Frjáls verslun - 01.10.2001, Qupperneq 98
Agnar Kofoed-Hansen rekstrarverkfræðingur er framkvæmdastjóri
Midt Factoring á Islandi A/S. Mynd: Geir Olafsson
Kofoed-Hansen, MF
Agnar
Midt Factoring á Islandi
hf., MF, var stofnað á
síðasta ári af Midt
Factoring A/S í Danmörku,
sem einnig er stærsta fyrir-
tæki sinnar tegundar þar í
landi. Hér á landi býður MF
sömu þjónustu og boðin er af
móðurfyrirtækinu í Dan-
mörku. Þjónustan er víðtæk
og felur m.a. í sér mat á láns-
hæfi skuldara og áhættu-
flokkun þeirra, ijármögnun
viðskiptakrafna, greiðslu-
tryggingar skuldara, færslur
og afstemmingar viðskipta-
manna auk umsýslu og inn-
heimtu viðskiptakrafna.
Markmið Midt Factoring á
Islandi hf. er að bjóða við-
skiptavinum sínum hag-
kvæmar lausnir í viðskiptum
og stuðla þannig að auknum
hagnaði og vexti þeirra.
Framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins er Agnar Kofoed-
Hansen. „Hugmyndin að út-
rás fyrirtækisins hingað til
lands á rætur sínar að rekja
til þess að ég og samstarfsfé-
lagi minn, Sveinn Reynisson,
höfðum verið að kanna
möguleika á því á koma á fót
fyrirtæki sem byði upp á fjár-
mögnun og innheimtuþjón-
ustu. Við höfðum orðið þess
áskynja að veruleg þörf var
fyrir slíka þjónustu hér á
landi enda var þegar hafmn
mikill vöxtur hjá „factoring"
fyrirtækjum í Evrópu. Eg
hafði síðan samband við Carl
Aage Nielsen, forstjóra Midt
Factoring A/S, seint á árinu
1999 en hann er jafnframt
stærsti eigandi félagsins.
Fyrirtækið Midt Factoring á
íslandi hf. er síðan stofnað
árið eftir og starfsemin hefst
formlega í nóvember 2000
og höfum við verið að vinna
að því að koma fýrirtækinu á
legg,“ segir Agnar.
Midt Factoring er braut-
ryðjandi á Islandi enda segir
Agnar að markaðurinn hafi
tekið fyrirtækinu afar vel.
Fyrirtækið sé að bjóða þjón-
ustu, sem ekki hafi verið í
boði hér á landi áður. „Með
því að skipta við okkur eru
fyrirtæki ekki lengur háð
lánshámörkum í bönkunum
og bankarnir geta minnkað
sína útlánaáhættu án þess að
missa viðskiptavini. Við
reynum að vinna á jákvæðan
hátt með þeim sem eru á
svipuðu markaðssvæði og
erum þegar í samstarfi við
Sparisjóð Reykjavíkur og ná-
grennis, Islandsbanka hf. og
innheimtufyrirtækið AM
Kredit ehf. auk þess sem við
eigum í viðræðum við fleiri
aðila á markaðinum," segir
hann.
Agnar bendir á að stjórn-
endur fyrirtækja beini í
auknum mæli sjónum sínum
að „því sem skiptir mestu
fyrir hag fyrirtækisins.
Þannig er stefnt að því að
láta kjarnastarfsemina vaxa
en finna utanaðkomandi að-
ila til að sinna öðrum störf-
um, þ.e. „outsource" eða
vista. Með þessu móti er
verið að minnka áhættu í
vexti og samdrætti en um
leið stuðla að traustum íjár-
hag. Þessi hugsun í upp-
byggingu fyrirtækja hefur
verið mjög að ryðja sér til
rúms undanfarin ár og hefur
m.a. leitt til þess að Midt
Factoring A/S í Danmörku
hefur stækkað hratt eða um
30 prósent að meðaltali und-
anfarin fimm ár. Midt Factor-
ing hefur einnig þá sérstöðu
að vera eina fyrirtækið í Dan-
mörku sem er óháð banka
eða tryggingafélagi og hefur
einnig þess vegna átt auð-
veldara með að vinna mark-
að,“ segir hann.
„Með því að láta Midt
Factoring annast stjórnun
lánsviðskipta, vöktun skuld-
ara, umsýslu með skuldara-
bókhaldinu, afstemmingar og
móttöku kvartana auk inn-
heimtu er verið að minnka
fastan kostnað við yfirstjórn
og gera stjórnendum fyrir-
tækja kleift að sinna betur
sínum viðskiptavinum með
jákvæðum samskiptum og
aukinni sölu. Midt Factoring
aðstoðar fyrirtæki við að
finna góða viðskiptavini og
tryggja þannig vaxandi hag
fyrirtækjanna inn í framtíð-
ina,“ segir Agnar.
Agnar Kofoed-Hansen er
rekstrarverkfræðingur að
mennt frá Danmarks
Tekniske Universitet, með
framhaldsnám í ijármálum og
markaðsfræðum frá M.I.T. í
Massachusettes í Bandaríkj-
unum. Hann hefur einnig
réttindi verðbréfamiðlara og
hefur unnið sem slíkur hjá
Kaupþingi hf. en þar áður hjá
Iðnaðarbanka íslands hf.
Hann hefur starfað við grein-
ingu á lánshæfi fyrirtækja um
tíu ára skeið, bæði sem ráð-
gjafi og sem forstöðumaður
Upplýsingaþjónustu Verslun-
arráðs Islands og sem for-
stöðumaður Upplýsingaþjón-
ustunnar ehf., sem síðan var
sameinuð Lánstrausti hf.
- Hefur maður tíma fyrir
annað en starfið þegar maður
er að hrinda svona fyrirtæki
úr vör?
„Það fer því miður litið fyrir
því. Maður reynir að sinna ijöl-
skyldunni en svo sitja önnur
áhugamál oft á hakanum. Eg
byrjaði þó snemma á ýmsum
áhugamálum, t.d. skot-
veiðum, skíðamennsku og
stangveiði. En seinna meir hef
ég einnig bjnjað á golfi og bad-
minton en mér finnst reyndar
allt sport skemmtilegt," segir
hann og telur það skyldu að
fara a.m.k. einu sinni á ári á
rjúpu og renna fyrir silung eða
lax. Að öðru leyti fari mikill
tími í fyrirtækið.SH
98