Morgunn


Morgunn - 01.12.1968, Blaðsíða 64

Morgunn - 01.12.1968, Blaðsíða 64
142 MORGUNN heima hjá þeim árið eftir að ég var fermd. 1 draumnum þóttist ég enn eiga þarna heima. Þykist ég ganga inn í „sal- inn“, sem svo var nefndur. Þar er enginn, en ég heyri mik- inn sálmasöng innan úr skrifstofunni. Þekki ég, að einn þeirra, sem sungu, var Velschow, en hann var ágætur söng- maður. Ég opna hurðina að skrifstofunni og sé, að þar er allt uppljómað og bjart. Þar er Velschow og hjá honum nokkuð af ungu fólki, bæði karlar og konur. Söngur þessa fólks var mjög fagur. Sungnir voru tveir sálmar og báðir á dönsku. Sá fyrri var: Tænk, naar engang, en hinn síðari: Den er slet ikke af Gud forladt, hvem han fratager de Hjer- tenskære. Fyrri sálminn þekkti ég vel, en hinn hafði ég ekki áður heyrt sunginn. Ég þóttist þess fullviss í draumnum, að þetta væru börn þeirra Veischows og systur minnar, enda þekkti ég þarna Kristján, William og Gerdu af ljósmyndum, sem ég hafði séð af þeim á Sauðanesi. Ég þykist spyrja Velschow hvar systir min sé, en hann svarar því, að hún sé í Kaupmanna- höfn. Þá fyrst átta ég mig á þvi, að þau hjónin voru fyrir löngu flutt til Danmerkur. Velschow dáinn og mörg af börn- um þeirra, þar á meðal bæði Kristján og Gerda. Að lokum þykir mér Velschow segja við mig: ,,Þú átt að skrifa systur þinni. Berðu hjartans kveðju frá okkur; segðu, að allt sé svo gott, svo gott, og að við sjáumst bráðum.“ Hann tvítók orðin: ,,svo gott, svo gott“, með mikilli áherzlu. Helzt fannst mér þetta fólk vera hér á einhverju ferðalagi. — Síðan lauk draumnum. Þennan draum skrifaði ég systur minni þann 4. febrúar. Hafði ég þá enga vitneskju fengið um það, að William væri dáinn. En í næsta bréfi sagði hún mér frá láti hans, en gat þess ekki þar, hvenær það hefði borið að höndum. Svar hennar við bréfi mínu er dagsett 6. júní. Þar segir hún mér, að hann hafi látizt 21. desember, eða sem næst samtímis því, sem mig dreymdi drauminn. Jafnframt sendi hún mér tvo sálma sérprentaða, er sungnir höfðu verið við útförina. Voru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.