Faxi - 01.01.1990, Qupperneq 7
honum að þakka. Góðvild hans,
hjálpfýsi og drengskapur voru eig-
inleikar, sem ég þreifaði oft á í fari
hans og fékk ríkulega að njóta.
Sérstaklega verður mér minnis-
steður veturinn sem hann gegndi
skólastjórastörfum við Gagn-
ffaeðaskólann í Keflavík. Þá
kynntist ég því betur en nokkru
sinni fyrr hvílíkur öndvegismaður
Bjarni var og hve sýnt honum var
unt meðferð þeirra mála, sem köll-
nóu að og kröfðust úrlausnar
hverju sinni.
Árið 1973 var Bjarni skipaður
skólastjóri við Grunnskóla Njarð-
víkur og gegndi hann því starfi um
hu ára skeið, til ársins 1983.
Eftir að hann hvarf frá skóla-
stjórn starfaði hann við Fasteigna-
söluna að Hafnargötu 27 í Kefla-
v>k, en það fyrirtæki hafði hann
rekið um alllangt skeið ásamt
Hilmari Péturssyni. Þar gat hann
notið menntunar sinnar á vett-
vangi viðskipta. En hitt var þó
ekki síður mikilvægt í því starfi,
hvern mann Bjarni hafði að
Seyma.
I sambandi við námsferil Bjarna
niá þess hér einnig geta, að auk
viðskiptafræðinnar tók hann tvö
shg í dönsku og uppeldisfræðum
við Háskólann árið 1954. Og við
Kennaraháskólann í Kaupmanna-
höfn var hann við framhaldsnám
1968—1969.
Bjarni var mikill félagsmála-
maður og tók virkan þátt í ýmsum
°pinberum málum Njarðvíkinga
°8 gegndi þar margþættum félags-
°8 trúnaðarstörfum. Hann átti
Saeti í hreppsnefnd Njarðvíkur á
árunum 1968—1976. A sama tíma
var hann í ýmsum nefndum hjá
hljarðvíkurhreppi, svo sem fram-
talsnefnd og skólanefnd. Þá átti
hann í allmörg ár sæti í stjórn Ung-
^tennafélags Njarðvíkur. Um
^okkurt skeið var hann formaður
Efamsóknarfélags Keflavíkur eftir
?ó hann fluttist þangað árið 1976.
Oddfellow-reglunni var hann
V'fkur og traustur félagsmaður.
Síðast en ekki síst ber þess að
J^'nnast, að Bjarni var ekki einn á
háti á sinni lífssiglingu. Hann var
^ nnkiii hamingjumaður í einkalífi
sinu.
Við hlið sér átti hann þann lífs-
órunaut, sem ávallt var honum
hjessun og styrkur í miklu og dáð-
r'ku ævistarfi — og um leið Ijós-
8)afi hans og hamingjuvaldur. Það
Var eiginkona hans. Hún heitir
^uðrún Soffía Björnsdóttir frá
^rney á Breiðafirði. Börn þeirra
eru sex talsins og öll á lífi. Elstur er
yunnar Örn Arnarson, kerfisfræð-
Jógur og nú kennari í Keflavík.
(Hann er stjúpsonur Bjarna). Kona
hans var Arnbjörg Guðmunds-
dóttir. Þau slitu samvistir fyrir
nokkrum árum. Þá er Anna Ólöf,
húsmóðir í Hafnarfirði, gift Jóni
Erlendssyni forstjóra, næstur er
Björn, varðstjóri í sérsveit lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli,
kvæntur Guðrúnu Skúladóttur,
þau búa í Ytri-Njarðvík, Einar Sig-
urður er rafvirki á Akureyri,
kvæntur Sigríði Gísladóttur fóstru,
Fanney Sigurlaug er húsmóðir í
Keflavík, gift Þorvaldi Heiðari Ól-
afssyni rafvirkja og yngstur er
Bjarni Svanur, viðskiptafræðingur
og fjármálastjóri hjá Sindrastál hf.,
kvæntur Guðrúnu Erlu Richards-
dóttur skrifstofumanni. Þau búa í
Reykjavík.
Þó að Bjarni væri lengst af störf-
um hlaðinn og yrði þeirra vegna
að vera mikið að heiman, þá var
hann eigi að síður framúrskarandi
góður og umhyggjusamur heimil-
isfaðir. Hann unni heimili sínu og
þar átti hann, í samfélagi ástvin-
anna, sínar bestu og helgustu
hamingjustundir.
Síðast lágu leiðir okkar Bjarna
saman seint í október á siðastliðnu
ári, þegar við Oddfellow-bræður á
Akranesi heimsóttum félagana í
Keflavík. Það var gaman að hitta
hann þá. Hann var glaður og við-
mótshlýr þá sem endranær, lífs-
gleðin Ijómaði af svip hans og fasi.
