Faxi - 01.01.1990, Page 21
SKÚLIMAGNÚSSON:
Blaðaútgáfa í Keflavík
1. HLUTI
Faxi
Svo hefur verið talið að með út-
gáfu Faxa hefjist blaðaöld í Keflavík.
I tímaritaskrá þeirra Einars Sigurðs-
sonar og Böðvars Kvaran, frá 1966,
er eitt biað talið eldra, Pósturinn,
sem út kom 1921. Þegar ég fór á
stúfana til að kynna mér þetta blað,
kom í Ijós, að það var ekki til á
Landsbókasafni. Fór ég því vestur í
Háskólabókasafn og þar fannst
Pósturinn frá 1921.
Við nánari athugun kom í Ijós, að
Pósturinn var ekki gefinn út í Kefla-
vík, heldur Kirkjuvogi. í tímarita-
skránni stendur um útgáfustað:
„Kirkjuvogur pr. Keflavík." Ljóst er
því að blaðið kom út í Kirkjuvogi í
Höfnum, er fékk póst sinn sendan
um Keflavík. Það var Óskar Sæ-
mundsson sem gaf póstinn út og
hefur blaðið inni að halda verðlista
yfir ýmsar smávörur sem Óskar
hafði á boðstólum og sendi mönn-
um gegn póstkröfu. Verður því ekki
rætt frekar um Póstinn, en þess get-
ið að líklega er hann fyrsta og eina
blaðið, sem komið hefur út í Höfn-
unum, enda kolfágætur.
Þann 10. október árið 1939 var
stofnað félag í Keflavík sem í fyrstu
lét lítið yfir sér. Fékk það nafnið Mál-
fundafélagið Faxi, og félagsmenn
þess voru 12 talsins — eins og post-
ularnir forðum. Ekki hafði félagið
starfað nema rúmt ár þegar hug-
mynd um blaðaútgáfu innan félags-
ins bar á góma. Skyldi nú sáð því
fræi sem stórvaxinn stofn spratt af
og sem ber margar og langar grein-
ar inn á öll svið þjóðlífsins.
Hugmyndin um sérstakt blað er
félagið gæfi út kom fyrst fram á fé-
lagsfundi heima hjá Ingva Loftssyni
24. október 1940.
I fundargerð segir svo um blað-
hugmyndina: „Hallgrímur Björns-
son var frummælandi fundarins og
hélt góða tölu um blaðaútgáfu í
Keflavík. Voru honum allir sam-
mála um þörfina á blaði, en enginn
fundarmanna var svo djúpt sokkinn
að vera blaðamaður, og þar af leið-
andi var ekki hægt að gjöra sér
grein fyrir, hvað útgáfa blaðs myndi
kosta----“.
Um blaðið var síðan rætt fram og
aftur uns klukkan á veggnum sló sín
tólf högg. Héldu menn þá heim.
„Sumum varð ekki svefnsamt er
heim komust. En þá, sem sofnuðu
loksins, dreymdi þig í dýrðarljóma
meðal lýðs síns, flytjandi frumsamd-
ar greinar, frumort ljóðmæli, og
ábatasamar auglýsingar.
Þannig hófst draumurinn um
Þ‘g.“
A þessa leið minntist Kristinn
Reyr aðdraganda útgáfu Faxa í af-
mælisblaðinu 1950.
Næsti fundur málfundafélagsins,
sem var sá tuttugasti og sjötti í röð-
inni, var haldinn 31. október 1940, á
heimili Ragnars Guðleifssonar.
Aftur hóf Hallgrímur Th. Björns-
son máls á blaðaútgáfu. Síðan var
málið mikið rætt og loks samþykkt
að kjósa þriggja manna nefnd „sem
afli sér nákvæmra upplýsinga um
útgáfukostnað blaðs, hjá mönnum,
sem hafa nægan kunnugleik á því
sviði. Nefnd þessi leggi síðan athug-
anir sínar fyrir fund í félaginu".
Tillagan var samþykkt samhljóða
og þessir menn kosnir í nefndina:
Hallgrímur Th. Björnsson, Valtýr
Guðjónsson og Kristinn Pétursson.
Fjórum vikum seinna skilaði nefnd-
in svofelldu áliti:
„í sambandi við blaðaútgáfu mál-
fundafél. Faxi hefur undirrituð þar
til kosin nefnd aflað sér upplýsinga
um væntanlega útgjaldaliði blaðs-
ins, áætlað tekjur þess, gert tillögu
um nafn þess, skipulag og efnisval
eins og fram kemur í eftirfarandi
greinum:
Lgr.
Tekjur:
Auglýsingar ............ kr. 100,00
Sala 300 eint. á 0,35 .... kr. 105,00
Gjöld: Prentsmiðjukostn. Kr. 205,00
á 500 eint .. kr. 100,00
Pappír . kr. 20,00
Myndamót Söluskattur .. kr. 30,00
(blaðadrengir) .. kr. 15,00
Ymislegur kostnaður .. .. kr. 30,00
Tekjur umfram gjöld .. .. kr. 10,00
Kr. 205,00
2. gr.
Samkvæmt 1. gr. leggur nefndin
til að málfundafélagið Faxi í Kefla-
vík gefi blaðið út.
3. gr.
Nefndin leggur til að blaðið heiti
„Keflvíkingur".
4. gr.
Félagið kýs 2—3 ritstjóra, sem
jafnframt eru ábyrgðarmenn. Þeir
hafa aðalstjórn blaðsins á hendi,
taka við greinum í það, og leita því
stuðnings. Ennfremur kýs félagið
3ja—5 manna ritnefnd, sem kýs úr
sínum hópi gjaldkera blaðsins, en
hann annast dreifingu og innheimtu
þess. Ritnefnd aðstoðar ritstjóra um
öflun efnis. Rísi ágreiningur innan
ritstjórnar um efnisval eða einstak-
ar greinar, skal ritnefnd tilkvödd.
Skal afl atkvæða ritstjórnar og rit-
nefndar á sameiginlegum fundi
skera úr um slík mál.
5. gr.
Nefndin leggur ennfremur til, að
blaðið ræði fyrst og fremst málefni,
er snerta Keflavík og Suðurnes.
Menningarmál byggðarlaganna:
skólamál, lestrarfélagsmál,
skemmtanir, kvikmyndasýningar,
bindindismál o.s.frv. Framfaramál:
útgerð, hafnarmál, iðnaðarmál,
ræktunarmál, o.fl. Heilbrigðismál:
m.a. vatns- og skolpveitumál. Raf-
magnsmál o.tl.
FAXI 21