Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 8
FRAMHALD Á BLS. 25
I
Gleðilega hátíð, góðir kirkjugestir.
Það að vera boðið að stíga í stól
Keflavíkurkirkju á nýársdag er mik-
ill heiður fyrir mig. Mér fannst þetta
vera tæki, sem ég mætti alls ekki
láta frá mér fara, og sagði því já við
boðinu.
En svo kom að því að setja eitt-
hvað á blað, sem hugsanlega vekti
áhuga ykkar, góðir kirkjugestir.
Þetta vafðist mjög fyrir mér og ég
var farinn að hafa miklar áhyggjur
af þvl að hafa samþykkt þetta boð.
Að lokum ákvað ég því að reyna
að ræða um hlutverk þjónustu-
klúbbanna hér í okkar byggðalagi
og þann frítíma sem við eigum frá
vinnu okkar. Hvernig fólk núorðið
eyðir þessum tíma.
Þjónustuklúbbar þeir sem starfa í
Keflavík eru nokkrir, og mun ég, hér
á eftir ræða um brot af því sem þeir
hafa starfað að. Elsti þjónustuklúbb-
urinn hér um slóðir er Rótarýklúbb-
ur Keflavíkur, Lionsklúbbarnir eru
tveir, svo er Kiwanisklúbbur Kefla-
víkur og Soroptimistaklúbbur Kefla-
víkur.
Einnig eru til kvennaklúbbar sem
starfa samhliða Rótarý, Lions og
Kiwanis og er þá í flestum tilfellum
um klúbba eiginkvenna viðkom-
andi klúbbfélaga að ræða.
Reglur um félagsaðild að þessum
þjónustuklúbbum eru mismunandi
en sumir þeirra eru starfsgreina
klúbbar. Þannig að aðeins einn úr
hverri starfsgrein á rétt á tilnefningu
til félagsaðildar. Komast því stund-
um færri að en vilja.
Við sem störfum í þessum þjón-
ustuklúbbum, getum fullvissað ykk-
ur um, að það er mannbætandi að
taka þátt í starfi þeirra. Og að þeir
aðilar sem vinna mest að góðgerð-
armálum innan sinna klúbba upp-
skera líka mest í þjónustu við aðra.
Það er hægt að benda á jólatré-
sölu þeirra Kiwanisfélaga, þeir nota
ágóðann til þess að styrkja t.d.
Þroskahjálp á Suðurnesjum. Allt
starf þeirra er unnið í sjálfboðaliðs-
vinnu.
Þriðja hvert ár efna Kiwanisfélag-
ar tii landssöfnunar og selja þeir
Kiwanislykilinn, undir slagorðinu
„Gleymið ekki geðsjúkum" ágóði af
Omur Stcinddrsson cr hcr ud flytju
nc()u ú Kólurýfundi. Ljösmynd Hcimir.
Rœða Ómars
Steindórssonar í
Keflavíkurkirkju á
nýársdag um
hlutverk þjónustu-
klúbbanna á
Suðurnesjum
söfnun þeirra hefur m.a. leitt til
kaupa á húsnæði fyrir geðsjúka, er
þeir koma út af sjúkrahúsum, bæði
á Akureyri og í Reykjavík.
Rótarýklúbburinn hefur árlega
boðið öldruðum á Suðurnesjum í
dagsferð um Vestur- og Suðurland,
undir góðri leiðsögn. Einnig er sér
jólafundur, þar sem eldri borgurum
bæjarins hefur verið boðið.
Rótarýklúbburinn styrkir ár hvert
ungt æskufólk til náms erlendis og
tekur í fóstur erlenda nemendur til
náms hér heima.
Lionsklúbbarnir hafa styrkt
sjúkrahúsið og heilsugæslustofuna
með gjöfum á margs konar sér-
tækjum, sem þeir hafa safnað fyrir
t.d. með sölu félaganna á perum í
hvert hús á svæðinu.
