Faxi - 01.01.1995, Síða 16
Kór Kálfatjarnarkirkju 30 ára 1994
“Kirkjukór
Kálfatjarnarsóknar er
stofnaður 11. desember
1944. Og mœtti það verða
táknrœnt fyrir kórinn í
framtíð, því það er einmitt
sama árið sem allur
landslýður stóð sem einn
maður um lýðveldið og
stofnun þess.”
Þessi orð eru úr bréfi Guðmundar
Þórarinssonar frá Skjaldarkoti til
kórfélega en það fannst í ýmsum
skjölum úr hans eigu. Stofnfélagar
kórsins voru 21 talsins og var fyrsti
organisti kórsins Stefán Hallsson. Það
var Sigurður Birkis, þáverandi
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, sem
aðstoðaði við stofnun kórsins. Meðal
stofnfélaganna voru fjórir félagar sem
enn eru starfandi. Þau eru Sigríður
Jakobsdóttir, Inga Sæmundsdóttir,
Símon Kristjánsson og Helgi
Davíðsson.
Allir kórfélagar voru áhugamikið
söngfólk sem lagði mikið á sig við að
mæta á æfingar og taldi ekki eftir sér
að ganga á milli Voga og
Brunnastaðahverfis þar sem æft var í
skólanum. Ætla má að rómantíkin hafí
ekki verið langt undan hjá
Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju. Myndin er tekin stuttu eftir stofnun kórsins 1944. Aftasta röð f.v.: Þórarinn
Einarsson, Rafn Símonarson, Guðmundur Kortsson, Helgi Davíðsson og Guðmundur Ágústsson.
Önnur röð: Guðmundur Þórarinsson, Katrín Ágústsdóttir, Sigríður Jakobsdóttir, Guðlaug Guðjónsdóttir, Margrét
Jóhannsdóttir, Viktoría Guðmundsdóttir, Ragnheiður Vormsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Magnea Kristjánsdóttir,
Valgerður (iuðmundsdóttir og Símon Kristjánsson. Fremsta röð: Sólborg Sveinsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir,
Stefán Hallsson, organisti, Sigurður Birkis, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Hulda Þorbjörnsdóttir. Á myndina
vantar Grétar Kristjánsson og Ingu Margréti Sæmundsdóttur.
Fremri röð. Sigríður Jakobsdóttir og Inga Sæmundsdóttir Aftari röð. Símon
Kristjánsson og Helgi Davíðsson. Þau voru stofnendur kórsins og syngja með
honum enn. Mynd Jón Ingi Baldvinsson
kórfélögunum, því að minnsta kosti
fern hjónabönd urðu innan kórsins.
Reyndar hafa síðan fleiri hjón sungið
með kómum í lengri og skemmri tíma.
Einnig má geta þess að meðal
kórfélaga nú eru fimm afkomendur
stofnfélaga.
Kórinn hefur tekið þátt í kóramótum
í prófastdæminu (Kjalarnesprófest-
dæmi), hvort sem þau hafa verið
haldin í Mosfellssveit, Hafnarfirði eða
Keflavík. Starf kirkjukórsins í dag er
svipað starfi hjá öðrum kórum á
landinu. Hann syngur og tekur þátt í
öllum messum í Kálfatjamarkrikju allt
árið og mest er að gera í kringum
hátíðar og alltaf eru æfð og sungh'
almenn sígild lög samhliða sálmnum.
í tilefni af 50 ára afmæli
kirkjukórsins hélt kórinn sönghátíð í
Glaðheimum í Vogum þann 16.
október s.l. Hreppsbúar fjölmenntu
ásamt mörgum öðmm góðum gestum
og hlýddu á fjölbreytta söngdagskrá.
Meðal annars sungu þau fjögur af
stofnfélögunum sem nefnd voru hér
áður. Við þetta tækifæri votu þeim
færðar viðurkenningar fyrir vel unnin
störf öll þessi ár.
I kórnum eru nú 20 kórfélagar.
Söngstjóri og organisti er nú Frank
Herlufsen.
16 FAXI