Morgunn - 01.12.1968, Blaðsíða 70
148
MORGUNN
koma á fót þessu félagi vegna þess að ég og margir fleiri
prestar litum svo á, að kristin kirkja sé búin að missa sjónar
á andagáfunum, sem hún í upphafi átti í ríkum mæli, og
henni sé brýn þörf á að eignast þær á ný.
Við trúum á það, sem Páll Postuli segir um andagáfurnar
í 12. kapítuia I. Korintubréfs. En þar kemst hann að orði á
þessa leið: Því að einum veitist fyrir andann að mæla af
speki, en öðrum að mæla af þekkingu, samkvæmt sama
anda, öðrum trú á hinum sama anda, öðrum lækningagáfur
í einum og sama anda, öðrum framkvæmdir kraftaverka,
öðrum spámannleg gáfa, öðnam greining anda, öðrum
tungutalsgáfa, en öðrum útlegging tungna.------Það fær
engin kirkja staðizt sem ekki hirðir um þessar gáfur eða
lítilsvirðir þær.“
Auk sambandsins við framliðna hefur þessi félagsskapur
á stefnuskrá sinni andlegar lækningar, sér í lagi með bæn, og
rannsóknir ýmiss konar dulrænna fyrirbæra og reynslu.
Þetta þing í Joliet sátu fulltrúar víðsvegar að úr Banda-
ríkjunum, og aðalræðuna í upphafi þess flutti dr. Edward
Bauman prestur í söfnuði lærisveina Krists í Washington.
Forseti samtakanna, séra P. L. Higgins, segir um afstöðu
þeirra sem í þessum samtökum eru:
,,Við vitum, að við lifum eftir líkamsdauðann. Við vitum,
að samfélag heilagra er raunveruleiki, vegna þess að marg-
ir okkar hafa í raun og veru komizt í beint samband við anda
þeirra, sem látnir eru. Við vitum, að Kristur á ennþá kraft-
inn til þess að lækna mein mannanna vegna þess, að við höf-
um séð sjúka verða heilbrigða í hans nafni.“
Blaðið Toronto Daily Star getur þess, að áhugi á sálar-
rannsóknum muni fara vaxandi í Bandaríkjunum og beri hið
fjölsótta þing spíritista þar í fyrrahaust þess ljóst vitni. —
Einnig virðast hinar ýmsu kirkjudeildir þar, eða að minnsta
kosti sívaxandi hópur prestanna, sinna nú meira þessum
málum en nokkru sinni áður, og hafa þá sannfæringu, að
kirkjunni sé það beinlínis lífsnauðsyn, að daufheyrast ekki
lengur við þeim boðskap, sem spíritisminn hefur að flytja