Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 25

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 25
framhald AF BLS. 8 skipta engu þegar vinir eiga í hlut. Þaö er mjög athyglisvert hversu Rótarýfélagar að norðan og sunnan í landinu leggja sig fram um að bæta samskipti landshlutanna og á milli þeirra hafa aldrei verið nein skil. Ekki komi til greina að skipta Rót- arý umdæminu eftir einhverjum landamærum, sem misvitrir aðilar hafi ákveðið fyrir löngu síðan. Allir vinna saman, sem ein heild að friði á milli þessara stríðandi fylk- •nga sem í landinu búa. Eins og þið sjáið eru það mikil og góð málefni sem þjónustuklúbbarn- ir eru að vinna að, bæði hér heima og erlendis. Og þótt við séum ekki stórir og bjrjun ars mikið áberandi hérna heima er margt verk unnið í kyrrþey, og það fer vel á því að vera ekki að flagga öllu sem gert er. Allir starfa þessir klúbbar að því að hjálpa þeim sem eru hjálparþurfi í sínu heimahéraði, hver á sinn máta. En til þess að geta starfað, þurfa þessir klúbbar að hafa á að skipa góðum og fórnfúsum félögum innan sinna raða, sem hafa tíma af- lögu til þess að gefa öðrum. I dag er svo komið að það er orðið erfitt að fá fólk til þess að sinna þess- um verkefnum og lenda þau því, á færri og færri höndum innan klúbb- anna, þótt félögum hafi fjölgað. En hvað er það sem veldur þesum tímaskorti fólks. Hér áður fyrr þótti það bráðnauðsynlegt að taka þátt í starfi eins eða fleiri félagasamtaka. Það var sama hvort það voru stjórnmálafélög, kvenfélög, leikfé- lög, hjónaklúbbar, björgunarsveitir eða klúbbastarfsemi, svo eitthvað sé talið upp. Þá þótti alveg sjálfsagt að vera fé- lagi í einu eða fleiri félögum og sækja fundi og aðra starfsemi þess- ara félaga. Það þótti gaman og nauðsynlegt að blanda geði við fólk, auk ánægj- unnar sem því fylgdi. Kunningja- hópurinn stækkaði og þekking á daglegu lífi annarra hópa í þjóðfé- laginu jókst. Fólk fór meira að segja í heim- sóknir, já tók í spil og naut þess að Oryggisbók -Trompbók „Tværí öruggnm vexti SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK Suðurgötu 6, sími 92-15800 Njarðvík, Grundarvegi 23, simi 92-14800 FAXI 25

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.