Einnig hafa þeir stutt Þroskahjálp
með leikfanga- og tækjagjöfum. Það
er óhætt að segja að þessar stofnan-
ir væru mun verr búnar í dag, ef
Lionsfélaga nyti ekki við. Ekki má
gleyma því að þeir gefa einnig öll-
um öldruðum sem er á stofnunum
hér á Suðurnesjum, jólagjafir ár
hvert.
Þá standa allri Lionsfélagar í land-
inu að söfnun á fimm ára fresti, þar
sem þeir selja rauðu fjöðrina. I ár
rann t.d. það fé sem safnaðist, til
kaupa á húsnæði fyrir storslasað
fólk sem ekki er hægt að vista á
venjulegum sjúkrastofnunum.
Soroptimistakonur hafa aðallega
séð um sjúk-aldraða, með því að
safna fé til að kaupa sérstök sjúkra-
rúm sem þær hafa síðan afhent við-
komandi stofnunum, þar sem aldr-
aðir dvelja.
Það mætti lengi telja upp það sem
er á dagskrá þessara félagasamtaka,
sem bætir mannlífið og er öðrum til
góðs. T.d. eru allir þessir þjónustu-
klúbbar meðlimir að alþjóðahreyf-
ingum og í gegnum heildarsamtök
hverrar hreyfingar fyrir sig er verið
að vinna að stórkostlegum málefn-
um.
Alþjóðahreyfing Rótarý ætlar að
minnast 100 ára afmælis síns, árið
2005, með því að hafa bólusett öll
börn í þróunarlöndunum, fyrir polio
eða lömunarveikinni.
Söfnun meðal allra félagsmanna,
en þeir eru nærri 11 hundruð þús-
und, hófst fyrir 4 árum og er nú búið
að safna sem svarar yfir 15 milljörð-
um ísl. kr. 509 milljónir barna í 90
þjóðlöndum hafa verið bólusett, en
bóluefnið þarf að gefa hverju barni
þrisvar sinnum.
Bólusetning fer fram í samvinnu
við alþjóðleg heilbrigðissamtök
eins og t.d. þær deildir Sameinuðu
þjóðanna sem þetta heyrir undir.
Og þær eru ófáar stundirnar sem
sjálfboðaliðar innan Rótarýhreyf-
ingarinnar hafa gefið til þess að
mæta á staðinn og aðstoða við þetta
mikla verkefni.
Starfsmenn Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar (skammstafað
WHO) telja miklar líkur á, að búið
verði að uppræta lömunarveikina
fyrir árslok 1990 í Suður Ameríku
og um aldmótin, í öðrum þeim lönd-
um heims þar sem lömunarveikin
fyrirfinnst í dag.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
áætlar, að í dag fái tveir þriðju allra
barna í þróunarlöndunum þrjá
skammt af bólusetningarmeðalinu
fyrir eins árs afmælisdaginn sinn.
Arið 1974 voru það minna en 5%
barna sem fengu þessa bólusetn-
ingu.
Þá er ótalin hin mikla barátta allra
þessara samtaka fyrir friði í heimin-
um. Haldnar hafa verið miklar frið-
arráðstefnur þar sem ólíkir hópar
hafa mæst til þess að reyna að finna
leiðir til meiri og betri friðar í þess-
um stríðshrjáða heimi sem við bú-
um í.
Vinur minn Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri á Selfossi, var í október
sl. beðinn að mæta sem fulltrúi for-
seta alþjóðahreyfingar Rótarý á um-
dæmisþing Rótarýklúbbanna á ír-
landi, sem hann og gerði. Eftir
heimkomuna sendi hann mér
nokkrar línur um heimsóknina og
þar kom m.a. fram.
Eins og þið vitið öll er írland tví-
skipt og miklar væringar meðal
íbúa landshlutanna, stöðugt er verið
að drepa fólk og eyðileggja mann-
virki, í þessu stríðshrjáða landi.
A þessu þingi sem var fyrir landið
allt, sem sagt bæði norður og suður
Irland, kom fram að landamæri
8 FAXI