Ármann - 01.11.1937, Blaðsíða 19

Ármann - 01.11.1937, Blaðsíða 19
Á R M A N N 13 Sundíþróttin. Fram til ársins 1927 hafÖi Ármann cnga skiim- lagÖa sundkenslu. AÖ visu átt'i félagið nokkra góða sundmenn, eftir því sem þá gerðist, en sundið var yfirleitt ekki í hávegum haft meðal íþróttafélaga í hænum og var venjan sú, að sundmenn voru kall- aðir saman rétt fyrir allsherjarmót, til þess að veita félagi sínu aukinn stigafjölda á mótinu, en annars var ekkert um þá hugsað. Um framför var þvi varla að ræða. Flestir syntu bringusund og voru venju- lega á lengri vegalengdunum fljótari á ]>ví en skrið- sundi, sem þá ekki þótti heppilegt á lengri vega- lengdir en 50 m. sprett. Þó voru nokkrir, sem syntu yfirhandarsund og hliðsund, sem þóttu góð til ár- angurs. Það er fyrst árið 1927, að nokkrir áhugasamir sundmenn fara að vinna að undirbúningi skijmlegs sundflokks innan Ármanns, og var það Guðmundur Kr. Guðmundsson, fyrv. glimukappi, sem var braut- ryðjandi þess. Smalaði hann saman öllum þeim Ár- menningum, sem þá sturiduðu sundlaugar og liélt með þeim fund, en fundargerÖ frá þeim fundi er ódagsett, og því miður ekki hægt aÖ sjá hvaða mán- aðardag það hefir veri'Ö, en hinn 1. dagsetti fundur var haldinn i húsi S. í. S. 29. apríl 1927 og var þá sundflokkur Ármanns stofnaður og skipulagður. Kosinri var formaður Guðmundur Kr. Guðmunds- son og ritari Sigurður Jóusson, auk þess 5 flokks- stjórar. Kennarar voru ráðnir Jón og Ólafur Páls- synir. Um 40 félagsmenn voru þegar skráðir í flokk- inn og hófust æfingar þegar af krafti: í sundlaug- unum, i sjó, og nokkrar ferðir voru farnar að Ála- fossi um vorið. Kom ])að brátt í ljós, að Guðmundur Kr. Guð- mundsson hafÖi ekki ástæður til að fylgjast með æfingum flokksins og varð þvi miður að segja af sér stjórnarstörfum og fela þau öðrum: Þórarni Magnússyni. Um sama leyti gengust þeir bræður, Jóu og Ól- afur Pálsson, ásamt Eiríki Magnússyni bókbindara. fyrir stofnun Sundfélagsins Ægir. Með stofnun þessara tveggja félaga er myndað nýtt tímabil í sögu sundíþróttarinnar. Frá þeim tima hefir sund- íþróttin farið hröðum skrefum upp á við hér í höf- uðstaðnum og l>reiÖst út um byggðir landsins. Þegar starfsemi félaganna hófst, var aðstaÖa við sundæíingar mjög slæm, bæði í sundlaugunum og við sjóinn. En með hverju árinu vaknaði áhugi og þekking manna fyrir menningargildi og nauðsyn sundíþróttarinnar, fyrir stö'Öuga framför sundfólks- ins, sem þrátt fyrir hin slæmu skilyrði hefir lagt Sundflokkur Ármanns, sem kej)pti á sundmeistaramótinu í síðastliðnum október.

x

Ármann

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ármann
https://timarit.is/publication/692

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.