Morgunn - 01.12.1983, Page 33
DRAUMAK OG I.ÍFSAMBÖND
135
Það er einmitt þessi geislan, sem gerir lengra komnum
lífverum kleift, að hafa sambönd sín á milli, vitandi vits,
þótt fjarlægðir geimsins aðskilji. Því fjarlægðir geimsins
munu ekki vera lífgeislanum nein hindrun, að komast milli
stjarna og vetrarbrauta. Á andartaki eða minna en það,
mun lífgeislinn berast milli hinna fjarlægustu geimsvæða.
Öll samskipti hinna lengra komu stjarnbúa munu fara fram
á þann hátt, hvort heldur er um að ræða hugsanaskipti
(tjáskipti) þeirra á milli eða heimsóknir, þ.e. hamfarir
þeirra, milli fjarlægra himinhnatta.
Við jarðarbúar erum á einskonar útjaðri vitheims og líf-
heims. Við erum enn svo til utanveltu í hinum miklu sam-
böndum lífsins i alheimi. Við höfum enn ekki tekið upp
sambönd, vitandi vits, við lengra komna íbúa annarra jarð-
stjarna í. öðrum sólhverfum. Ekki er þó svo að skilja, að
við séum alveg án sambands við líf annara stjarna. Síður
en svo. Margvísleg áhrif berast okkur frá lífheimum stjarn-
anna. Gallinn er bara sá, að við gerum okkur lítt grein
fyrir þessum áhrifum og því síður hvaðan þau eru komin,
og þá ekki heldur nema ófullkomlega hvernig unnt er að
bæta þessi sambönd. Lífgeislunarsambönd hafa jafnan ver-
ið misskilin.
D. Draumar «g draumsambönd
Draumar eru eitt þeirra fyrirbæra sem flestum eru hug-
leikin. Varla mun finnast sá maður, að hann dreymi ekki.
Draumar eru mjög ýmiskonar. Sumir virðast rétt eins og
þau atvik, sem gerast í daglegu lífi manna, sumir svo rugl-
ingslegir, að lítt er hægt að henda reiður á efni þeirra,
en aðrir svo skýrir, að flest atvik þeirra verða munuð.
Þá eru draumar sem virðast hafa spásagnagildi, eru t.d.
táknrænir, koma fram fyrr eða síðar. Enn aðrir eru þannig,
að svo virðist sem um raunverulega lifsreynslu sé að ræða.
Samkvæmt kenningum Helga Pjeturss stafa draumar af
sambandi sofandi manns, draumþega, við vakandi mann,