Sömu birtunni stafaði af honum
og forðum, þegar við hittumst í
fyrsta sinn.
Engum gat þá til hugar komið,
að leiðarlokin væru á næsta leiti.
En þannig var það nú eigi að síð-
ur. Bjarni varð bráðkvaddur á
heimili sínu þann 6. desember síð-
astliðinn.
Mætur drengur og mikilhægur
er nú horfinn yfir mærin miklu,
sem marka æviskeið okkar tímans
barna.
Það er margs að minnast og
margs að sakna. En huggun er það
harmi gegn, að hvergi ber skugga
yfir minninguna. Þar eru aðeins
geislar sem ylja og lýsa sorgar-
særðum hjörtum og varpa birtu
sinni langt fram á ófarnar leiðir.
Innilegar samúðarkveðjur frá
mér og fjölskyldu minni til Guð-
rúnar, barnanna og annarra ná-
inna ástvina.
Guð blessi bjarta minningu
Bjarna Halldórssonar.
Ég kveð hann með þessum
fleygu orðum þjóðskáldsins:
„Flýt þér, vinur, í fegra heim.
Krjúptu aö fótum friöarboöans,
fljúgöu á vœgjum morgunroöans,
meira aö starfa, Guös um geim."
Björn Jónsson
FAXI
1. tölublað
50. árgangur
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114.
Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri og
Vilhjálmur Þórhallsson.
Varamenn: Birgir Guðnason og Hjálmar Stefánsson.
Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf.
Filmu- og plötugerð: Myndróf.
Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar.
Landshöfnin
Keflavík - Njarðvík
Að undangengnum samningaviðræð-
um fulltrúa Keflavíkur- og Njarðvíkur-
bæjar við fulltrúa ríkisins, afsöluðu
samgönguráðherra og fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs, bæjarstjórnum
Keflavíkur og Njarðvíkur, Landshöfn •
Keflavík-Njarðvík um síðustu áramót.
Afsalið var gert á grundvelli laga nr. 69 frá 28. maí 1984, og
laga nr. 87 frá 31. maí 1989, um breytingu á verkaskiptingu
ríkisins og sveitarfélaga og heimild í töluliðum 4.12 í 6. gr.
fjárlaga fyrir árið 1989, nr. 2/1989.
Með yfirtöku hafnarinnar hefur verið kosin ný hafnarstjórn,
sem hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd lagningu tengiveg-
ar milli hafnarsvæðanna í Keflavík og Njarðvík, svokallaðs
Bakkavegar, sem mun liggja meðfram húsi Saltsölunnar og
upp á bakkann og tepgjast Bakkastíg. Með þessu getur um-
ferð á milli hafnarsvæðanna verið styttstu leið og þarf þá ekki
lengur að aka Hafnargötu og Reykjanesveg eins og verið hefur.
Þá verða kannaðir á næstunni möguleikar á að gera smá-
bátahöfn í Grófinn, sem gæti rúmað um 50 smábáta eða svo.
Vaxtarbroddurinn í útgerðinni hér er útgerð báta undir og ná-
lægt 10 tonnum, en aðstaða fyrir þá hefur ekki verið nógu góð
í höfninni. Er vonandi að þarna megi skapa góða aðstöðu fyrir
þessa útgerð og þá jafnframt að nýta megi húsakynnin sem
áður voru í eigu Dráttarbrautar Keflavíkur, eftir þörfum.
Nokkrir og stundum verulegir gámaflutningar hafa verið í
Njarðvík, áhersla verður nú lögð á að auka þessa flutninga þar
í gegn í stað þess að gámar séu fluttir í miklu mæli um Reykja-
nesbraut. Þá flutninga ber að hafa í lágmarki, bæði með tilliti
til hagsmuna hafnarinnar og umferðar um Reykjanesbraut.
Við yfirtöku hafnarinnar var tryggt nokkurt fé til viðhalds
og framkvæmda og vilyrði gefin um fjárveitingu á næstu ár-
um. Fráfarandi hafnarstjórn hafði lagt mikla vinnu í að
tryggja að viðhald hafnarinnar gæti verið í lagi og sinnt sínu
verkefni vel. Á síðasta ári tókst að fá nýjan hafnsögu- og drátt-
arbát fyrir höfnina. Ber báturinn nafnið Auðunn, til heiðurs
Auðuni Karlssyni, sem unnið hefur höfninni afskaplega vel
alla tíð. Báturinn fylgir höfninni skuldlaus.
Miklir erfiðleikar hafa hrjáð útgerð hér síðustu ár. Enga ósk
á ég heitari en þá, að með þessum tímamótum í sögu hafnar-
innar megi gengi útgerðar snúast til betri vegar á ný og afkoma
þeirra, sem þennan atvinnuveg stunda megi eflast og dafna.
Guðfinnur Sigurvinsson.
FAXI 7