylli væri það að drykkjarvatn væri orðið mjög mengað. Það gekk erfiðlega að fá þessi atriði lagfærð og sérstaklega hverjir ættu að láta framkvæma þessar endurbætur, hreppsnefndin eða skólanefndin. Samkomulag náðist þó milli aðilja um að eðlilegast væri að láta skóla- nefndina um málið. Einnig mun fjár- skortur hafa tafið framgang málsins. Arið 1970 var rætt um að koma nemendum unglingadeildar fyrir í Gagnfræðaskóla Keflavíkur. Ástæð- urnar fyrir því voru þær, að menn töldu að nemendur væru ekki nægi- lega margir til þess að hægt væri að hafa þá í tveimur bekkjardeildum. Skólanefndin taldi það einnig hæp- >ð að einn eða tveir kennarar væru Viö vígslu Stóru-Vogaskóla 1979 flutti Stefán Hallsson ávarp. Hefur hann efalaust haft margs aó minnasl frá kennslustörfum sinum á „Ströndinni". Stefán kom ad Brunna- stadaskóla 1934. Þegar skólaakstur var upp tekinn áriö 1942, þá varö hann fyrsti bíl- stjórinn. SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM það vel að sér að þeir gætu kennt allar þær námsgreinar sem kenna ætti í unglingadeildum. Ákveðið var að leita álits foreldra á þessu máli. í Ijós kom að þeir voru mjög andvígir þessari ráðagerð. Töldu þeir að það væri bæði skaðlegt fyrir hreppinn og fyrir andlegt og félags- legt atgerfi nemenda. Því var horfið frá þessu, en þó var hugmyndinni haldið á lofti næstu ár og náði há- marki árið 1972. Þá hafði mennta- málaráðuneytið samið skýrslu um framtíðarskipan skólamála á Suður- nesjum. Þar kom fram það álit að flytja ætti öll skólabörn eldri en 10 ára til nærliggjandi byggðarlaga. Þessu var illa tekið af foreldrum og skólanefndinni. Rökin gegn þessu voru m.a. þau að þetta væri mjög læmt fyrir hreppinn þar sem ekki væri fýsilegt fyrir ungt fólk að setj- ast að í hreppnum ef engin skóli væri í honum og einnig það að fé- lagsstarf í skólanum byggðist að mestu á eldri nemendum. Flestir voru því sammála að þetta væri neyðarúrræði enda fór svo að ekk- ert varð úr þessu. FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI Pú ^œ^gnast Happaþrennctn okkar er vinsœlt og skemmtilegt happdrœtti. Miðinn kostar ekki mikið, en getur gefið mikið í aðra hönd. Sölustaöir í Keflavík: Aðalstöðin Básinn Brautarnesti Verslunin Hornið Nonni og Bubbi Ný-ung M'Ll^ON HAPPDRÆTTI HÁSKÖLA ÍSLANDS. UMBOÐSMAÐUR: HELGI HÖLM FAXI 15

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.