Morgunn - 01.12.1983, Síða 20
122
MORGUNN
skynja er hugur Skaparans, sem birtist okkur i einu
formi eða öðru.
2. Tilvera og persónuleiki einstaklingsins heldur áfram
eftir breytinguna, sem við köllum dauða.
3. Við ákveðin hagstæð skilyrði á sér stað opið samband
milli okkar jarðarbúa og þeirra, sem búa í hinum and-
lega heimi, sem við öll hverfum til, fyrr eða síðar.
Samkvæmt riti dr. Erlends Haraldssonar, dulsálarfræð-
ings, sem ber nafnið Þessa lieims og annars og fjallar um
könnun á dulrænni reynslu íslendinga, trúarviðhorfum og
þjóðtrú, þá fæ ég ekki betur séð, en yfirgnæfandi meiri-
hluti Islendinga sé sammála þeim skoðunum, sem greint
er frá hér að framan. Milljónir manna um víða veröld eru
einnig á sama máli. Ég held því, að meira þurfi til en ská-
ritaðar setningar til þess að fullyrða að slíkar skoðanir
„hafi runnið skeið sitt til enda“. Þór Jakobsson hefði því
átt að orða sínar skáletruðu setningar allmiklu skýrar en
hann gerir, því hann á vafalaust við allt annað en þetta.
Hér á hann vitanlega við það, að transmiðlafundir spirit-
ista, eins og þeir hafa tíðkast, séu engar sálarrannsóknir.
Um það er ég honum fyllilega sammála.
Sú skoðun mín leiðir óhjákvæmilega til þeirrar niður-
stöðu, að ég tel Sálarrannsóknafélag Islands ekki standa
undir nafni. Vísindalegar rannsóknir i þessum efnum er
flókið mál, sem hlýtur að kosta stórfé, því til slíkra rann-
sókna þarf að kveðja menntaða menn í réttum greinum
vísindanna. Og jafnvel í höndum slíkra manna er þetta
mjög tímafrekt og erfitt rannsóknarefni, sem stafar af því,
að hugur sálarrannsóknamanna getur haft hein áhrif á
niðurstöður! Ég tel því óviðeigandi, að áhugamannafélög
um spiritisma kalli sig sálarrannsóknafélög, eins og þau
gera. Sálarrannsóknafélagi Islands hefur allt frá upphafi
verið stjórnað af spiritistum, sem hafa helgað sig því að
breiða út kenningar spiritismans. Ég tel það enga goðgá,