Morgunn - 01.12.1968, Qupperneq 51
MORGUNN
129
nefna rannsóknirnar á sviði dulsálarfræði (parapsychology)
sem nú renna sífellt nýjum og styrkari stoðum bæði beint
°g óbeint undir þá skoðun, að sál mannsins þegar í þessu
lífi geti starfað óháð skynfærunum að vei’ulegu leyti og
Dafnvel farið úr jarðarlíkamanum um stundarsakir. En við
það skýrist að sjálfsögðu það, sem spiritistar halda fram,
°g styðja við rannsóknir vísindanna og reynslu tugþúsunda
'"nanna og vitnisburð, að sálin haldi áfram að lifa eftir lik-
nrnsdauðann, og geti náð sambandi við lifandi menn og haft
nhi'if á líf þeirra, sem á jörðunni lifa.
Nýlega hefur Sálarrannsóknastofnunin í Oxford birt
^nerka skýrslu, þar sem skýrt er frá athugunum Celiu Green,
sem veitir stofnun þessari forstöðu. Hún hefur síðastliðin
tvö ár safnað upplýsingum frá því fólki, sem telur sig hafa
farið úr líkamanum um stundarsakir. Því miður hef ég ekki
skýrslu þessa í höndum, en verð að láta mér nægja að styðj-
ast við frásögn brezka stórblaðsins Observer 13. október
síðast liðinn.
Þar segir, að árangurinn af fyrirspurnum og gagnasöfnun
Ungfrú Green sé þegar orðinn sá, að hún liafi í höndum frá-
sagnir rúmlega 1000 manns, sem orðið hafa fyrir þeirri
reynsiu að fara úr líkamanum, sumir oftar en einu sinni, og
Dafnvel ferðazt langar leiðir án líkamans.
Ungfrú Green segir, að frásagnirnar sjálfar og svörin við
spurningum þeim, sem hún sendi til manna og óskaði svara
Vlð, séu mjög nákvæmar og greinargóðar. Einkum finnst
kenni merkilegt, hve lýsingunum ber vel saman í öllum meg-
lnatriðum. Bendir þetta til þess, að þessi fyrirbæri iýsi sér
yfirleitt mjög á sömu eða svipaða lund, eða með öðrum orð-
Urn, að reynslu manna ber fyllilega saman um þessi efni.
Af þeim frásögnum, sem borizt hafa, kemur í ljós, að
|n‘iðjungur þeirra, sem fyrir þessari reynslu verða, hafa ver-
Jð af einhverjum orsökum í meðvitundarlausu ástandi, sof-
andi eða þess háttar, þegar fyrirbærin áttu sér stað. Meiri
hluti fólksins kveðst hins vegar hafa verið glaðvakandi,
snmt úti á göngu, aðrir við vinnu í garðinum sínum eða á
9