Faxi - 01.01.1990, Síða 28
Börnin sem selja Faxa
Þau eru orðin mörg börnin
sem hafa lagt Faxa lið í gagnum
tíðina. Marg oft hefur maður
héyrt þá sem fullorðnir eru í dag
minnast þeirra daga, þegar Faxi
var að koma út og menn keppt-
ust um að fá blaðið sem fyrst til
að komast til fastra viðskipta-
manna á undan öðrum.
Tengsli barnanna við Faxa var
ekki hvað síst mikil, þegar Hall-
grímur heitinn Th. var ritstjóri.
Hann var kennari við barnaskól-
ann og það voru því hæg heima-
tökin að láta börnin fylgjast með
útkomu blaðsins. Þá þekkti hann
öll sölubörnin og fylgdist með
þeim í skólanum.
í eina tíð tíðkaðist það að
verðlauna þau sölubörn sem
mest seldu. Birtust þá gjarna
myndir af þeim í blaðinu. I dag
er afgreiðsla blaðsins að Hafnar-
götu 79 og koma börnin þangað,
þegar þau frétta að Faxi er á
leiðinni. Þau fylgjast mjög vel
með því. Þau sjá um Keflavík og
Njarðvík, en í hinum sveitarfé-
lögunum eru það n.k. umboðs-
menn Faxa sem selja blaðið.
Við birtum nú hér til gamans
mynd af mesta sölumanni okkar,
honum Jóni Jóhannssyni. Það er
sama hvað hann fer út með
mörg blöð, hann selur þau öll.
Hver veit nema við höfum fljót-
lega sölukeppni fyrir sölubörnin
okkar á næstunni.
Hressir körfuboltastrákar
Faxi leit inn á æfingu hjá
yngstu strákunum í
körfuboltanum. Þessir strákar
eru mjög áhugasamir (og
háværir) — flestir þeirra æfa víst
fótbolta líka. Margir þeirra eru
orðnir mjög snjallir leikmenn og
hafa fullan hug á að feta í spor
hinna eldri hérna á
Suðurnesjum. Strákarnir voru
strax til í að sitja fyrir hjá okkur
og sýndu sigurmerkið, því
meistaraflokkur karla hjá ÍBK átti
að leika gegn UMFN um kvöldið.
Strákarnir hafa örugglega ekki
látiö sig vanta á leikinn sem ÍBK
reyndar vann. Við hlökkum til að
fylgjast með þessum hressu
strákum í framtíðinni.
Stóriðja á Suðurnesjum!
Að undanförnu hefur mikil
umræða farið fram hér á landi
um nýja álverksmiðju. Virðist
ekki ólíklegt að til tíðinda dragi
áður en mjög langur tími líði.
Allmargir staðir á landinu hafa
verið nefndir í sambandi við
staðsetningu á álverksmiðju.
Gefur það auga leið, að það
verður mikil lyftistöng fyrir þau
byggðalög, þar sem álverksmiðja
verður á endanum byggð. Oft
hafa Suðurnes verið nefnd í
þessu sambandi, enda bendir
margt til, að hér sé heppilegur
staður fyrir verksmiðjuna. Er víst
fyllilega tímabært að íbúarnir
velti þessu máli rækilega fyrir
Áhugi fyrir
ferðamálanámi
Málaskólinn Mímir sem er
rekinn af Stjórnunarfélagi íslands
býður nú Suðurnesjabúum upp
á 12 vikna ferðamálanám. í
kynningarbréfi frá skólanum
sér. Þá er því við að bæta, að til
tals hefur komið, að stórfyrir-
tækið Butler setji upp hér á landi
verksmiðju er framleiði þilplötur
þar sem m.a. verður notaður
vikur við framleiðsluna. Helguvík
hefur verið nefnd í þessu
sambandi, þannig að sjá má, að
ýmislegt er á döfinni.
starfa og sitja í henni eftirtaldir: Frá
Njarðvík eru það Oddur Einarsson,
Albert K. Sanders og ísleifur Guð-
leifsson, en frá Keflavík eru það
Guðfinnur Sigurvinsson, Þorsteinn
Árnason og Hafsteinn Guðnason.
Guðfinnur Sigurvinsson er formað-
ur stjórnarinnar.
Nýr lóðsbátur - Auðunn
Hinn merkisatburðurinn sem við
vildum segja frá er koma nýja lóðs-
bátsins. Hér er um að ræða 20 tonna
bát sem smíðaður er hjá Skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi og kostaði hann um kr. 15
milljónir. Var honum gefið nafnið
Auðunn. Lóðsbáturinn sem fyrir var
var kominn nokkuð til ára sinna,
var hann smíðaður 1959 og var all-
miklu minni, eða um sex tonn. Eru
uppi ráðagerðir um að hann endi
ævi sína á leikvellinum við Garða-
sel. Það er öruggt, að hinn nýi lóðs-
bátur mun koma sér vel fyrir starfs-
menn hafnarinnar, ekki síst þar sem
höfnin í Helguvík er nú komin til
sögunnar.
Er bjartsýnn á ftamtíðina
Um leið og við þökkum Pétri fyrir
spjallið og upplýsingarnar, þá spyrj-
um við hann að lokum, hvernig
honum lítist á að reka höfnina, nú
eftir að bæirnir hafa eignast hana á
nýjan leik?
„Þess ber að geta, að höfnin í
Helguvík er einnig með í þessu nýja
fyrirtæki og því er þetta nokkuð
breytt dæmi. Ég er nokkuð bjart-
sýnn á, að okkur takist að reka þess-
ar hafnir með eigin rekstrartekjum.
Ég tel, að þetta hafnarsvæði allt eigi
töluverða möguleika fyrir sér í
framtíðinni."
HH.
28 FAXI