Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 6

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 6
MINNING Bjami F. Halldórsson fyrrverandi skólastjóri Fæddur 6. mars 1922. Dáinn 6. desember 1989 Minningar liðins tíma taka oft á sig ólíkar myndir. Þegar ég hugsa til míns góða og ógleymanlega vinar, Bjarna F. Halldórssonar, þá finnst mér einna helst, sem ég sé staddur undir heiðum himni, um- vafinn ylgeislum íslenskrar sum- arsólar. Tvær eru a.m.k ástæður þessa. Leiðir okkar Bjarna lágu fyrst saman á sólríkum sumardegi 1952. Sá dagur verður mér löng- um minnisstæður, þó að ástæður þessi verði ekki greindar hér. Til þess eru þær alltof persónulegar. Hin ástæðan er Bjarni sjálfur, við- mót hans og persónuleiki. Það birti alltaf, þar sem Bjarni var á ferð. í návist hans var löng- um notalegt að dvelja. Það geisl- aði frá honum góðleika og skiln- ingi, sem alltaf kom auga á hinar björtu hliðar í hverju máli og lét af- stöðu sína mótast af þeim, bæði hvað menn og málefni snerti. Það er síst að undra, þótt bjart sé yfir minningu slíkra öðlings- manna. Bjarni Fertram Halldórsson hét hann fullu nafni og fæddist hinn 6. mars árið 1922 að Hesteyri í Sléttuhreppi í Norður-ísafjarðar- sýslu. Foreldrar hans voru hjónin Halldór Marías Ólafsson og Ólöf Helga Fertramsdóttir. Bjarni var elstur af sjö börnum þeirra hjóna. Næst honum er Guðbjörg Hall- dóra, húsmóðir í Reykjavík, þá er Guðmundur Gunnar, vélsmiður, búsettur á Álftanesi, Ólafur, sjó- maður í Hafnarfirði, Ingólfur Sig- urjón, aðstoðarskólameistari í Keflavík, Margrét Indiane, hús- móðir í Reykjavík og yngst er Ragnheiður, húsmóðir í Reykja- vík. Einnig ólu þau hjónin upp eina fósturdóttur, Margréti Frið- bjarnardóttur, húsmóður í Kefla- vík. Hún lést árið 1986. Föður sinn missti Bjarni árið 1955, en Ólöf móðir hans er enn á lífi og dvelur á Hrafnistu í Reykjavík. Hún er vel ern, þótt komin sé hátt á tíræðis- aldur. Bjarni ólst upp hjá foreldrum sínum. Hann fluttist með þeim í frumbernsku að Berjadalsá á Snæ- fjallaströnd. Þar átti hann heima til 1926. Þá fluttist fjölskyldan til Hnífsdals og árið 1931 lá svo leiðin til ísafjarðar. Það kom fljótt í ljós, að Bjarni var mörgum þeim eiginleikum gæddur sem bentu ótvírætt til far- sællar framtíðar. Dugnaði hans og vinnusemi var snemma við brugð- ið. Og engum duldist, að á bóklega sviðinu skaraði hann langt fram úr flestum jafnöldrum Sínum. Gagnfræðaprófi lauk Bjarni á ísafirði vorið 1936. Eftir það þreytti hann utanskólapróf upp í 3. bekk Menntaskólans á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1942. Honum sóttist námið afburða vel, enda vart við öðru að búast, þegar saman fóru frábærar náms- gáfur og óbrigðull dugnaður. Hann var talinn mikill tungumála- maður, en einkum mun hann þó hafa skarað fram úr í íslenskri mál- fræði og málssögu. Þess vegna var það talið nokkuð vist af þeim, sem til þekktu, að hann myndi hasla sér völl í norrænudeildinni, þegar til háskólanáms kæmi. Úr því varð þó ekki. Viðskiptadeildin varð fyrir val- inu og úr henni útskrifaðist Bjarni með miklum sóma árið 1947. Að afloknu kandidatsprófi gerist Bjarni skrifstofustjóri hjá Inn- kaupasambandi rafvirkja h.f. í Reykjavík. En þar undi hann ekki hag sínum betur en svo, að hann hvarf frá því að ári liðnu og réðst til kennslustarfa við Barna- og unglingaskólann í Ytri-Njarðvík. Þeir sem þekktu Bjarna, skilja vel þessa ráðabreytni hans. Hann var, eins og bekkjarbróðir hans og vin- ur segir réttilega: „rakinn húman- isti og menntastefnumaður". Það kom líka fljótlega í ljós eftir að hann hóf kennslustörfin, að þar var hann á réttri hillu, kennari af Guðs náð. Haustið 1952, þegar Gagn- fræðaskólinn í Keflavík hóf starf- semi sína, gerðist Bjarni kennari þar og kenndi um tveggja áratuga skeið, til 1973. Yfirkennari var hann um langt árabil og skóla- stjórastarfi gegndi hann « 1963—1964. þegar skólastjórinn, Rögnvaldur J. Sæmundsson, var í ársleyfi frá störfum. Aðalkennslugreinar Bjarna voru danska og mannkynssaga. Sjálfur var hann einstaklega dag- farsprúður, lipur í öllum samskipt- um, Ijúfur og viðmótshlýr. Þessum eiginleikum beitti hann í kennslu- stundum sem og annars staðar. Nemendurnir voru líka fljótir að finna hvern hug kennarinn bar til þeirra og að hann vildi þeirra veg sem allra mestan. Þeir mátu hann líka mikils og ég hygg að flestum hafi þeim þótt innilega vænt um hann. Það var eins og hann laðaði fram allt það besta, sem með hverjum einstaklingi bjó. Nemendum fannst sjálfsagt að koma vel undirbúnir í kennslu- stundir til Bjarna, ekki af þvingun eða ótta við ákúrur, heldur ein- faldlega af því að þeim þótti vænt um hann og vildu ekki hryggja hann eða styggja. i Víðtækur fróðleikur hans og djúpstæð þekking komst og vel til skila í kennslustundum. Þess varð ég oft greinilega var þegar ég sem prófdómari fór yfir úrlausnir nem- enda hans. Á yngri árum stundaði Bjarni oft sjóinn á sumrin. Reyndist hann harla liðtækur þar sem annars staðar. Kynni okkar Bjarna urðu mikil og náin. Við kenndum lengst af saman í meira en 20 ár. Margt á ég f 6 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.