Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1996, Síða 16

Faxi - 01.02.1996, Síða 16
FAXI miliítll l!l!l(i Ornefni og gönguleiðir í Vatnsleysustrandarhreppi / Itilefni af 20 ára afmæli Lionsklúbbsins Keilis í Vogum, sem er nú í ár, ákvað klúbburinn að gefa út bókina Örnefni og gönguleiðir í Vatns- leysustrandarhreppi. Höfundur bókarinnar er Sesselja Guðmunds- dóttir, Vogum. Bókin er hátt á annað hundruð blaðsíður að stærð. I henni er nákvæm lýsing á örnefnum og gönguleiðum auk örnefnaskrár. Það svæði sem tekið er fyrir er allt ofan gamla Keflavíkurvegarins, en svæðið við sjó- inn er látið bíða betri tíma. Þá eru í bókinni fjöldi mynda og greinargóð kort af öllum hreppnum. I formála að bókinni segir Jón Böðvarsson meðal annars: „Fá byggðarlög munu þykja. hrjóstrugri og einkennasnauðari en Vatnsleysustrandarhreppur. Hús öll, bæði þau sem nytjuð eru og hin sem auð standa og yfirgefm, eru staðsett á mjórri gróðurræmu við sjó. Ofar tek- ur við hraungrýtt heiði, sprungin, þurr og grá, -og trofærþvífótgangandi fóki sem þangaðfer út frá fjölförnum veg- um með bundnu slitlagi... “ Bókarhöf- undur, Sesselja Guðmundsdóttir, hefur skoðað hverja smáhæð og laut í víð- lendi þessu. Hún nefiúr staði, sem heiti bera, og lýsir þeim sem kostur er með þeim árangri að lesendur, sem gegnum textann brjótast, verða margs vísir um búskaparhætti sem aldrei verða endurvaktir. Fram komafróð- leiksbrot um sauðfjárrækt hreppsbúa. Merkar eru lýsingar Sesselju áfomum göngustígum og akvegum um hrepps- landið.“ FAXI BIRTIR HÉR SMÁ STÚFA ÚR BÓKINNI MEÐ LEYFI ÚTGEFANDA: „Snorrastaðatjamir verða næstar á vegi okkar en þær liggja rétt ofan Háa- bjalla. I gömlum heimildum er getið um Snorrastaði einhversstaðar á þess- um slóðum en hvergi sjást merki um þann bæ. I Jarðabókinni 1703 segir um Snorrastaði: „Fom eyðijörð og hefur um langan aldur í eyði legið.... Nú er allt land þessarar jarðar lagt und- ir brúkun ábúenda í Vogum hvom tveggi, og hefur yfir hundrað ár svo verið.“ Tjamimar em oftast sagðar þrjár en em í það minnsta fimm ef ekki em því meiri þurrkar. Fyrir ofan neðstu tjömina er nýreistur skáli frá Skátafélaginu Heiðarbúum í Keflavík. 1 elstu heimildum em þrjár aðal- stjamirnar kallaðar Snorrastaða-Vatns- gjár eða bara Vatnsgjár og Nyrstu- Vatnsgjá. Þrjár Vatnsgjár eru einnig til í Hvassahraunslandi. Bókarhöfundur við Hemphól. I fjarska má sjá glifta í Keilir. SenHt’lja ff GiiditntinlxihÍHir Örnvfni og göngulridir i I (tinln \sustraiularhre/tpi Rétt upp ú 1950 fór að veiðast bleik- ja í Snorrastaðatjömum og var svo fram á níunda áratuginn. Svo virðist sem einhver hafi flutt þangað seiði af Hlíðarvatnsstofni sem klakið var út í klakstöð Jóhannesar Reykdal í Halnar- firði en þetta er þó aðeins ágiskun. Ólíklega hefur verið fiskur þarna frá ómunatíð því engar eldri sagnir eru til um veiði í tjömunum. Sumir töldu bleikjuna hafa ferðast um „neðanjarð- arvatnskerfið“, þ.e. um 2ja km leið, frá Seltjörn (við Grindarvíkurveg) og til Snorrastaðatjarna en bleikja hefur aldrei verið í Seltjörn svo vitað sé, að- eins regnbogasilungur, en hann var settur í tjörnina fyrir nokkrum árum. Einnig var sagt að þcgar farið var með seiði frá Hafnarfirði upp í Kleifarvatn á árunum milli 1950 - 60 hafi bflstjóran- um verið „mútað“ til þess að sleppa tveimur mjólkurbrúsum af bleikjuseið- um í tjarnirnar og e.t.v. er það sannleik- urinn í málinu. 16 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.