Morgunn - 01.12.1983, Síða 8
110
MORGUNN
ar nýju stefnu, visindalegra sálarrannsókna. Niðurstaða
fundarins: Ujyplagi tímaritsins verður sleppt óbreyttu lausu
en jafnframt ályktað að félagar Sálarrannsóknafélagsins
verði að setjast á rökstóla og álykta hvort spiritisminn
sé að renna sitt skeið á enda.
„Spíritisminn hér á landi hefur ekki borið árangur vis-
indalega séð,“ segir dr. Þór Jakobsson við Helgarpóstinn.
„Langt t frá að spíritisminn sé að gefa upp andann. Reynsla
fólks ber vott um annað“, segir Guðmundur Einarsson.
1 tvo mánuði hefur sumarhefti Morguns, tímarits Sálar-
rannsóknafélags íslands legið inni á skrifstofu Sálarrann-
sóknafélags Islands. Ástæðan fyrir „frystingu“ upplagsins
er grein ritstjórans, dr. Þór Jakobssonar veðurfræðings, er
nefnist ,,ritstjórarabb.“
I umræddri grein færir dr. Þór Jakobsson rök að því að
til þess að komast að óyggjandi niðurstöðum í sálarrann-
sóknum þurfi að beita vísindalegum aðferðum, en þær séu
ekki á færi leikmanna. Hann segir: „Sjaldan eru einhlítar
skýringar á því sem virðist gerast. Það þarf vant fólk,
réttar aðstæður og stundum fágæt og dýr tæki til að gera
athuganir. Þar við bætist þörf á sérþekkingu sálfræðinga,
eðlisfræðinga og annarra lærðra manna til að skera úr
um niðurstöður rannsóknanna.
Afleiðing þessa er sú, að almenningur getur ekki stund-
að sálarrannsóknir frekar en jarðfræði, án þess að læra
tilskilin fræði.“
Þessa skoðun telur Guðmundur Einarsson formaður Sál-
arrannsóknafélagsins stangast á við reynslu þeirra sem
hafa kynnst dulrænum fyrirbærum eða orðið vitni að hæfi-
leikum fólks til að ná sambandi við framliðna.
Iláhil jur eða vísindi?
Áður en lengra er haldið er vert að leiða hugann að
sagnfræðilegum atriðum svonefndra sálarrannsókna. Það