Morgunn - 01.12.1968, Blaðsíða 76
154
MORGUNN
sem skrifað hefur marga kafla bókarinnar og sett á hana
heildarsvipinn, skulu hér aðeins nefnd nöfn örfárra höfunda,
sem þar hafa ritað flesta og lengstu þætti: Ásmundur Guð-
mundsson biskup ritar um æskuheimili prófessors Haralds,
biblíuþýðingu hans, kennslu hans, prédikarastarf og fleira.
Dr. theol. Jakob Jónsson ritar um guðfræði hans. Séra Jón
Auðuns dómprófastur um störf hans að sálarrannsóknum og
fleira. Séra Kristinn Stefánsson um störf hans að bindindis-
málum. Eru hér aðeins taldir fáir af mörgum.
Flestar greinarnar í bókinni hafa að visu birzt áður á
prenti, en á víð og dreif í blöðum og tímaritum. En á vissan
hátt má segja, að það sé kostur á bókinni, að þar er varð-
veitt og saman safnað því, sem samtíðar- og samstarfsmenn
höfðu um hann að segja ,,á meðan minningin um hann var
ennþá fersk og lifandi, og sýna þær því glöggt, hvílík áhrif
hann hafði á andlegt líf samtíðar sinnar,“ eins og séra
Benjamín kemst vel og réttilega að orði í formála bókar-
innar.
Sálarrannsóknafélagið á þakkir skyldar fyrir útgáfu þess-
arar bókar, og þá sérstaklega séra Eenjamín Kristjánsson
fyrir alit sitt mikla og ágæta starf við útgáfu hennar og
þann sker'f, sem hann hefur til hennar iagt.
Jónas Þorbergsson:
Rrotinn er broddur dauðans.
Þetta er síðasta bók Jónasar Þorbergssonar, gefin út að
honum látnum. Hún er eins konar kveðja frá honum við
leiðarlokin hér, kveðja þessa gáfaða og tilfinningaríka
manns, sem eftir langa stormasama ævi og oft örðuga og
harða baráttu og leit hefur fundið i raun og veru ennþá
meira en hann leitaði að eða gjörði sér vonir um að finna.
Það er mikils virði að geta kvatt þetta jarðlíf jafn þakklát-
ur og hann var og jafn öruggur og hann um mátt kærieik-
ans, um sigur lífsins yfir dauðanum og; um birtuna handan
við hel.