Morgunn - 01.12.1983, Side 35
DRAUMAR OG iJfSAMBÖND
137
Draumar virðast oft eiga sér langan aldur, þar til þeir
rætast á einhvern þann hátt, er þeir gefa tilefni til.
b. Aðrar útidyr
Annan draum dreymdi hana fyrir tveim árum: Frænka
hennar ung veiktist alvarlega. Hún fékk eitrun í tönn og
bólgnaði afar mikið í andliti. Var hún búin að vera svona
upp undir viku og leið mjög illa, þegar hér var komið sögu.
Þá dreymir konu mína, að hún sé komin heim til Sig-
ríðar, systur sinnar, þar sem telpan var. Þykir henni aðrar
útgöngudyr með tröppum vera komnar á austurenda húss-
ins. (En í raunveruleikanum eru útidyrnar á vesturenda
hússins, en engar að austanverðu.)
Draumurinn var ekki lengri. En um leið og hún vaknaði
vissi hún þegar, fyrir hverju draumurinn mundi vera.
Hún hringir því til systur sinnar, og segir henni, að
opnast muni leið út úr veikindum telpunnar þennan sama
dag.
Þetta reyndist líka svo. Því kl. 2 síðdegis komst hún á
sjúkrahús, þar sem hún fékk rétta læknismeðferð, og batn-
aði henni fljótt þessi meinsemd.
c. Tvær.lausar tennur
Konu eina dreymdi táknrænan draum fyrir allmörgum
árum: Henni þykir Alfreð Gíslason, læknir, vera kominn
i heimsókn. Fannst konunni hún vera með tvær tennur
iausar og biður hún lækninn að líta upp í sig. Hann gerir
það og segir: „Þetta er ekki annað en það, sem þú þarft
að losna við. Þær gera þér óþægindi." Draumurinn verð
ekki lengri.
Nú hagaði svo til í húsi þessarar konu, að á efri hæðinni
áttu heima karl og kona, sem voru henni til ákaflega mikils
ama og óþæginda, vegna leiðinlegrar og óvinsamlegrar
framkomu í hennar garð. Þau voru t.d. alveg hætt að um-