Faxi

Volume

Faxi - 01.02.1996, Page 7

Faxi - 01.02.1996, Page 7
Það eru jól á Hringbrautinni. Guðrún með synina tvo, Guðmund Steinar og Jón Ragnar. Karl var mikill afreksmaður í hand- knattleik, bæði með félagi sínu, KR, og { einnig með landsliði íslands. Þeir Jón og Steinargerðurbáðirgarðinn frægan með ÍBK og þóttu þeir afar harðskeytt- ir upp við mark andstæðinganna. Var Jón m.a. alltaf kallaður Marka-Jón. Urðu báðir Islandsmeistarar rneð lið- Ufn ÍBK. Karl hefur alla tíð búið í Reykjavík. Kona hans er Unnur Ósk- arsdóttir og eiga þau synina Karl Ómar [ °g Jón Hafstein. Jón og Steinar hafa báðir haslað sér völl hér í Keflavík. Jón er kvæntur Ásgerði Kormáksdóttur og eru börn þeirra Jóhann Gunnar og Halldís. Sambýliskona Steinars er Sig- urlaug Kristinsdóttir og synir þeirra eru Jóhann Kristinn og Guðmundur. Jóhann var alla tíð mikill félagi sona S|nna og síðar einnig barnabamanna. Ferðalög og útivera voru ofarlega á baugi og margar ferðimar vom farnar j ut um landið með hús á vörubílspalli. Jóhann hafði mikið gaman af að renna fyrir silung og lá leiðin ofar en ekki í Vestur-Hópið. Var veitt bæði af strönd- inni og úr bát og þá slegið upp tjaldi eða sofið í pallhúsinu. Sá siður að setja hús á vörubílspalla er merkur þáttur í samgöngu- og fólksflutningasögu Is- lendinga. Þessi hús sem gengu undir nafninu „boddí“ voru oft ekki annað en léleg skýli sem sett vom yiir bekki á vömbílspöllunum, því ekki var um neinar rútuferðir að ræða á fyrri hluta aldarinnar. Þessi búnaður var notaður lil að flytja fólk á mannfagnaði utan- bæjar, s.s. á Alþingishátíðina árið 1930, íþróttahátíðir, dansleiki o.m.fl. Þóttu þetta hinar skemmtilegustu ferð- ir og hljómaði ósjaldan söngur mikill frá farþegunum. Tók Jóhann þátt í mörgum slíkum ferðum. Hér er ónefndur einn þáttur úr æsku Jóhanns sem fylgdi honum um hríð og setti svip á félagslíf víða á Suðurnesj- Hinn af fyrstu bílunum. Það leynir sér ekki stoltið í svip Jóa, þar sem hann ‘yllir öðrum fætinum á stuðara bflsins. Myndin er tekin í einni af fjölda- 'nörgum ferðum þeirra Guðrúnar um landið. Þeir gerðurst varla glæsilegri. Númerið Ö 155 vissu allir að var númerið hans Jóa Steinku. Hér er það á Chevrolet 6500 og straumlínulagað húddið og skrautið framan á bflnum ber vott um að það býr mikið stolt að baki smíðarinnar á þessum bfl. Mynin er tekin á planinu við afgreiðslu Vörubfl- stöðvarinnar við Framnesveg. um. Hér er um að ræða tónlistina og þátttöku Jóhanns í hljómsveitinni Gula Bandinu. Þetla var ein af fyrstu hljóm- sveitunum sem lék á böllum og sam- komum hér á Suðumesjum og lék Jó- hann á irommur í hljómsveitinni um margra ára skeið. Lengst af voru það Bjarni Össurarson og Ólafur Elíasson sem skipuðu hljómsveitina með Jó- hanni, en einnig komu þar við sögu ýmsir aðrir ágætir tónlistannenn, svo sem hið rómaða tónskáld, Sigfús Hall- dórsson, Bjarni Gíslason og Henning Rasmussen. Hljómsveitin gerði víð- reist og varð hún mjög vinsæl. Lék hún m.a. á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en eins og menn vita er þangað aðeins boðið þeim bestu á hverjum tíma. Jó- hanni yljaði ávallt um hjartarætur, þeg- ar hann hann náði sér á flug við að segja sögur sem gerðust í sambandi við Gula Bandið. Eflir að Jói var hættur að vinna beið hans rólegra líf með Guðrúnu sinni í húsinu við Hringbrautina. Knatt- spyrnuvöllurinn er hinum rnegin við götuna og oft gat maður séð hann sitj- andi á stól á svölunum við að kíkja eft- ir því sem þar var að gerast. Iþróttimar sem ávallt höfðu verið hans áhugamál héldu áfram að vera honum ofarlega í huga. Sem fyrr fylgdist hann með öllum íþróttum. Þegar Akranes átti sitt fyrra blómaskeið með þá Ríkarð Jónsson, Donna og hinum köppunum öllum, þá fór hann ósjaldan í bæinn til að sjá þá keppa. Og nú var það ekki bara fótboltinn. Suð- urnesjaliðin í körfunni voru farin að skara fram úr og það varð nú að gefa þeim gaum líka. Hann hélt utan um get- raunirnar fyrir strákana og hann vissi flest um Ensku knattspymuna. Já, honum lei- dist ekki, svo mikið var víst. Nú hefur Jóhann Kristinn yfirgeftð bæinn sinn og ást- vinina. En það er aðeins í lík- ama en ekki í anda, því hann lifir svo sannarlega áfram í minningu okkar allra. Það er tími til að þakka fyrir sam- vemna og votta Guðrúnu og öðrnrn að- standendum samúð. Eg trúi því að hann hafi farið saddur lífdaga. Helgi Hólm. Einn af vörubílunum hans Jóa. Hér er Jói upp á palli en Jón Ragnar (Nonni Steinku) er framan við bflinn. Þetta var mjög algeng stærð á bfluni á árunum kringuni um og í kringum 1950. FAXI 7

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.