Faxi - 01.01.1995, Page 22
\ I /
ÚTSKRIFT FRÁ
FJÖLRRAUTASKÓLA
SUDURNESJA
Sunnudaginn 18. desember voru 77
nemendur brautskráðir frá
Fjölbrautaskóla Suðumesja. Athöfnin
fór fram á sal skólans að viðstöddu
fjölmenni. Hún hófst á því að Andrés
Bjömsson, nýstúdent, lék verk eftir H.
Uarke á trompet. Því næst rakti
aðstoðarskólameistari, Oddný
Harðardóttir, helstu atburði annarinnar.
Kom þar m.a. fram að nemendur
voru tæplega 750 talsins í dagskóla en
135 í öldungadeild. Kennarar voru 55
og annað starfsfólk 15 að tölu. Þannig
er FS fjölnrennasti vinnustaður á
Suðurnesjum. Formaður Nemenda-
félags FS, Gísli S. Brynjólfsson,
greindi frá því helsta úr starfi
nemenda. Nokkur kraftur hafði verið í
félagslífi þeirra þó formaðurinn brýndi
skólafélaga sína til frekari dáða á þessu
sviði.
Hjálmar Árnason, skólameistari
afhenti prófskírteini. Skiptust
brautskráðir þannig eftir
námsbrautum:
Vélstjórar:.....................12
Tveggja ára bóknám:..............5
Tæknisvið:.......................8
Sjúkraliðar:.....................3
Stúdentar:......................51
Fiskvinnslubraut:...............25
Sumir nemendur hlutu
brautskráningu af fleiri en einni
námsbraut. Bestum námsárangri náði
Guðmunda Geirmundsdóttir „á
skírteini hennar sést varla tala undir 9
eða 10“ sagði skólameistari.
Þá bar það til tíðinda að nemandi
númer 2000 frá stofnun skólans fékk
afhent brottfararskírteini sitt. Reyndist
það nýstúdentinn Guðbjörg Gerður
Gylfadóttir frá Grindavík og hlaut hún
bók og blóm fyrir vikið. „Svo
skemmtilega vill til að 1000
nemandinn var líka kvenkyns"
upplýsti skólameistari. Þá upplýsli
hann að Guðbjörg Gerður hefði fætt
bam rúmum sólarhring fyrir útskrift.
Var hinni nýbökuðu móður og
brautskráningarnema númer 2000
innilega fagnað en unnusti hennar tók
við skírteininu fyrir lrönd Guðbjargar.
Jón Már Björnsson, sviðsstjóri,
stýrði verðlaunaafhendingu en að
henni lokinni lék Sigurlín Bjarney
Gísladóttir, nýstúdent, verk eftir
Chopin á píanó.
Þá ávarpaði skólameistari braut-
skráða og gerði manngildi, frelsi og
ábyrgð einstaklinga að umræðuefni í
ræðu sinni sem og tíðarandann.
Þorvaldur Örn Árnason kvaddi
úlskrifaða fyrir hönd kennara en María
Guðmundsdóttir, nýstúdent, ávarpaði
kcnnara fyrir hönd brautskráðra.
Kristín Grétarsdóttir, nemandi a
sjúkraliðabraut, afhenti skólanum að
gjöf búnað fyrir sjúkrarúm fyrir hönd
nemenda á brautinni í þeirri von að su
braut yrði fest í sessi innan skólans.
Skólameistari þakkaði góðar gjafir og
sleit að því búnu haustönn 1994. •
lokin stóðu allir viðstaddir, tæplega ^
600 manns, á fætur og sungu
jólasálm.
Hvaðan eru brautskráðir?
Keflavík, Njarðvík, Hafnir:....48
Garður:.........................6
Sandgerði:......................6
Grindavík:.....................11
Vogar:..........................4
Utan Suðumesja..................2
22 FAXI