Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1996, Blaðsíða 10

Faxi - 01.02.1996, Blaðsíða 10
Alheimurinn eins og við þekkjum hann er kannski bara eitt stórt svæði af mörgum í stærri alheimi eða hvað? Menn hafa frá örófi alda velt því fyrir sér hvernig heimurinn liti út, þá bæði jörðin og alheimurinn. Hvernig hófst þetta allt saman, hvað var í byrjun og hvers vegna varð al- heimurinn svona eins og hann er? Menn hafa margar spurningar í kringum þetta efni sem enn er ósvarað. Hvar endar til að mynda heimurinn, er kannski einhverskon- ar veggur sem skilur okkur frá öðr- um heimi eða er eitthvað annað þarna? Svona spurningum munum við Ieita svara við og reyna að kom- ast að einhverri niðurstöðu um þetta málefni með aðstoð spekinga fyrr og síðar. Eflaust er ekki til neitt ákveðið svar við þessu en til eru margar góðar kenningar sem reynt verður að uppiýsa ykkur um. Vonandi njótið þér gagns og gamans af lestri þessarar ritgerðar. Þessi mynd er prentuð eftir teikningu Kópernikusar á síðustu mynd. Hún birstist fyrst í frumútgáfu bókarin- nar Um snúninga himinhvelanna í Niirnberg árið 1543. Textinn á myndinni er sem hér segir: I. Óhreyfanleg kúla fastastjarnanna. II. Satúrnus snýst á 30 árum. III. Tólf ára umferð Júpíters. Iffl. Tveggja ára umferð Mars. V. Arsumferð jarðar ásamt braut tunglsins. VI. Venus á níu mánuðum. VII. Merkúríus á 80 dögum. Terra: Jörð. Sol: Sól. Við sjáum að Kópernikus hugsar sér allar fastastjör- nurnar á einni og sömu kúlu: með öðrum orðum telur hann heiminn endanlegan. Þessi mynd birtist upphaflega í bók eftir Peter Apian, Cosmographia (Heimsmynd eða Heimslýsing), sem kom út í Antwerpen árið 1539. Myndin er allfræg og er birt í mörgum bókum um þessi efni nú á dögum. Hún cr stun- dum sögð sýna heimsmynd Aristótelesar, en kirkjan á ekki síður sinn hlut í henni en forngrískir spekingar. Innst sjáum við jarðríki með frumefnunum fjórum, jörð, vatni, lofti og eldi. Síðan taka við kristalshvel föruhnattanna sjö: tungls, Merkúríusar, Venusar, sólar, Mars, Júpíters og Satúrnusar, sem er „í sjöunda himni.“. Utan hans er festingin og síðan sérstakt hvel til að sjá um framsókn vorpunktsins, sjá viðauka 1. Yst er svo frumhreyfihvelið („Primum Bobile“) sem sækir hreyfin- gu sína til guðlegra afla og miðlar hreyfingu til innri hve- lanna. Utan þessa hvels er „Himnaríki, bústaður Guðs og allra útvaldinna“ eins og segir í latneska textanum á myndinni. Upphaf og örlög heimsins Ritgerðin Upphafog örlög heimsins er enn ein greinin sem Faxi birtir úr „ritsmiðjiF'nemenda Fjölbrautaskóla Suðumesja. Blaðinu er fengur að pví að geta gefið lesendum sínum innsýn í þá vinnu sem unnin er í skólanum. UPPHAF í upphafi var talið að alheimurinn hafi verið þjappaður saman í einn punkt og hiti hans óendanlegur. Þegar miklihvellur varð þá þandist hann út og lækkaði hitinn þá. Aðeins eina sek- úndu eftir miklahvell hafði hitinn lækkað niður í tíu þúsund milljón stig. Þessi hiti cr um það hil þúsund faldur sá hiti sem núna er í miðju sólarinnar. Hitinn féll svo áfram þegar heimurinn þandist út. þessi saga er kenningin um „Heitan miklahvell". Þetta er aðeins ein kenning af mörgum um upphaf al- heimsins, en um aðrar verðurekki nán- ar fjallað hér. Svona telja sumir menn að heimurinn hafi orðið til. En hvem- ig lítur hann eiginlega út? Aristóteles, grískur heimspekingur sem var uppi um 340 árum fyrir krists burð, komst meðal fyrstu manna að því að jörðin væri kúlulöguð. Hvernig fór hann að því? Honum tókst að sjá þetta með því að horfa á tunglið þegar tungl- myrkvar urðu. Hann sá að skuggi jarð- ar var boginn og taldi hann það annað- hvort stafa af því að sólin væri alltaf beint undir jörðinni eða að hún væri kúlulöguð. Annað sem hann hafði til stuðnings máli sínu var að þegar hald- ið er í suðurátt frá Suðurheimsskautinu lækkaði Pólstjarnan alltaf á himninum. Það þriðja sem studdi mál hans vom skipin. Hann tók eftir því að ef skip var að koma að landi var eins og mastr- ið af því kæmi upp úr sjónum og þeg- ar þau sigldu á haf hurfu mastrin í sjó- inn. Þegar við liugsum okkur að menn vissu þetta á þessum tímum er nokkuð furðulegt að menn sem sigldu með Kólembusi á I5.öld vom hræddir við að sigla fram af jörðinni þrátt fyrir þær sannanir sem vom til um lögun heims- ins á þessum tíma. Aristóteles taldi einnig að jörðin væri miðja alheims og að sólin, mán- inn, reikistjörnur og fastastjömur snér- ust í kringum hana. Meðfylgjandi mynd sýnir ykkur hvemig menn hugs- uðu þetta. Skoðum kenningar annars fræði- manns að nafni Aristarkos, en hann var uppi á sama tíma og Aristóteles. Hann skrifaði ritgerð sem stangaðist á við kenningu Aristótelesar. Hugmynd hans var að sólin væri miðja alheims- ins og væri kyrr. Jörðin og aðrar stjömur áttu að snúast í kringum hana. Núna myndu margir spyrja afhveiju trúðu menn þessari kenningu ekki í 10 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.