Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 26

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 26
MINNING Sigurbergur Helgi Þorleifsson frá Garði Fæddur 30. ágúst 1905. Dáinn 23. nóvember 1989. Það fækkar óðum þeim Garð- verjum sem settu svip sinn á byggðarlagið okkar. Sigurbergur H. Þorleifsson var fæddur að Hofi í Garði þann 30. ágúst 1905, sonur hjónanna Júlíönu Hreiðarsdóttur frá Hátúni í Prestbakkasókn og Þorleifs Ingibergssonar frá Slétta- bóli í Prestbakkasókn í Vestur- Skaftafellssýslu. Júlíana kom í Garðinn árið 1903 en Þorleifur ár- ið 1883. Sigurbergur tók mikinn þátt í félagslífi hér í Garði. Hann var formaður Ungmennafélagsins Garðars frá árinu 1932—1952, og hann tók þátt í leiklist. Sigurberg- ur var meðhjálpari í Útskálakirkju í 52 ár og í sóknarnefnd frá árinu 1928 til 1978, þar af formaður hennar frá 1950, safnaðarfulltrúi Útskálasafnaðar var hann frá 1972 til 1980. Sigurbergi þótt afar vænt um Útskálakirkju, kirkjuna sína. Hann stóð að því að steypa garð utan um kirkjugarðinn og vann við það sjálfur. Þessi garður var mjög vel gerður og stendur enn í dag óskemmdur. Hann stóð að því með sóknarnefndinni að stækka fordyri Útskálskirkju og koma þar fyrir hreinlætisaðstöðu og vísi að skrúðhúsi, ásamt geymslu fyrir graftól, einnig að setja nýtt járn á þak hennar ásamt fleiru. Sigur- bergur var bóndi og sjómaður að Hofi í Garði, réri til fiskjar úr Lambastaðavör, og áður fyrr vann hann við vitabyggingar á sumrin víða um land. Sigurbergur var hreppstjóri Gerðahrepps 1943 til 1978, í sátta- nefnd 1953 til 1978 og í fræðslu- ráði Gullbringusýslu 1963 til 1978. Hann var umboðsmaður skatt- stjóra í Gerðahreppi, í sýslunefnd 1970 til 1978 og prófdómari við Gerðaskóla 1947 til 1978, hann var einnig í kjörstjórn og formað- ur hennar í mörg ár. Sigurbergur var vitavörður við Garðskagavita árin 1951 til 1975 og sá jafnframt um rekstur radíomiðunarstöðvar á Garðskaga, einnig annaðist hann gæslu Hólmsbergsvita frá því hann var tekinn í notkun 1958 til 1978. Eg undirritaður var með Sigur- bergi í sóknarnefnd og kjörstjórn í fjögur ár. Það var vissulega lær- dómsríkt að kynnast þessum hæga og rólega manni, sem vann öll sín verk með sérstæðri fram- komu og snyrtimennsku. Sigur- bergur hafði sérlega fallega rit- hönd sem eftir var tekið. Ég minn- ist þessa góða manns ávallt með hlýhug og þakklæti. Sigurbergur kvæntist í Útskála- kirkju 13. desember 1930 Ásdísi Káradóttur, og var haft á orði hve falleg þau brúðhjón hefðu verið. Ásdís er dóttir hjónanna Sigrúnar Árnadóttur og Kára Sigurjónsson- ar hreppstjóra og alþingismanns frá Hailbjarnarstöðum á Tjörnesi. Ásdís og Sigurbergur áttu 2 börn, Sigrúnu kennara við Langholts- skóla í Reykjavík og Kára lækni á Reykjalundi. Við Málfríður vottum frú Ásdísi, börnum þeirra og barnabörnum okkar dýpstu sam- úð. Sigurbergur var jarðsunginn frá Útskálakirkju 2. desember 1989 að viðstöddu miklu fjölmenni. Guð blessi minningu Sigurbergs. Njáll Benediktsson. Byggöasafn Suöurnesja Opið á laugardögum kl. 14-16. Aörir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. ræða saman um daginn og veginn. En hvað er það sem hefur breyst, kann einhver að spyrja? Er ég ekki að tala um staðbundið vandamál? Því miður verð ég að segja, að svo er ekki, og ég er þess fullviss að mik- ill meirihluti ykkar sem lítur í eigin barm og grandskoðar þennan hluta af lífsstíl sínum, eru mér sammála. Þá er komið að mínu mati á vandamálinu. Fólk í dag, er yfirleitt svo önnum kafið við að eyða frítíma sínum í ekki neitt, að það hefur eng- an tíma til þess að taka þátt i hinum mannlegu samskiptum. Og hvað er það sem veldur? Jú, ætli okkur öllum gruni það ekki, þótt við viljum ekki viðurkenna það, það skyldi þó aldrei vera sjón- varpið. Þessi miðlunargjafi er orð- inn einhver mesti tímaþjófur í okkar samfélagi. Fólk má ekki orðið missa af neinu, það er setið yfir sjónvarpinu frá því fólk er búið að borða kvöldmatinn, horft á báða fréttatíma sjónvarps- stöðvanna og svo á allt það efni sem boðið er uppá, bæði ruglað og af- ruglað, þar til dagskráin er á enda. Þá loksins er farið að hugsa til þess að koma sér i rúmið. Jú, það er víst vinnudagur eða skóladagur að morgni. Er að undra, þótt krakkrnir séu oft þreytt er þau mæta í skólann og ár- angur námsins sé stundum slakur, eða vinnudagurinn erfiður vegna ónógs svefns? Því má einnig bæta við hér að ef dagskráin er ekki nógu góð er bara sent eftir myndbandsspólum, til að bjarga kvöldinu, fyrir framan skjá- inn. Nú, auðvitað forðast kunningjarn- ir orðið að koma í heimsókn, til þess að trufla ekki, og vita sem er að það er alveg eins gott að sitja heima hjá sér og horfa á sjónvarpið í sínum eigin stól, á besta stað. Skyldi það hafa verið ein af ástæð- unum fyrir lélegri kirkjusókn flesta sunnudaga ársins að fólkið sé þá, um það bil að koma sér á fætur, eftir langa vöku yfir sjónvarpinu nóttina áður. Nú þegar jólahátiðin er um garð gengin, er ekki úr vegi að staldra að- eins við og hugleiða hvernig við eyddum þeim frítima sem við höfð- um um þessa hátíð og yfirleitt hvernig við notum frítímann okkar. Flest okkar notuðu þessa daga til þess að fagna fæðingu frelsarans. Einnig til að minnast þeirra sem far- in eru á undan okkur yfir móðuna miklu. Og í heimsóknir til vina og vandamanna. Sá tími um hátíðarnar, sem við eyðum á þennan hátt, er yfirleitt ekki nægur, við komumst sjaldnast yfir allt það sem við gjarnan vildum gera. En það er samt góð tilfinning að vita að maður gerði sitt besta. Eða var kannski reyndin önnur? Svari hver fyrir sig. 26 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.